Gamla - Æskulýðs- og tómstundaráð
Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 74
74. fundur
Fundur haldinn í æskulýðs- og tómstundaráði Hornafjarðar mánudaginn 5. desember. 2005 kl. 17:10.
Mætt voru: Friðrik Ingvaldsson formaður, Ragnhildur Einarsdóttir, Gunnar Ingi Valgeirsson, Þórgunnur Torfadóttir, Valdemar Einarsson og Haukur H. Þorvaldsson æskulýðs - og tómstundafulltrúi.
Friðrik formaður setti fund og bauð fundarfólk velkomið. Gengið var til dagskrár:
1. Endurskoðun á stefnumótun ÆTH
Friðrik taldi eðlilegt að ráðið færi yfir stefnumótun ÆTH í æskulýðs,- íþrótta- og tómstundamálum, ?Horft til framtíðar? sem samþykkt var 2002 í ljósi uppbyggingu íþróttamannvirkja sem fyrirsjánleg er á næsta ári. Bað hann ráðsfólk að fara yfir stefnumótunina og koma með tillögur um beytingar á fundi í febrúar. 2. Umsóknir um styrki 2006 Farið var yfir umsóknir styrkja. Verða teknar til afgreiðslu á næsta fundi í janúar.
3. Úthlutun úr sérsjóði ÆTH
Óskað var eftir að fulltrúar í æskulýðs- og tómstundaráði legðu fram tillögur vel rökstuddar um einstaklinga eða verkefni á íþróttasviðinu sem þeir telja að njóta skuli styrks úr sérsjóðnum á næsta fundi í janúar.
4. Forvarnir
Haukur greindi frá forvarnavinnu í 8. bekk Heppuskóla. Þar eru nemendur að gera forvarnamyndbönd undir leiðsögn Árna Péturs Hilmarssonar kennara og hans auk þess sem lífsleikni kennsla hefur tengst þessu verkefni. Stefnt er að því að ljúka verkefninu fyrir jólafrí.
5. Félagsmiðstöðin - starf
Eftir áramót vantar starfsmann í 60% starf í félagsmiðstöðina þar sem núverandi starfsmaður er að fara í nám til Danmerkur. Þrátt fyrir auglýsingar um starfið hafa viðbrögð verið lítil. Starfsmaður í félagsmiðstöðinni er jafnframt starfsmaður í FAS í 30% starfi þar sem hann vinnur að félagsstörfum skólans í tengslum við nemendaráð hans.
6. Samfés 20. ára
Haukur greindi frá því að föstudaginn 9. desember eru Samtök félagsmiðstöðva á Íslandi 20 ára. Samtökin eru ein af stærri félagasamtökum á landinu sem vinna að opnu og faglegu frístundastarfi. Innan Samfés eru í dag 90 félagsmiðstöðvar af öllu landinu og er talið að Samfés nái til um 20.000 unglinga í gegnum sitt starf. Á afmælisdaginn verður efnt til málþings um stöðu frístundastarfs sem ber yfirskriftina ?Frítíminn 2025?. Haukur mun sækja málþingið.
Fundi slitið kl. 18:45.


