Gamla - Æskulýðs- og tómstundaráð
Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 78
78. fundur
Mætt voru: Friðrik Þór Ingvaldsson,Gunnar Ingi Valgeirsson, Valdemar Einarsson, Ragnhildur Einarsdóttir, Þórgunnur Torfadóttir og Haukur H. Þorvaldsson æskulýðs - og tómstundafulltrúi. Gunnar Ingi varaformaður setti fund og bauð ráðsfólk velkomið.
Gengið var til dagskrár:
1. Staða í uppbyggingu íþróttamannvirkja
Friðrik, Ragnhildur og Þórgunnur sem eiga sæti í framkvæmdanefnd um íþróttamannvirki kynntu fyrir ráðsfólki stöðuna varðandi hönnun á nýrri sundlaug og hvað er framundan í uppbyggingu íþróttavalla. Byrjað er að grafa fyrir grunni laugarinnar og fylla í hann. Verið er að teikna laugina. Í næstu viku ættu að koma gögn varðandi uppbyggingu íþróttavalla og í framhaldi af því mun framkvæmdanefndin funda og kalla til sín hagsmunaaðila í framhaldinu.
2. Vinnuskólinn
Staða. Staða mála varðandi vinnuskólann er að á bæjarráðsfundi á morgun verða málefni hans rædd og farið yfir hugmyndir frá Hauk sem voru til umræðu á síðasta fundi ÆTH. Þá hafa Össur Imsland frá umhverfis- og tæknisviði og Haukur farið yfir ýmis atriði varðandi starf skólans t.d. námskeið með fagfólki í upphafi starfstíma skólans ætluð flokkstjórum og nemendum, ráðningarmál og hvenær skóli hefst. Þeir gera ráð fyrir að eftir fund bæjarráðs verði hægt að auglýsa störf við skólann til nemenda í 8.-10. bekk. Ljóst er að einhver ungmenni verði í humarvinnu eins og í fyrra og annari vinnu sem þeim býðst. Í fyrra voru 58 ungmenni við störf í vinnuskólanum þar af voru 6, 10. bekkingar, 31, 9.bekkingur og 21, 8. bekkingur. Nægar umsóknir hafa borist í störf flokkstjóra og í slátturhópa. Þá hefur einnig borist umsókn um að sjá um skólagarðana.
3. Umhirða valla
Nýr starfsmaður Sindra, Valdemar Einarsson ,upplýsti að hann hafi verið ráðinn starfsmaður umf. Sindra og hefur hann störf þann 15. maí. Umf. Sindra verði falið umsjón með Sindravöllum og starfsmaður hans sjái um að umhirða verði þar í lagi og unnin af fagmanni. Var nýjum starfmanni Sindra óskað velfarnaðar í starfi.
4. Vetrarstarfið í Þrykkjunni
Haukur fór yfir vetrarstarf Þrykkjunnar sem var fjölbreytt að vanda. Starfsmenn voru þrír, fyrir áramót var Birgir Reynisson. Síðan tóku við starfinu Lars Imsland og Steindór Sigurjónsson. Auglýsingar um starfið báru lítinn árangur aðeins einn sótti en dró umsókn sína til baka. Gerður var samstarfssamningur á milli Heppuskóla og Þrykkjunnar um félags- og forvarnamál á vegum stofnannana. Draumurinn er að fá að ráða starfsmann í fullt starf við félagsstörf barna og unglinga í samstarfi við skólana. Þórgunnur benti á að hvort ekki væri rétt að færa opnunartíma Þrykkjunnar fram þannig að hann gæti myndað samfellu við skólastarf og nýst krökkum sem eru að fara úr skólum. Væri hægt að tvinna þetta betur saman.
5. Verkefnið “Hjólað í vinnuna”
Haukur sagði frá því að hann hefði auglýst verkefni ÍSÍ “Hjólað í vinnuna” á skjávarpinu og eins vakið athygli á því á vefnum hornafjordur.is Haukur greindi frá því að landsfundur Vertu til verður haldinn föstudaginn 12. maí kl. 12.45-16.30 í sal Fjölbrautaskólans í Garðabæ. Yfirskrift: Samstarf og forgangsröðun - lykill að betra samfélagi Þetta er þriðji landsfundur um forvarnamál sveitarfélaga sem forvarnaverkefnið Vertu til heldur. Vertu til er verkefni á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Lýðheilsustöðvar með það að markmiði að efla forvarnir í sveitarfélögum landsins.
6. Önnur mál
a) Rætt var um framkvæmd á 17.júní. Vildi ráðið að skoðað yrði hvort Sindri tæki framkvæmdina að sér. Verða þeir í sambandi um það Haukur og Valdemar. Ekki hafa borist viðbrögð frá aðilum varðandi efni í sumarbækling ÆTH. Haldið verður áfram að ganga eftir efni. b) Gunnar Ingi ræddi um að leita ráða með fjáröflun yngri flokka í íþróttum þannig að hægt sé með þeim hætti að greiða niður æfingagjöld. c) Ragnhildur greindi frá því að hún hefði sent öllum þingmönnum kjördæmisins bréf þar sem hún fh. USÚ benti þeim á að kynna sér þann ferðakostnað sem íþróttafélög þyrftu að leggja út í. Tillaga frá menntamálanefnd um ferðasjóð íþróttafélaga liggur fyrir Alþingi og var hún tilefni bréfsins. d) Klifurveggur sem ÆTH úthlutaði styrk í er í vinnslu og hefur styrkþegi haft samband við Hauk varðandi vegginn. Rætt um tvískiptingu íþróttahússsal með tjaldi eða dúk. Ráðið vill að það verði skoðað vel. Fundi slitið kl. 18:45.


