Gamla - Æskulýðs- og tómstundaráð
Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 51
51. fundur
Fundur haldinn í æskulýðs- og tómstundaráði Hornafjarðar mánudaginn
26. maí 2003 kl. 17:10 í fundarsal Ráðhúss.
Mætt voru: Friðrik Ingvaldsson formaður, Gunnar Ingi Valgeirsson, Þórgunnur Torfadóttir, Elsa S. Elísdóttir, Valdemar Einarsson og Haukur H. Þorvaldsson æskulýðs - og tómstundafulltrúi.
Friðrik formaður setti funda og bauð ráðsfólk velkomið.
Gengið var til dagskrár:
1. Vinnuskólinn í sumar.
Haukur greind frá tilhögun vinnu í Vinnuskólanum í sumar. Unglingar í 8., 9. og 10. bekk fá allir vinnu í mislangan tíma. 8. bekkingar fá vinnu hálfan daginn í 4 vikur, 9. bekkingar fá vinnu allan daginn í 6 vikur og 10. bekkingar fá vinn allan daginn í 7 vikur. Alls eru þetta 78 unglingar. Þá eru eldri unglingar í slátturhópi og vegna mikillar ásóknar í vinnu er sérstakur hópur með ungu fólki 17 ára, aðallega drengir sem munu koma að ýmsum sérverkefnum s.s. göngustígagerð. Alls eru sex blandaðir hópar með unglingum úr 8., 9. og 10. bekk, einn í Nesum og fimm á Höfn. Einn slátturhópur og einn 17 ára hópur. Þá verða skólagarðar starfræktir.
Yfirflokkstjóri er Gunnhildur Stefánsdóttir.
2. Sumarbæklingur.
Útgáfa sumarbæklingsins tefst eitthvað vegna þess hve erfiðlega gengur að innheimta efni í hann frá þeim sem hafa verið með í honum. Reynt verður að koma honum út í byrjun júní.
3. Framkvæmdir á Sindravöllum.
Valdemar Einarsson greindi frá framkvæmdum á Sindravöllum á vegum knd. Sindra.
Samningur er um framkvæmdirnar á milli sveitarfélagsins og Sindra sem tekur til þriggja ára. Það sem eftir er að tyrfa af svæðinu verður gert í sumar. Ánægja er með það svæði sem tyrft var sl. sumar.
4. Þar sem þetta er síðasti fundur fyrir sumarfrí var ákveðið að fá sér heitan kakósopa í Kaffhorninu ásamt starfsmönnum í íþrótta - og tómstundageiranum. Næsti fundur ráðsins er í ágúst.
Fundi slitið kl. 18:00.
Friðrik Ingvaldsson Haukur H. Þorvaldsson.
Þórgunnur Torfadóttir
Valdemar Einarsson
Elsa S. Elísdóttir
Gunnar Ingi Valgeirsson


