Gamla - Æskulýðs- og tómstundaráð

Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 77

77. fundur

Fundur haldinn      í  æskulýðs- og tómstundaráði Hornafjarðar mánudaginn

27. mars 2006  kl. 20:00.

 

Mætt voru:               Gunnar Ingi Valgeirsson, Valdemar Einarsson, Ragnhildur Einarsdóttir, Þórgunnur Torfadóttir og Haukur H. Þorvaldsson æskulýðs - og tómstundafulltrúi.

 Gunnar Ingi varaformaður setti fund og bauð ráðsfólk velkomið.

 Gengið var til dagskrár:

 1.      Staða í uppbyggingu íþróttamannvirkja.

 Ragnhildur og Þórgunnur kynntu fyrir ráðsfólki stöðuna varðandi hönnun á nýrri sundlaug og hvað er framundan í uppbyggingu íþróttavalla..

 2.      Vinnuskólinn.

 Haukur skilaði inn hugmyndum um tilhögun vinnuskólans sem fela m.a. í sér að haldin verði ýmis námskeið með fagfólki í upphafi starfstíma skólans með flokkstjórum og nemendum.  Hugmyndirnar hafa einnig verið sendar til Umhverfis – og tæknisviði og hefur Haukur verið í sambandi við starfsmenn sviðsins um tilhögun skólans og einning viðrað áhalda – og tækjamál við þá ásamt verkstjóra Áhaldahúss. Ráðinu leist vel á framkomnar hugmyndirnar og settu fram gagnlegar ábendingar um tilhögun. Nokkur umræða spannst um sorpmál og endurvinnslu í sveitarfélaginu og lagði ráðið fram eftir farandi bókun: æskulýðs- og tómstundaráð hvetur bæjarstjórn til þess að huga að sorpmálum sveitarfélagsins og þá sérstaklega með endurvinnslu og flokkun í huga. Ráðið vill að nýttir séu starfskraftar unga fólksins í vinnuskólanum til átaks í þessum málum og vekja það um leið til umhugsunar og ábyrgðar fyrir umhverfi sínu og nýtingu náttúruauðlinda.   

 3.      Stefnumótun ÆTH skoðuð.

 Farið var yfir stefnumótun í  íþrótta- tómstunda og æskulýðsmálum og fellur texti  hennar að fyrirhuguðum framkvæmdum á sviði íþróttamannvirkja sem nú eru á döfinni. Ráðinu finnst rétt að nýtt ráð fái það verkefni að endurskoða þá stefnumótun sem er í íþrótta-, æskulýðs og tómstundamálum í sveitarfélaginu.

 4.      FÍÆT fræðsluráðstefnan.

 Haukur greindi frá fræðsluráðstefnu Félags íþrótta-, æskulýðs- og tómstundafulltrúa sem hann sótti og var haldin í samstarfi við Samband Íslenskra sveitarfélaga í Laugardalshöll. Var komið víða við á ráðstefnunni sem hófst á fimmtudaginn 23.mars og lauk síðla á föstudag 24.mars. Má nefna mál sem tekin voru fyrir s.s. gildi frítímans, fjárframlöfg sveitarfélaga til málaflokksins, samningar og rekstrarumhverfi íþróttamannvirkja, samvinna sveitarfélaga á sviði íþrótta- og æskulýðsmála, þátttaka og brottfall úr íþrótta  og æskulýðsstarfi, niðurgreiðslur á þátttökugjöldum í íþrótta- og æskulýðsstarfsemi ofl. Að mati Hauks var þetta mjög upplýsandi ráðstefna og fór yfir nokkra minnispunkta. Hann á eftir að vinna úr minnispunktum sem hann tók niður á ráðstefnunni og deila með ráðsfólki.

 5. Forvarnir-stuttmyndir. Aðalfundur Vertu til verkefnisins.

 Haukur sagði frá því að mánudaginn 13.mars  voru frumsýndar í sal Nýheima 8 forvarnastuttmyndir sem nemendur í 8. bekk í Heppuskóla hafa framleitt í vetur. Stuttmyndirnar  fjalla um forvarnir gegn: eiturlyfjum-reykingum-brotum á útivistarreglum og áfengi. Gestir á frumsýningu voru nemendur og kennarar Heppuskóla, kvöldi eftir voru svo myndirnar sýndar foreldrum 8. bekkinga og kynntu nemendur myndirnar og efni þeirra. Voru undirtektir foreldra við myndunum góðar.

Myndirnar hafa nemendurnir sjálfir unnið undir verkstjórn Árna Péturs Hilmarssonar kennara og Hauks Helga Þorvaldsson æskulýðs- og tómstundafulltrúa. Auk þess að gera myndirnar hafa nemendurnir líka skrifað forvarnarsögur sem birtust í jólablaði Eystrahorns og  í janúarblaði þess. Í þessum sögum var fjallað um eiturlyf og reykingar. Þá var einnig gerð tillaga að forvarnabæklingum.

Þetta er þriðji veturinn sem 8. bekkingar fara í slíka forvarnavinnu. Vinnan hófst veturinn 2003 með samstarfi Heppuskóla og æskulýðs- og tómstundaráðs í forvörnum.

Þann vetur unnu nemendurnir forvarnaplaggöt og var sama þemað notað og í myndunum. Vöktu plaggötin athygli og hanga uppi í skólum,  félagsmiðstöð og víðar.

Veturinn 2004 unnu nemendurnir forvarna auglýsingar sem sýndar voru fyrir nemendur og kennara og tókust vel.

Þessi vinna að forvarnaverkefnunum er liður í því að unglingarnir fái tilfinningu fyrir því að varast þær hættur sem að þeim steðja ef þau taka rangar ákvarðanir í lífinu og standa ekki fast á sínu og velja rétt.

Nemendurnir fá með þessu  einnig þjálfun í handritsgerð , myndatökum, leika, klippa og setja inn á mynd texta og hljóð. Allir nemendur fá viðurkenningu fyrir starfið og veitt eru verðlaun fyrir besta myndbandið. Eftir páska verða stuttmyndirnar sýndar nemendum og foreldrum í 7.bekk í Hafnarskóla og þá verða líka sýndar forvarnamyndir sem nemendur Hafnarskóla hafa unnið.

Haukur greindi frá því að landsfundur Vertu til verður haldinn föstudaginn 12. maí kl. 12.45-16.30 í sal Fjölbrautaskólans í Garðabæ. 

Yfirskrift: Samstarf og forgangsröðun - lykill að betra samfélagi

Þetta er þriðji landsfundur um forvarnamál sveitarfélaga sem forvarnaverkefnið Vertu til heldur.  Vertu til er verkefni á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Lýðheilsustöðvar með það að markmiði að efla forvarnir í sveitarfélögum landsins.

   6.      Fjöldi iðkenda í íþróttum.

 Haukur lagði fram samantekt um iðkendafjölda í íþróttagreinum sem stunda íþróttir í  íþróttahúsin á Höfn og Mánagarði og sundlaug. Samantektin er á tímabilinu frá 1.sept. 2005 til 15.mars 2006. Heildarfjöldi þeirra sem stundar íþróttir að staðaldri á þessu tímabili er: 604 og er kynjaskipting nokkuð jöfn 310 karlar og 294 konur. Langlestir iðkendur eru 16 ára og yngri. Flestir taka þátt í knattspyrnu eða 232 þá taka 124 þátt í fimleikum og karfan er í þriðja sæti með 71 iðkenda. Rétt er að taka fram að iðkendur íþrótta taka sumir þátt í fleiri en einni grein. 7 greinar eru stundaðar.

  7.      Önnur mál.

 Haukur greindi frá því að Gunnar Ingi væri hættur með bíórekstur í Sindrabæ. Gunnar Ingi fór síðan yfir reksturinn og sagði að á síðasta ári hefði verið örlítill halli á honum og árið þar á undan hefði verið í járnum. Til að geta sýnt filmur með íslenskum texta vantar textalesara við bíóvélina sem er sagður kosta á þriðju milljón króna. Ekkert er ákveðið með framhaldið en aðeins hefur því verið velt upp að Þrykkjan reyndi að reka bíóið aðallega þá með barnasýningum. Þá er spurning að fá skjávarpa sem sýnir DVD myndir. Haukur greindi frá lýðheilsufundi þar sem niðurstaða úr gátlistum sveitarfélaga var kynnt. Von er á starfsmanni frá Lýðheilsustöð strax eftir páska til að hitta lýðheilsuhópinn og verður þá nánar farið yfir stöðu mála.

 




Fundargerðir

Dag.grein
16.02.2012 Fundarplan nefnda 2012
19.05.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 100
22.04.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 99
27.03.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 98
21.02.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 97
17.01.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 96
13.12.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 95
15.11.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 94
18.10.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 93
20.09.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 92
03.09.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 91
26.06.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 90
04.06.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 89
30.04.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 88
26.03.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 87
05.03.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 86
22.01.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 85
27.11.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 84
23.10.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 83
23.10.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 83
25.09.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 82
28.08.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 81
28.06.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 80
22.05.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 79
03.05.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 78
27.03.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 77
27.02.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 76
23.01.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 75
22.01.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 85
05.12.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 74
10.11.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 73
24.10.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 72
26.09.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 71
21.09.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 70
23.05.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 69
25.04.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 68
06.04.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 67
28.02.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 66
24.01.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 65
22.11.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 64
25.10.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 63
27.09.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 62
01.09.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 61
24.05.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 60
26.04.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 59
22.03.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 58
01.03.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 57
26.01.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 56
04.12.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 55
20.10.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 54
22.09.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 53
25.08.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 52
26.05.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 51
05.05.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 50
24.03.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 49
24.02.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 48
27.01.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 47
17.12.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.11.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
28.10.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
23.09.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
26.08.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
22.05.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
22.04.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.03.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.02.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
28.01.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica