Gamla - Æskulýðs- og tómstundaráð

Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs

37. fundur

Fundur haldinn í æskulýðs- og tómstundaráði Hornafjarðar mánudaginn

28. janúar 2002 kl. 17:00 í Ráðhúsinu.



Mætt voru: Hulda Laxdal formaður, Þórgunnur Torfadóttir, Valdemar Einarsson, Valur Sveinsson, Gunnar Ingi Valgeirsson og Haukur H. Þorvaldsson æskulýðs - og tómstundafulltrúi.



Gengið var til dagskrár og gerðist þetta helst:



Formaður Hulda Laxdal setti fund og bauð fundarfólk velkomið.



1. Úthlutun styrkja.



Alls hefur 12 umsóknum um styrki verið vísað til æskulýðs- og tómstundaráðs.

Til úthlutunar eru 11. milljónir króna en frá þeirri upphæð dragast 1250 þúsundir sem er ætlað í afborgun á láni sem sveitarfélagið tók að sér að sjá um vegna rekstrarerfiðleika knattspyrnudeildar Sindra á árinu 1999. Eftir standa til úthlutunar 9.750 þúsundir. Gert er ráð fyrir því í samningi milli Golfklúbbs Hornafjarðar og sveitarfélagsins að framlag til klúbbsins vegna framkvæmda verði 2. milljónir á þessu ári og 400. þúsundir til reksturs klúbbsins og er þessar fjárhæðir teknar af styrkupphæðinni.

Hulda las upp framkomnar styrkbeiðnir.

Niðurstaða ráðsins styrkveitinga ráðsins var þessi:

Nemendafélag F.A.S. Styrkbeiðni hafnað.

Samstarfshópur um leiklistarstarf í F.A.S. Ráðið telur að umsókn um leiklistarstarfsemi falli ekki undir ráði, en er mjög ánægt með þetta framtak.

Hestamannafélagið Hornfirðingur. 280.000 kr. í viðhald vallar og 300.000 kr. í unglingastarfið.

Dansklúbburinnn Taktur fær 40.000 kr.

Fimleikadeild Sindra vegna dýnukaupa 150.000 kr.

Ráðið vill að framvegis falli áhaldakaup fimleikadeildar undir áhaldakaup í íþróttahúsi.

Stangveiðifélag Hornafjarðar fær 20.000 kr. til að standa fyrir veiðidegi fjölskyldunnar.

Skátafélagið Frumbyggjar fær 250.000 kr.

Umf. Máni. Æskulýðs- og tómstundaráð treystir sér ekki til að úthluta styrk til félagsins fyrr en gengið hefur verið frá samstarfssamningi milli sveitarfélagsins og Mána.

Briddsfélag Hornafjarðar. Styrkbeiðni hafnað.

Bútasaumsfélagið Ræmurnar. Styrkbeiðni hafnað.

Ráðið telur að þessi styrkbeiðni heyri ekki undir það.

Umf. Sindri. 1750.000 kr. í rekstur félagsins, 750.000 kr. í umsjón á leikjanámskeiðum, 150.000 kr. í sunddeild og 3.200.000 kr. í húsaleigu í íþróttahúsið á Höfn.

Í Sérsjóð voru lagðar 100.000 kr.

Óráðstafað er 360.000 kr.







Æskulýðs- og tómstundaráð vill eindregið beina því til bæjaryfirvalda að útbúin verða sérstök eyðublöð fyrir styrkumsóknir þar sem fram komi styrkbeiðni og hvaða gögn eigi að fylgja umsóknum. Ráðið vill að sent verði bréf með úthlutun styrkja um að ráðið afgreiði ekki umsóknir nema að fylgi reikningar og starfsskýrsla.



2. Úthlutun úr Sérsjóði ÆTH. 2001



Ákveðið var að eftirtaldir einstaklingar hljóti styrk úr Sérsjóði ÆTH:

Lena Marteinsdóttir hestaíþróttir, Jóna Stína Bjarnadóttir hestaíþróttir, Bjarni Malmquist Jónsson frjálsar íþróttir og Einar Smári Þorsteinsson knattspyrna.

Hvert þessara ungmenna fær 20.þúsund krónur í styrk.

Ráðið felur Hauk að ræða við U.S.Ú. um tilhögun á framkvæmd við val á íþróttamönnum og íþróttamanni Hornafjarðar.



3. Framkv. v/sundlaug, gjaldskrá samþykkt.



4. milljónum hefur verið ráðstafað á fjárlögum þessa árs í framkvæmdir til að bæta aðstöðu sundlaugarinnar bæði fyrir starfsmenn og gesti. Æskulýðs- og tómstundaráð samþykkir að af þeirri upphæð fari 300.þúsundir til þess að gera hagkvæmnisathugun á því að endurbæta sundlaugina þannig að hún geti þjónað gestum laugarinnar sem best. Óskar ráðið eftir því að tæknideild sveitarfélagsins vinni verkið og skili útkomu svo fljótt sem auðið er. Vífill Karlsson sundlaugarstjóri mætti á fund og veitti upplýsingar um ýmsa þætti í sundlauginni sem ráðið spurði um.

Bæjarstjórn hefur samþykkt tillögu æskulýðs- og tómstundaráðs um hækkun á gjöldum í sundlaugina frá og með opnun sundlaugar í febrúar sem hér segir: almennt gjald fullorðinna hækki úr 230 kr. í 250 kr. og 15 miða kort fullorðinna hækki úr 2300 kr. í 2500 kr., 15 miða barna- og unglingakort hækki úr 1000 kr. í 1200 kr., árskort fullorðina hækki úr 16000 kr. í 17000 kr., leiga á sundfötum hækki úr 150 kr. í 200 kr. og gjald í sturtu hækki úr 100 kr. í 150 kr.

Almennt barna og unglingagjald verði óbreytt kr. 100.

Ráðið samþykkir að sundlaugin verði opnuð laugardaginn 9. febrúar.





4. Stefnumótunarvinnan



Hulda greind frá því að fyrirhugað væri að halda fjóra fundi með ýmsum aðilum úr sveitarfélaginu til að móta stefnu í æskulýðs- íþrótta og tómstundamálum. Stefnumótunarhópurinn úr ráðinu sér um framkvæmd þeirra og hefur fengið Stefán Ólafsson framkvstj. fræðslu og félagssviðs til að stjórna fundunum. Fyrsti fundurinn var haldinn sl. miðvikudag og var þar farið yfir stöðu mála í málaflokknum í dag.

Næsti fundur verður haldinn í Hafnarskóla nk. miðvikudag.











Fundi slitið kl. 20:00.



Hulda Laxdal Hauksdóttir. Haukur H. Þorvaldsson.

Þórgunnur Torfadóttir.

Gunnar Ingi Valgeirsson.

Valur Sveinsson.

Valdemar Einarsson.





Fundargerðir

Dag.grein
16.02.2012 Fundarplan nefnda 2012
19.05.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 100
22.04.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 99
27.03.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 98
21.02.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 97
17.01.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 96
13.12.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 95
15.11.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 94
18.10.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 93
20.09.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 92
03.09.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 91
26.06.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 90
04.06.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 89
30.04.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 88
26.03.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 87
05.03.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 86
22.01.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 85
27.11.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 84
23.10.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 83
23.10.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 83
25.09.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 82
28.08.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 81
28.06.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 80
22.05.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 79
03.05.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 78
27.03.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 77
27.02.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 76
23.01.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 75
22.01.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 85
05.12.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 74
10.11.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 73
24.10.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 72
26.09.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 71
21.09.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 70
23.05.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 69
25.04.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 68
06.04.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 67
28.02.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 66
24.01.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 65
22.11.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 64
25.10.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 63
27.09.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 62
01.09.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 61
24.05.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 60
26.04.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 59
22.03.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 58
01.03.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 57
26.01.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 56
04.12.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 55
20.10.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 54
22.09.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 53
25.08.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 52
26.05.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 51
05.05.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 50
24.03.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 49
24.02.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 48
27.01.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 47
17.12.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.11.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
28.10.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
23.09.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
26.08.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
22.05.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
22.04.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.03.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.02.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
28.01.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica