Gamla - Æskulýðs- og tómstundaráð
Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 81
81. fundur
Fundur haldinn í æskulýðs- og tómstundaráði Hornafjarðar mánudaginn
28. ágúst 2006 kl. 17:10.
Mætt voru: Matthildur Ásmundardóttir formaður, Helga Lucia Bergsdóttir, Helga Vilborg Sigjónsdóttir, Björn Sigfinnsson, Gestur Halldórsson og Haukur H. Þorvaldsson sem ritaði fundargerð
Matthildur formaður setti fund og bauð ráðsfólk velkomið.
Gengið var til dagskrár:
- Unglingalandsmót UMFÍ á Hornafirði 2007 og staða í uppbyggingu íþróttamannvirkja. Ragnhildur Einarsdóttir og Friðrik Ingvaldsson mæta á fundinn.
Ragnhildur Einarsdóttir formaður USÚ skýrði frá starfi undirbúningsnefndar fyrir unglingalandsmótið, greindi frá því hverjir sætu í nefndinni og í hvaða greinum yrði keppt og einnig að boðið yrði upp á ýmsa afþreyingu m.a. ætlar Þórbergssetrið að standa fyrir Þórbergsleikum í anda skáldsins þá verður boðið verður upp á kennslu í Hornafjarðarmanna ásamt því að keppa í spilinu. Stefnt er að því að slá Íslandsmet í þátttkandafjölda í spilamóti á Íslandi. Gefinn hefur verið út kynnisbæklingur um mótið og var honum dreift á unglingalandsmótinun á Laugum í sumar og eins var auglýsing sett í mótsskrá frá sveitarfélaginu og USÚ þar sem minnt var á unglingalandsmótið á Hornafirði 2007. Ragnhildur minnti á að UMFÍ verður 100 ára á mótsárinu og eins Umf. Máni. Var Ragnhildur bjartsýn á gott og fjölmennt unglingalandsmót á Hornafirði að ári.
Friðrik Ingvaldsson formaður framkvæmdanefndar um uppbyggingu íþróttamannvirkja á Hornafirði kom á fundinn og greindi ráðsfólki frá stöðu mála.
Unnið er á fullu að hönnun á sundlaugarmannvirkinu og að teikningum og útfærslum á vallarsvæði. Standa málin þannig að á morgun verður vinnufundur í bæjarstjórn þar sem farið verður yfir þessi mál og mæta þar til fundar m.a. framkvæmdanefndin og aðrir sem þetta mál varða s.s. fulltrúar úr íþróttahreyfingunni og embættismenn.
2. Vinnuskólinn í sumar.
Bjarni Ólafur Stefánsson yfirverkstjóri skólans mætir á fundinn.
Bjarni Ólafur afhenti ráðsfólki skýrslu sem hann hefur tekið saman um sumarstarf vinnuskólans og í skýrslunni er að finna ýmsann fróðleik sem varðar rekstur og starf vinnuskólans í sumar. Hún er ætluð þeim sem koma að vinnuskólanum á næstu árum. 49 unglingar skráðu sig í skólann í upphafi en þegar upp var staði var fjöldinn á bilinu 30 til 35 sem var við vinnu í sumar. Flestir unglingarnir komu úr 8. bekk, nokkrir úr 9. bekk en örfáir úr 10. bekk. Strákar voru í meirihluta eins og verið hefur undangengin ár. Vinnutími unglinganna var frá 09:00 – 16:00.
Tekin var klukkutími í mat og 15 mínútna pása fyrir hádegi og eftir.
Í upphafi starfstímanns voru haldin fræðslunámskeið fyrir unglingana og flokkstjóra til undirbúnings fyrir störf sumarsins. Vinnu unglinganna lauk 4.ágúst. Var unglingunum boðið upp á að starfa viku lengur en aðeins einn þáði boðið. Hver og einn unglingur fékk umsögn um framgöngu sína í skólanum í lokin og sagði Bjarni Ólafur að þær hefðu verið upp og ofan eins og gengur og gerist. Annars var hann tiltölulega sáttur við starfið í sumar. Ráðið þakkað Bjarna Ólafi komuna og sagði að strax væri farið að bera á rusli í bænum eftir að vinnuskólanum lauk.
2. Starfsemi Þrykkjunnar í vetur.
Haukur greindi frá því að búið væri að ráða Steindór Sigurjónsson sem starfsmann í Þrykkjuna. Hann mun einnig starfa að hluta að félagsmálum nemenda í FAS . Stefnt er að því að Þrykkjan verður opnuð mánudaginn 4.september og verður hún opin fyrir 8.-10. bekkinga á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum, þá verður opið á þriðjudögum fyrir 6.-7. bekkinga í Hafnarskóla. Einnig verður nemendum í FAS boðið upp á að nota aðstöðu í Þrykkjunni fyrir hluta af sínu félagsstarfi. Samstarf er um nokkra félagslega viðburði á milli Heppuskóla og Þrykkjunnar og eins í forvörnum.
- Breyttur opnunartími sundlaugar.
Opnunartími sundlaugar breyttist 22. ágúst vegna þess að skólasund hófst þann dag. Er nú opið virka daga frá 07:00 – 09:00 og 16:00 – 20:00. Opnunartími um helgar er óbreyttur fram til 18. september opið frá 09:00 – 18:00 eftir það verður opið frá 09:00 – 15.00. Heildaraðsókn til 1.ágúst er 16.871 gestir en voru á sama tíma í fyrra 18.129 gestir. Þess má geta að í fyrra var laugin opnuð ½ mánuði fyrr en í ár. Þó er ljóst að samdráttur í aðsókn er í sumar, maí og júní voru aðeins betri en í fyrra en mun færri komu í júlí nú. Sundæfingar voru stundaðar af sunddeild Sindra í lauginni í sumar.
- Brettarampar.
Haukur greini frá því að búð væri að setja upp ramp no.2 á svæðið við sparkvöllinn. Gunnar Pálmi bifvélavirki ásamt Vinnuskólanum sá um uppsetninguna og eru Gunnari Pálma færðar bestu þakkir fyrir.
- Forvarnamál.
Samkvæmt samningi á milli Heppuskóla og Þrykkjunnar er um að ræða samstarf á svið forvarna. Undanfarin ár hafa verið unnin forvarnaverkefni með nemendum í 8. bekk og gert er ráð fyrir að svo verði áfram á þessu starfsári. Þá þarf að skoða að hvort hægt er að vinna með 6. og 7. bekk að forvörnum. Haukur sagði að nauðsynlegt væri að virkja foreldra til þátttöku í forvarnastarfi almennt. Reynt verður að endurvekja VÁ - horn hópinn og hefja endurskoðun á forvarnastefnu sveitarfélagsins.
Fundi slitið kl. 19:10.


