Gamla - Æskulýðs- og tómstundaráð
Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 76
76. fundur
Fundur haldinn í æskulýðs- og tómstundaráði Hornafjarðar mánudaginn 27. febrúar 2006 kl. 20:00.
Mætt voru: Friðrik Ingvaldsson formaður, Gunnar Ingi Valgeirsson, Valdemar Einarsson, Ragnhildur Einarsdóttir, Þórgunnur Torfadóttir og Haukur H. Þorvaldsson æskulýðs - og tómstundafulltrúi.
Friðrik formaður setti fund og bauð ráðsfólk velkomið. Gengið var til dagskrár:
1. Staða í uppbyggingu íþróttamannvirkja
Friðrik kynnti fyrir ráðsfólki stöðu varðandi hönnun á nýrri sundlaug. 2. Vinnuskólinn. Æskulýðs- og tómstundaráð vill að starfsmaður þess fari yfir starfsemina með starfsmönnum umhverfis- og tæknisviði og fulltrúa úr umhverfisnefnd og skili inn tillögum á næsta fund ráðsins um tilhögun skólans. Jafnframt verði gerð könnun á ástandi tækja og búnaðar sem vinnuskólinn hefur yfir að ráða.
3. Á ÆTH að gangast fyrir heiðrun fólks
Haukur reifaði þá hugmynd hvort ráðinu þætti ástæða til að skoða hvort ætti að veita viðurkenningar þeim aðilum sem hafa lagt að baki langt og heilldrjúgt starf á sviði íþrótta- og tómstundamála á Hornafirði. Ráðið var samþykkt því. Það ætti ekki endilega að gerast árleg heldur þegar tækifæri væri til og þá um leið og styrkir og viðurkenningar eru afhentar af sveitarfélaginu.
4. Klifurveggur í Mánagarði
Haukur greindi frá því að Haraldur Bjarnason úr Unglingadeildinni Brandi hafi komið að máli við hann og leitað eftir því hvort möguleiki væri á því að fá að setja upp klifurvegg í íþróttasalnum í Mánagarði en Unglingadeildin fékk styrk frá ÆTH til kaupa á klifurvegg. Veggurinn tæki c.a. 3 m. á breiddina og c.a. 5 til 6 m. á hæðina. Ráðið styður að það verði skoðað hvort hægt verði að koma veggnum fyrir og skal haft samráð starfsmann ráðsins og íþróttakennara um framgöngu málsins.
5. Bréf frá Félagi fagfólks í frítímaþjónustu - kynning
Til kynningar var bréf frá Félagi fagfólks í frítímaþjónustu sem stofnað var 28.maí 2005. Flestir félagsmenn eru starfsmenn sveitarfélaga og hafa þverfaglega menntun. Rétt til félagsaðildar eiga einstaklingar sem: Lokið hafa háskólanámi á sviði félagsvísinda, uppeldis- og tómstundafræða og starfa á vettvangi frítímans á vegum sveitarfélaga s.s. í félagsmiðstöðvum, frístundaheimilum, frístundamiðstöðvum, ungmennahúsum og skrifstofum æskulýðsmála. Eða hafa a.m.k. þriggja ára starfsreynslu í félagsmiðstöðvum, frístundaheimilum, frístundamiðstöðvum og ungmennahúsum á vegum sveitarfélaga. Í bréfinu kemur fram markmið félagsins sem er m.a. að styrkja fagvitund einstaklinga sem vinna við frítímaþjónustu og efla starfið sem faglega starfsgrein. Í bréfinu er hvatt til að sjái sveitafélög sér hag í að leita til félagsins eftir sérfræðiþekkingu í málefnum barna og ungmenna eru þau hvött til að hafa samband. Í gegnum uppgefið netfang og eða heimasíðu félagsins.
6. Forvarnir
Haukur greindi frá heimsókn Gylfa Sigurðssonar íþróttakennara sem m.a. rekur Heilsuskólann. Gylfi sem er Hornfirðingum að góðu kunnur enda uppalinn hér. Gylfi heimsótti 8. bekkinga og hélt námskeið sem hann kallar “ Törfateppið” fyrir þá. Það fellst í sjálfsstyrkingu, markmiðssetningu og hvernig er hægt að láta drauma sína rætast. Var ekki annað að heyra og sjá en að krakkarnir hefðu haft af þessu gagn og gaman.
7. Ferðir á vegum Þrykkjunar
Um síðustu helgi tók ungur söngvari Ragnar Æ. Fjölnisson þátt í söngvarakeppni SamAust á Seyðisfirði eftir að hafa sigrað í söngvakeppni Þrykkjunnar. Með Ragnari í för voru tveir ungir hljófæraleikarar sem léku undir hjá Ragnari sem sjálfur lék á gítar. Lenti Ragnar í öðru sæti keppninnar og tekur þátt í söngvakeppni Samfés sem fram fer í Mosfellsbæ um næstu helgi en þar verður Samféshátíðin haldin að þessu sinni. 10. bekkingum er gefinn kostur á að fara á hátíðina sem hefst með balli á föstudagskvöldið þar sem allar vinsælustu unglingahljómsveitir landsins spila. Síðan er á laugardeginum söngvarakeppnin og billjardmót. 10. bekkingar syntu á föstudaginn áheitasund í 20 tíma til að afla fjár í ferðina og gekk það vel.
8. Önnur mál
Umsókn um styrk úr Sérsjóði barst frá 3.fl. stúlkna í Sindra til Englandsferðar í sumar. Stúlkurnar munu nema fótboltafræði í fótboltaskóla Bobby Charlton. Samþykkti ráðið að veita 3000 kr. styrk á hvern þátttakanda. Þessa ferð átti að fara í næsta ár en varð flýtt vegna Unglingalandsmótsins. Að gefnu þessu tilefni verður ekki veittur ferðastyrkur úr Sérsjóði á næsta ári.
Ragnhildur spurði af hverju nýjasta fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs væri ekki komin á netið og af hverju ekki voru gerð göt í gólfið í íþróttahúsinu vegna stangarstökks.
Einnig reifaði Ragnhildur að Sindri og USÚ væru að vinna að því að til félagsins og sambandsins yrði ráðinn framkvæmdastjóri með ósk um aðkomu sveitarfélagsins að ráðningunni.
Formaður lagið til að erindið yrði sent til bæjarráðs þar sem ÆTH hefði ekki heimild til aðkomu að slíkri ráðningu.
Ákveðið að næsti fundur verði haldinn á mánudagskvöld kl. 20:00.
Fundi slitið kl. 21:45.


