Gamla - Æskulýðs- og tómstundaráð
Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 84
84. fundur
27. nóv. 2006 kl. 17:05 í fundarsal Ráðhúss.
Mætt voru: Matthildur Ásmundardóttir, Marianna Jónsdóttir, Björn Sigfinnsson, Helga Lucia Bergsdóttir, Gestur Halldórssson og Haukur H. Þorvaldsson æskulýðs - og tómstundafulltrúi.
Matthildur formaður setti fund og bauð ráðsfólk og gesti velkomna til fundarins.
Gengið var til dagskrár:
1. Íþróttavika á Hornafirði, HúllumHæ.
Haukur greindi frá nýliðinni íþróttaviku á Hornafirði sem fram fór 13. til og með 19. nóvember. Í íþróttavikunni var bæjarbúum gefinn kostur á að fylgjast með íþróttastarfi og einnig að taka þátt í viðburðum í tengslum við vikuna. Þrátt fyrir að HúllumHæið væri vel auglýst reyndist ekki mikill áhugi vera fyrir þessu framtaki en að því stóðu Umf. Sindri, USÚ og æskulýðs- og tómstundaráð. Eftir stendur að reyna að festa víðavangshlaup í sessi og eins göngu hundaeigenda með hunda sína. Ljóst er að mikil gróska er í íþróttastarfi á Hornafirði um þessar mundir. Æskulýðs- og tómstundaráð samþykkir að greiða til íþróttavikunnar kr. 75.000 úr Sérsjóði ráðsins.
2. Staða málefnum ungmenna 16+ á Hornafirði
Undir þessum lið mættu til fundar að ósk ráðsins: Eyjólfur Guðmundsson skólameistari FAS, Jón Garðar Bjarnason aðstoðarvarðstjóri lögreglu, Jón Kristján Rögnvaldsson félagsmálastjóri, Ragnhildur Borgarsdóttir formaður nemendaráðs FAS, Birgir Fannar Reynisson starfsmaður Þrykkjunnar, Björg Erlingsdóttir forstöðumaður, Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar og Valdemar Einarsson framkvstj. Sindra.
Farið var yfir stöðu mála í nútíð og horft til framtíðar í þessum málum.
Vantar kjarna fyrir 16 + til að starfa í og út frá. Eyjólfur nefndi að virkja ætti frumkvæði ungmenna og að skapa þeim aðstöðu til að starfa við. Jón Garðar rifjaði upp tillögu að stofnun ungmennahúss þar sem ungmenni kæmu saman að vinnu og starfi. Björg sagði að gott væri að hafa samastað fyrir ungmennin til að sinna sínum áhugamálum. Fundarfólk var sammála um að samastaður ungmenna mundi ekki setja hömlur á að ungmenni leituðu annað eftir húsnæði undir viðburði sem rúmast ekki í þeirra húsnæði. Skoðað verði hvort hægt er að ráða starfsmann til að leiða ungmennastarfið og virkja ungmennin. Fundarfólk var sammála um að mikið framboð væri á ýmiskonar afþreyingu hér spurningin um að nýta hana.
Á fundinum var samþykkt eftirfarandi ályktun: Fundur haldinn í ÆTH mánudaginn 27. nóvember beinir þeim tilmælum til bæjarstjórnar Hornafjarðar að málefnum ungmenna 16 ára + verði fundinn farvegur þannig að þau fái notið sín enn meira en nú er með því að virkja frumkvæði þeirra og leiðtogahæfileika. Leitað verði eftir samstarfi við Framhaldsskólann í Austur Skaftafellsýslu og nemendaráð um leiðir til úrlausnar. Stefnt verði að því að lausn verði fundinn þannig að hægt verði að hefja starf í byrjun næsta árs og verði gert ráð fyrir kostnaði þar að lútandi við lokagerð fjárhagsáætlunar. Hauki falið að fylgja ályktuinni eftir.


