Gamla - Æskulýðs- og tómstundaráð
Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 71
71. fundur
Fundur haldinn í æskulýðs- og tómstundaráði Hornafjarðar miðvikudaginn 26. sept. 2005 kl. 17:00.
Mætt voru: Friðrik Ingvaldsson formaður, Ragnhildur Einarsdóttir, Gunnar Ingi Valgeirsson, Þórgunnur Torfadóttir, Valdemar Einarsson og Haukur H. Þorvaldsson æskulýðs - og tómstundafulltrúi.
Friðrik formaður setti fund og bauð ráðsfólk velkomið.
Gengið var til dagskrár:
1. Vettvangsferð í íþróttamannvirki
Fundurinn var tekin undir vettvangsheimsóknir í íþróttamannvirki þar sem þau voru skoðuð og rætt við starfsmenn þeirra. Með í för var Össur Imsland frá tækni ? og umhverfissviði sem svarði fyrirspurnum ráðsfólks og starfsmanna sem varða viðhald og framkvæmdir. Teknir voru niður punktar varðandi viðhald og óskir sem fram komu frá starfsfólki sem upplegg fyrir fyrir væntanlega fjárlagagerð.
Í Mánagarði var m.a. rætt um:
· að byggja geymsluhús við norðurhlið Mánagarðs
· stækka eldhús á kostnað litla salarins
· mála sali bæði í Mánagarði, íþróttahúsi og litla sal
· vatnsbrunn vantar þar
Íþróttahús Höfn:
· klára að ganga frá nýja gólfinu og mála gangagólf sem gamli dúkurinn er á
· filmur í glugga til að draga úr sólarljósi
· þá vöknuðu líka spurningar um framkvæmdir í búningsklefum ef hillti undir nýja sundlaug innan tíðar sem eftirvill kallaði á samtengingu nýrrar laugar og íþróttahúsins
· spáð var í staðsetningu nýrrar laugar við íþróttahús og horft á svæðið norðan við íþróttahúsið, frekar að nýta svæðið austan við íþróttahús fyrir vallarsvæði
· starfsmaður minnti á að bæta þyrfti starfsmannaaðstöðu sem væri ekki ýkja mikið mál. Þá kom aftur upp á borðið að breyting í þeim málum gætu fylgt ef ný sundlaug yrði tengd íþróttahúsi með nýju aðgengi
· huga þarf að viðhaldi á sparkvelli sem er mikið notaður
· fá annan vatnsbrunn í húsið sem nýttist íþróttasalnum
Sundlaug Hafnar:
· hún er eins og allir vita barn síns tíma og bíður eftir arftaka. Mest var rætt um dúkaskipti og fram kom hjá ráðsfólki hvort ekki væri rétt að doka við með þau þar til ákvörðun um nýja sundlaug lægi fyrir. Menn voru sammála um að þrátt fyrir smæð sína og aldur þætti gestum notalegt að koma í laugina. Ánægjulegt er til þess að vita að unglingar á aldrinum 13 til 15 ára sækja laugina vel á tímanum frá kl.16:00 ? 19:00.
Félagsmiðstöð / Sindrabær:
· gagngerar endurbætur hafa farið fram í Sindrabæ á þessu og síðasta ári. Skipt um gólfefni á neðri hæð og kvikmyndasalurinn allur tekinn í gegn. Nú þarf að mála salinn niðri og gera endurbætur á salernum
· skoða þarf nýja stöðu sem upp er komin vegna kvikmyndasýninga þar sem sýningarvélin sem nú er til staðar les ekki þær textaræmur sem á nýjum filmum eru í dag
· bæta þarf loftræstingu í kvikmyndasal
· Vatnsbrunn vantar þar Eins og ávallt er í mörg horn að líta varðandi viðhald mannvirkja og nauðsynlegt að halda þessum verðmætu eignum vel við til hagsbóta fyrir neytendur og sveitarfélagið í heild.
Fundi slitið kl. 19:00.


