Gamla - Æskulýðs- og tómstundaráð
Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 75
75. fundur
Fundur haldinn í æskulýðs- og tómstundaráði Hornafjarðar mánudaginn 23. janúar 2005 kl. 17:10. Mætt voru: Friðrik Ingvaldsson formaður, Gunnar Ingi Valgeirsson, Valdemar Einarsson, Ragnhildur Einarsdóttir, Þórgunnur Torfadóttir og Haukur H. Þorvaldsson æskulýðs - og tómstundafulltrúi.
Friðrik formaður setti fund og bauð ráðsfólk velkomið.
Gengið var til dagskrár:
1. Styrkveiting
Farið var yfir umsóknir sem borist hafa ráðinu um styrkbeiðnir frá ýmsum félögum. Gengið var til afgreiðslu og voru styrkir til eftirtalinna félaga samþykktir:
Umf. Sindri til afborgunar á láni kr. 1250.000.00. Sindri til almenns rekstrar kr. 2400.000.00. Reiknuð húsaleiga í Íþróttahúsi Höfn kr. 3540.000.00. Vegna leikjanámskeiða kr. 750.000.00. Sunddeild Sindra (leiga á sundlaug) kr. 150.000.00.
Umf. Máni. Til íþróttastarfsemi kr. 250.000.00. Reiknuð húsaleiga í Mánagarði kr.200.000.00. Umsókn um söguritun félagsins var vísað til bæjarráðs.
Golfklúbbur Hornafjarðar Framlag vegna framkvæmdasamnings kr. 2200.000.00. Framlag vegna barna- og ungmennastarfs kr. 425.000.00.
Hestamannafélagið Hornfirðingur Framlag vegna framkvæmdasamnings kr. 2290.000.00 Framlag vegna barna- og ungmennastarfs kr. 375.000.00.
Dynamó Höfn Styrkbeiðni hafnað.
Björgunarfélag Hornafjarðar (ungliðadeildin Brandur) Til að útbúa klifurvegg kr. 100.000.00.
Unglingahljómsveitin Modis. Umsókn til tækjakaupa og upptökubúnaðar. Vísað til bæjarráðs
Sérsjóður Framlag í hann kr. 270.000.00 Alls eru veittir styrkir að upphæð 14.200.000.00. kr.
2. Styrkveitingar til efnilegra íþróttamanna og sérverkefna úr Sérsjóði
Ákvað ráðið að veita frjálsíþróttamanninum Bjarna Malmquist 40.000 kr. styrk og 4.fl. karla í knattspyrnu 5000 kr. styrk á hvern knattspyrnumann til æfinga – og keppnisferðar utanlands. Skila skal inn þátttökulista við greiðslu styrksins. Ákveðið var að styrkja útgáfu sumarbæklings ÆTH 2006 um 50.000 kr.
3. Forvarnir
Haukur sagði frá forvarnavinnu sem er í gang hjá honum og Árna Pétri kennara í Heppuskóla með 8. bekkingum um að gera leiknar forvarnaauglýsingar. Haukur sagði líka að hann mundi leggja til að gerð yrði könnun í Heppuskóla eins og undanfarin ár (var ekki í fyrra) um notkun nemenda á áfengi, tóbaki og öðrum vímuefnum og um félagsmál unglinganna.
Nú í janúar hafa nemendur og kennarar Hafnar- og Heppuskóla fengið fræðslu um skaðsemi tóbaksreykinga. Hingað komu fulltrúar á vegum Lýðheilsustöðvar. Hafði Þórgunnur Torfadóttir skólastjóri Hafnarskóla forgöngu um þessa heimsókn. Var gerður góður rómur af heimsókninni og létu fulltrúar Lýðheilsustöðvar mjög vel af framkomu nemendanna á fræðslufundunum.
Þann 25.janúar kemur fulltrúi frá UMFÍ til að kynna Blátt áfram verkefnið sem gengur út á forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi gagnvart börnum á Íslandi. Verkefnið verður kynnt nemendum og starfsfólki í skólum og fyrir öðrum þeim er málið kemur við.
Fulltrúi ÆTH tekur þátt í störfum stýrihóps sem fjallar um matarræði og aukna hreyfingu barna er þetta samstarfsverkefni sveitarfélaga og Lýðheilsustöðvar. Hulda Laxdal Hauksdóttir veitir hópnum hér heima forystu. Nú liggur fyrir í þessari viku að sækja fund hjá Lýðheilsustöð. Héðan fer Hulda á fundinn ásamt tveimur unglingum.
Gylfi Sigurðsson íþróttakennari (Hornfirðingur) kemur til okkar í febrúar með verkefni sem hann nefnir Töfrateppið sem er verkefni til að auka sjálfstraust og sjálfsvirðingu ungmenna.
4. Starfsmenn í Þrykkjunni
Erfiðlega hefur gengið að ráða fastann starfsmann í Þrykkjuna. Starfsmaður sem var við störf í haust hætti um áramót. Fór í skóla. Tekist hefur að leysa málið með því að fá þá Lars Andrésson og Steindór Sigurjónsson til starfa. Þrátt fyrir að þeir séu í öðrum störfum annars staðar er hægt að fella starfið í Þrykkjunni saman við þau. Þeir hafa áður starfað í Þrykkjunni.
Umræða var um hvort ástæða væri til að reyna breytingu á opnunartíma Þrykkjunnar. Hafa hana opna strax eftir skóla og fram að kvöldmat í stað kvöldopnunar eins og nú er. Þessi opnunartími hefur komið vel út t.d. í Borgarbyggð. Haukur sagði að nú þegar væri verið að reyna opnun frá kl. 17:00 til 19:00 á fimmtudögun og taldi að næsta haust væri gamna að reyna slík og það mundi jafnvel auðvelda ráðningu starfsfólks.
5. Önnur mál
Friðrik kynnti fyrir fundarmönnum hugmyndir að staðsetningu nýrrar sundlaugar. Ákveðið að næstu fundir verði haldnir á mánudagskvöldum kl. 20:00.
Fundi slitið kl. 19:00.


