Gamla - Æskulýðs- og tómstundaráð

Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 72

72. fundur

Fundur haldinn í æskulýðs- og tómstundaráði Hornafjarðar mánudaginn 24. okt. 2005 kl. 17:00. Mætt voru: Friðrik Ingvaldsson formaður, Ragnhildur Einarsdóttir, Gunnar Ingi Valgeirsson, Þórgunnur Torfadóttir, Valdemar Einarsson og Haukur H. Þorvaldsson æskulýðs - og tómstundafulltrúi.

Friðrik formaður setti fund og óskaði konunum í ráðinu sérstaklega til hamingju með kvennafrídaginn og bauð alla velkomna.

Gengið var til dagskrár:

1. Fjárhagsáætlun 2006

Farið var yfir fyrstu drög af fjárhagsáætlun þeirra stofnana sem heyra undir æskulýðs- og tómstundaráð

2. Heimsókn framkvæmdanefndar v/Unglingalandsmóts til Víkur

Haukur greindi frá heimsókn framkvæmdanefndar v/Ungingalandsmóts á Hornafirði 2007 til Víkur í Mýrdal. Þangað fór framkvæmdanefndin þriðjudaginn 4. október og hitti að máli sveitarstjórann í Vík og æskulýðs- og íþróttafulltrúann. Þeir fræddu nefndarfólk um hvernig þeir stóðu að málum varðandi unglingalandsmótið sem þeir héldu í sumar og sýndu þá íþróttaaðstöðu sem þeir byggðu upp bæði íþróttavelli og sundlaug í tengslumvið það og til framtíðar. Þá var einnig komið við á Kirkjubæjarklaustri og nýja íþróttahúsið þeirra skoðað og þá eru þeir að byrja framkvæmdir við nýja sundlaug. Var þessi heimsókn gott veganesti fyrir framkvæmdanefndina. Össur Imsland frá tæknideild kom á fundinn og sýndi skissur af nýrri sundlaug sem Hrafnkell Thorlacíus arkitekt af Heppuskóla og íþróttahúsi Hafnar hefur gert í tengslum við frumathugun á sundlaugarbyggingu. Einning er von á tillögum frá Hönnun á Reyðarfirði varðandi sama mál.

3. Dúkskipti í sundlaug Þrjú tilboð hafa borist í dúk í sundlaug. Verið er að bíða eftir staðfestingu á því tilboði sem lægst er. Reiknað er með að fara í dúkskiptin í janúar á næsta ári og vinna við skiptin taki um viku tíma. Æskulýðsráð vill minna á fyrri bókanir um dúkaskiptin. Ráðið er mótfallið því að farið verði í dúkaskipti að sinni og vill að ákvörðun um þau verði frestað þar til tekin hefur verið ákvörðun um byggingu nýrrar sundlaugar.

4. Vinnuskólinn , skólagarðar

Frestun til næsta fundar.

5. Forvarnir, Maritafundur, heimsóknir í Hafnar og Heppuskóla, Heimili og skóli.

Haukur greindi frá því sem gerst hefur í forvörnum í haust. Í ágúst var forvarnasíðan sett á Skjávarpið og látin rúlla. Á forvarnasíðunni eru birtar stuttar áminningar til foreldra barna og unglinga um forvarnamál.

21.sept. kom Maritaverkefnið ?Hættu áður en þú byrjar? hingað. Magnús Stefánsson fræðslufulltrúi verkefnisins var með fund hjá 9. bekkingum og sýndi m.a. íslenska mynd um fíkniefni. Jón Garðar aðstoðaryfirlögregluþjónn var líka á fundinum. Um kvöldið var fundur með foreldrum 8.- 9. bekkjar þar sem Magnús mætti og sýndi myndina og ræddi um þær hættur og afleiðingar sem fylgja notkun fíkniefna, Jón Garðar ræddi um fíkniefni á Hornafirði og Haukur sagði frá forvarnaverkefni með 8.bekkingum í Heppuskóla sem hann ásamt Árna Pétri kennara vinna með þeim og sýndi forvarnaplaggöt og eina auglýsingu um eiturlyf sem 8. bekkingar unnu. Fundarstjóri var Friðrik Ingvaldsson form. æskulýðs- og tómstundaráðs. Á fjórða tug foreldra mættu á fundinn.

22.sept.kom fulltrúi frá UMFÍ og hélt félgamálanámskeið fyrir nemendaráð FAS, Þrykkjuráð, nemendaráð Heppuskóla, íþróttaráð FAS. Þá sat Birgir Fannar starfsmanni Þrykkjunnar námskeiðið.

28.sept. kom Helga Margrét Guðmundsdóttir verkefnisstjóri hjá Heimili og skóla kom hér í heimsókn ræddi við fulltrúa í foreldraráðum - og félögum við grunnskólana hér og heimsótti Heppu-Hafnar og Nesjaskóla. Um kvöldið var fundur með foreldrum og þar mættu yfir 40. Fundarstjóri var Anna María Kristjánsdóttir. Fór Helga yfir mikilvægi þess að halda úti góðu foreldrastarfi í skólum. Hvatti hún foreldra til starfa og benti á ýmsa góða hluti sem verið væri að gera hér á Hornafirði. Upp úr stóð að kannski vantaði meira upplýsingaflæði til foreldra um ýmislegt sem verið væri að gera. Baklandið þarf að vera virkara og nýta sér þá starfsmenn sem eru að vinna í málefnum barna og unglinga. Var gerður góður rómur af fundinum.

30.sept. Setti forvarnasíðuna á Skjávarpið. Aðvörunarorð til foreldra m.a. að efla foreldrastarfið.

5.okt. Forvarnarvinna með 8. bekkingum í Heppuskóla hófst. Stendur fram að jólafríi. Umsjón Árni Pétur og Haukur inn í verkefnið kemur Ragnhildur Jónsdóttir sem kennir lífsleikni í skólanum.

13.okt. Farið í 5.6. og 7. bekk Hafnarskóla og rætt um útivist, áfengi , tóbak og eiturlyf. Einning var rætt um einelti, þjófnað, skemmdarverk ofl. Gefin voru útivistarsegulspjöld og diskurinn ?Hættum að reykja?. Umsjón Haukur og Jón Garðar.

23.október. Búið er að setja upp ramp á körfubotlasvæði og er ekki annað að sjá en honum sé vel tekið. Æskulýðs- og tómstundaráð vill færa Hornafjarðardeild Rauðakrossins sem fjármagnaði rampinn að stórum hluta bestu þakkir og eins Gunnari Pálma Péturssyni og fjölskyldu fyrir mikla og góða aðstoð við að setja rampinn saman.

Fundi slitið kl. 19:00.


Fundargerðir

Dag.grein
16.02.2012 Fundarplan nefnda 2012
19.05.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 100
22.04.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 99
27.03.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 98
21.02.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 97
17.01.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 96
13.12.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 95
15.11.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 94
18.10.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 93
20.09.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 92
03.09.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 91
26.06.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 90
04.06.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 89
30.04.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 88
26.03.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 87
05.03.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 86
22.01.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 85
27.11.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 84
23.10.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 83
23.10.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 83
25.09.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 82
28.08.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 81
28.06.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 80
22.05.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 79
03.05.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 78
27.03.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 77
27.02.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 76
23.01.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 75
22.01.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 85
05.12.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 74
10.11.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 73
24.10.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 72
26.09.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 71
21.09.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 70
23.05.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 69
25.04.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 68
06.04.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 67
28.02.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 66
24.01.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 65
22.11.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 64
25.10.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 63
27.09.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 62
01.09.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 61
24.05.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 60
26.04.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 59
22.03.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 58
01.03.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 57
26.01.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 56
04.12.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 55
20.10.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 54
22.09.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 53
25.08.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 52
26.05.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 51
05.05.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 50
24.03.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 49
24.02.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 48
27.01.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 47
17.12.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.11.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
28.10.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
23.09.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
26.08.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
22.05.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
22.04.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.03.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.02.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
28.01.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica