Gamla - Æskulýðs- og tómstundaráð
Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 79
79. fundur
Fundur haldinn í æskulýðs- og tómstundaráði Hornafjarðar mánudaginn
22. maí 2006 kl. 17:05.
Mætt voru: Friðrik Þ. Ingvaldsson, Gunnar Ingi Valgeirsson, Valdemar Einarsson, Ragnhildur Einarsdóttir, Þórgunnur Torfadóttir og Haukur H. Þorvaldsson æskulýðs - og tómstundafulltrúi.
Friðrik formaður setti fund og bauð ráðsfólk velkomið til þessa síðasta fundar á kjörtímabilinu.
Gengið var til dagskrár:
1. Vinnuskólinn.
Bjarni Ólafur Stefánsson verður yfirverkstjóri vinnuskólans og mætti hann á fundinn og sagði hann undan og ofan af starfsemi og tilhögun skólans í sumar.
Vinnuskólinn byrjar mánudaginn 12. júní á námskeiðum fyrir verkstjóra, flokksstjóra og starfsmenn hans síðara námskeiðið verður mánudaginn 19. júní. Dræm aðsókn er að skólanum aðeins hafa borist 36 umsóknir úr 8.- 10. bekk og eru lang fæstar úr 10. bekk eða 2. Bjarni Ólafur reiknar með það muni fjölga umsóknum t.d. koma unglingar úr Bestfisk sem vinna þar í humar tímabundið.
2. Sumarbæklingur.
Haukur sagði frá því að loksins væri allt efni komið í sumarbækling ÆTH. En mánuður er síðan skilafresti lauk. Er stefnt á að sumarbæklingurinn fari í dreifingu fimmtudaginn 1.júní nk. Það Svartlist sem prentar bæklinginn en það fyrirtæki eiga Ágúst og Jónína sem ráku hér Prentsmiðju Hornafjarðar. Verður hann allur í lit.
3. Staða í uppbyggingu íþróttamannvirkja.
Friðrik sem er formaður framkvæmdanefndar um uppbyggingu íþróttamannvirkja fór yfir stöðu mála ásamt þeim Ragnhildi og Þórgunni sem einning eiga sæti í framkvæmdanefndinni og sýndi teikningar af nýju lauginni. Verið er að ljúka malarfyllingu í grunn sundlaugar. Nefndin er nú að skoða frumdrög að uppbyggingu Sindravalla og verða þau kynnt starfsmönnum og þjálfurum umf. Sindra. Á fundir no. 100 í Bæjarstjórn Hornafjarðar þann 11. maí sl. var samþykkt að leggja fram 500 þúsund krónur til að kaupa á rampi á hjólabrettasvæðið. En þar er fyrir einn rampur sem hefur nýst fremur illa vegna vöntunar á öðrum til að ná rennsli á inn á hinn. Fagnar ráðið þessari ákvörðun bæjarstjórnar.
4. Önnur mál.
Haukur greindi frá því að tveimur ungmennum frá Hornafirði hefði verið boðið að sækja unglingamenningarmótið Ung í Norden sem fram fer í Þórshöfn í Færeyjum í lok júní. Í fyrra fóru tveir fulltrúar frá Hornafirði á slíkt mót sem fór fram í Danmörk og stóðu sig frábærlega vel. Ungmennin sem fara að þessu sinni eru, Sólveig Morávek og Jóhann Antonsson en þau voru bæði að ljúka 10. bekk ásamt því að hafa stundað nám í Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu. Á mótinu er tekið þátt í ýmsum listasmiðjum og lýkur mótinu á sameiginlegri sýningu allra smiðjanna auk þess eru svokölluð opin svið þar sem hægt er að troða upp. Félagsmiðstöðin greiðir þátttökugjald ungmennana sem er 18.000 kr. fyrir hvorn. Frá Íslandi fara 20 ungmenni á hátíðina á aldrinum 14.- 18. ára. Það er Íþrótta- og tómstundanefnd Hafnarfjarðar sem sér um framkvæmd og þátttöku í menningarmótinu fyrir Íslands hönd. Félagsmiðstöðin Þrykkjan verður opin á föstudögum í júní og fram í viku af júlí í tengslum við starfsemi vinnuskólans.
Þar sem þetta er síðasti fundur æskulýðs- og tómstundaráðs á þessu kjörtímabili ætla ráðsfólk að fá sér kakósopa ásamt starfsfólki íþróttamiðstöðvarinnar. Ráðið hefur haldið 39 fundi á tímabilinu auk þess sem sumt ráðsfólk hefur tekið þátt í störfum framkvæmdanefndar um uppbyggingu íþróttamannvirkja á Hornafirði. Mæting á fundi hefur verið mjög góð. Friðrik þakkaði ráðsfólki fyrir vel unnin störf og var ánægður með störf ráðsins og þær íþróttaframkvæmdir sem unnar hafa verið á kjörtímabilinu. Ráðið þakkaði formanni einnig samskiptin. Haukur tók undir orð Friðriks til ráðsfólks og óskaði því velfarnaðar hvort sem það yrði áfram í æskulýðs- og tómstundaráði eða á hliðarlínunni.
Fundi slitið kl. 18:00.


