Gamla - Æskulýðs- og tómstundaráð
Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 70
70. fundur
Fundur haldinn í æskulýðs- og tómstundaráði Hornafjarðar miðvikudaginn 31. ágúst. 2005 kl. 17:10.
Mætt voru: Friðrik Ingvaldsson formaður, Ragnhildur Einarsdóttir, Gunnar Ingi Valgeirsson, Þórgunnur Torfadóttir, Valdemar Einarsson og Haukur H. Þorvaldsson æskulýðs - og tómstundafulltrúi. Friðrik formaður setti fund og bauð ráðsfólk velkomið og þá sérstaklega Ragnhildi Einarsdóttur sem tekur sæti í ráðinu í stað Elsu S. Elísdóttir sem hefur flutt frá Hornafirði . Gengið var til dagskrár:
1. Starfsemi Þrykkunnar í vetur.
Reiknað er með að opna Þrykkjuna mánudaginn 5. september. Opið verður í Þrykkjunni fyrir 8.-10. bekk á mánudagskvöldum kl. 19:45 ? 22:00. Á mánudögum eru líka vikulegir fundir Þrykkjuráðs og starfsmannafundir. Á miðvikudögum verður opið frá kl. 16:00 ? 18:00 fyrir klúbbastarf. Þá verður kvöldopnun á miðvikudögum frá kl. 19:45 ? 22:00. Á föstudögum er opið frá kl. 20:00 ? 22:30. Opið verður fyrir 6. og 7. bekk Hafnarskóla á þriðjudögum frá kl. 17:00 ? 18:45. Framhaldsskólanemum verður boðið að hafa fimmtudagskvöldin og kíkja inn á mánudagskvöldum. Starfsmaður í hlutstarfi með Hauk í Þrykkjunni verður Birgir Fannar Reynisson. Birgir mun ásamt því að starfa í Þrykkjunni starfa að félagsmálum með framhaldsskólanemum á vegum FAS og Menningarmiðstöðvar. Gerður hefur verið samstarfssamningur milli félagsmiðstöðvarinnar Þrykkjunnar og Heppuskóla sem tekur á samskiptum og samstarfi í félags- og forvarnamálum. Skátastarf verður ekki í vetur nema til komi leiðbeinandi sem hefur reynslu af skátastarfi. Einn ungur maður hefur sýnt því áhuga að koma af stað skátastarfi.
2. Unglingalandsmót á Hornafirði 2007
Unglingalandsmót UMFÍ 2007 verður haldið á Hornafirði. Ljóst er að strax þarf að hefja vinnu að undirbúningi mótsins. Á næstu dögum verður skipaður framkvæmdahópur sem ætlað er það hlutverk að vinna að framkvæmd landsmótsins. Hópurinn samamstendur af starfsmönnum sveitarfélagsins , USÚ og einum fulltrúi úr æskulýðs- og tómstundaráði.
ÆTH var sammmál um að fulltrúi þess verði Þórgunnur Torfadóttir.
3. Vinnuskólinn skýrsla verkstjóra
Guðrún Einarsdóttir sem var verkstjóri í vinnuskólanum í sumar tók saman punkta um starfsemi hans í sumar. Þar kemur m.a. fram að 50 unglingar voru við störf í sumar en voru um 80 árið áður munar þar mestu að enginn 10. bekkingur var þar í vinnu utan einn. 10. bekkingar fengu margir vinnu í Skinney/Þinganesi sem réðu nú eftir nokkurt hlé unglinga til sín í sumarvinnu. Eins var meira atvinnu framboð almennt fyrir ungt fólk en undanfarið. Hafði þessi fækkun starfsfólks í vinnuskólanum það í för með sér að þeir sem voru þar fengu lengri starfsdag. Unnið var frá 09:00 ? 16:00. Í skýrslunni kemur fram að það skortir meiri fjölbreytni í starfinu. Í starfslok fengu unglingarnir umsagnir frá flokkstjórum og voru þær misjafnar eins og gengur og gerist.
4. Opnunartímar sundlaugar
Opnunartími sundlaugar breyttist frá og með 23.ágúst vegna skólasunds. Nú er opið virka daga frá kl. 07:00 ? 09:00 og 16:00 ? 20:00. Óbreyttur opnunartími um helgar til 19.september frá kl. 09:00 ? 18:00. Haukur leggur til að eftir þann tíma verði opið um helgar frá kl. 09:00 til 15:00. Í júní varð að loka lauginni í tvígang vegna leka á dúk. Vegna þessa gaf bæjarráð samþykkti fyrir að kaupa nýjan dúk í laugina. Í tengslum við athugun á nýju sundlaugarmannvirki verður jafnframt skoða hvenær verður farið í dúkskipti. Í tækjasal í kjallara þarf að taka til hendi, endurbæta undirstöður undir dælur ofl. Þá er aðstaða fyrir starfsfólk aldeilis óviðunandi. Heildaraðsókn frá opnun í janúar í ár eru 21.804 gestir en voru á sama tíma í fyrra 23.185 er samdrátturinn mestur í júnímánuði um 1000 gestir. Hafin er vinna við frumathugun á gerð og staðsetningu sundlaugarmannvirkis á vegum tæknideildar með aðkomu fleiri sem málið varðar. Reiknað er með að þessi athugun verði lokið á haustdögum. Æskulýðs- og tómstundaráð vill fá að fylgjast með þessari vinnu og koma með hugmyndir. Æskulýðs- og tómstundaráð vill minna á stefnumótun ráðsins í æskulýðs- og íþróttamálum þar sem ný sundlaug var sett sem forgangsmannvirki. Þórgunnur sagði frá því að sundæfingar og sundnámskeið hefðu verið á vegum sunddeildar í sumar og hefði aðsókn verið góð og þær gengið vel.
5. Brettarampar
Í sumar var malbikað svæði við körfuboltavöll sem er ætlað fyrir brettakrakka. Rauði krossinn vill leggja fram 400. þúsund í kaupa á römpum. Ungir brettastrákar koma reglulega og heimsækja Hauk og spyrjast fyrir um rampa og hafa skoðun á því hvað dugar til að byrja með. Haukur hefur verið að skoða hvað rampar kosta. Eitt rampasvæði með fjórum mismunandi römpum kostar t.d. rúmar 1700 þúsund krónur.
6. Forvarnamál
Eins og undanfarið hefur Haukur áhuga á að vinna með 8. bekkingum að ákveðnu forvarnaverkefni í vetur eins og undanfarið í samstarfi við Heppuskóla og einnig að athuga hvort hægt væri að fara með forvarnastarf í yngri bekki t.d. 6.-7. bekk í Hafnarskóla. Nauðsynlegt að virkja foreldra til þátttöku i forvarnastarfinu t.d. með því að varpa til þeirra skoðanakönnun um ýmsa þætti sem varða forvarnir. Leggur Haukur fram drög að slíkri könnun og leitar álits ráðsins á henni. Könnunin yrði samstarfsverkefni ÆTH, félagsmálaráðs, Hafnar - og Heppuskóla. Ráðið var samþykkt því að hrinda könnuninni í framkvæmd. Reynt verður að endurvekja VÁ Horn hópinn að nýju og hefja endurskoðun á forvarnstefnu sveitarfélagsins. Þess má geta að í sumar var staðið fyrir forvarnaauglýsingum í tengslum við Humarhátíð út á svæði í skjávarpi og með varnaðarorðum á plaggötum og í dagskrárbæklingum. Fundi slitið kl. 19:10.


