Gamla - Æskulýðs- og tómstundaráð

Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs

39. fundur

Fundur haldinn í æskulýðs- og tómstundaráði Hornafjarðar mánudaginn

25. mars 2002 kl. 17:00 í Ráðhúsinu.



Mætt voru: Hulda Laxdal formaður, Ólöf Guðmundsdóttir, Gunnar Ingi Valgeirsson, Ástríður Sveinbjörnsdóttir, Valdemar Einarsson, Valur Sveinsson, Ingibjörg Guðmundsdóttir og Haukur H. Þorvaldsson æskulýðs - og tómstundafulltrúi.





Gengið var til dagskrár og gerðist þetta helst:



Formaður Hulda Laxdal setti fund og bauð fundarfólk velkomið.



1. Samningar við félög Umf. Sindra og Umf. Mána skoðaðir.



Nú liggur fyrir að endunýja samning við Umf. Sindra. Í samningi hefur aðallega verið tekið á þremur þáttum , rekstri félagsins almennt , leikjanámskeiði og umhirðu Sindravalla.

Ekki hefur legið fyrir samningur við Umf. Mána undanfarin ár og vill ráðsfólk sjá þar breytingu á.

Ráðið vill ítreka að fyrri samþykktir að sami aðili sjái um hirðingu og umsjón bæði

Sindra- og Mánavalla og það sé gert eftir þeim reglum sem lúta að hirðingu grasvalla.

Ljóst er að stjórn Mána vill ekki una því að sama stjórn sé yfir báðum völlunum, þessvegna hefur þessi skoðun ÆTH. ekki náð fram að ganga og er málið í hnút.

Í fyrra sá einkaaðili um slátt og áburðargjöf á Sindravöllum og slátt að hluta til á Mánavöllum sem Sindri greiddi fyrir, kom það vel út. Ráðið beinir því til bæjaryfirvalda að það beiti sér fyrir lausn á þessum málum sem allra fyrst svo allir megi vel við una.

Knattspyrnudeild Sindra hefur áhuga á að vera með leikjanámskeiðin í sumar eins og undangengin ár og er verið að vinna að ráðningu starfsmanna.

Valdemar formaður knd. Sindra sagði frá því að deildin stæði að Humarhátíð í ár ásamt öðrum ef samningar við sveitarfélagið og aðra nást.

Hátíðin verður fyrstu helgina í júlí.

Ekki komu fram neinar óskir um breytingar á samningi Sindra frá ráðinu.





2. Stefnumótunarvinna.



Hulda sagði frá fundi um stefnumótunina í síðustu viku þar var Hauki falið að hafa forgöngu um þá vinnu sem eftir er og nýtur hann liðsinni Stefáns Ólafssonar framkv.stj. fræðslu og félagssviðs. Ljóst er að þeirri vinnu verður ekki lokið fyrir páska eins og stefnt var að.



















3. Önnur mál.



Valdemar spurðist fyrir um hvort hann mætti hefja framkvæmdir eftir þeirri samþykkt sem ráðið gerði um að Sindravellir verði eitt grassvæði en fram hefði komið í stefnumótunarvinnunni að fólk vill frekar sjá þar alhliða keppnisvöll. Ráðið telur að samþykktin standi þar til stefnumótunin verði samþykkt með eða án alhliða keppnisvelli.

Valur greindi frá því að verið væri að vinna í sundlaugarmálum og niðurstaða fengist fljótlega eftir páska.

Haukur sagði frá þemavika í Heppuskóla sem fram fór í síðustu viku. Það var fjallað um áfengi, tóbak, eiturlyf, kynlíf. sjálfsmynd og fjölmiðlun var tengd inn í alla þessa þættina. Tókst þetta verkefni vel að sögn unglinga og kennara.









Fundi slitið kl. 18:55.



Hulda Laxdal Hauksdóttir. Haukur H. Þorvaldsson.

Ólöf Guðmundsdóttir.

Ingibörg Guðmundsdóttir.

Ástríður Sveinbjörnsdóttir.

Gunnar Ingi Valgeirsson

Valur Sveinsson.

Valdemar Einarsson.


Fundargerðir

Dag.grein
16.02.2012 Fundarplan nefnda 2012
19.05.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 100
22.04.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 99
27.03.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 98
21.02.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 97
17.01.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 96
13.12.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 95
15.11.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 94
18.10.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 93
20.09.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 92
03.09.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 91
26.06.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 90
04.06.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 89
30.04.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 88
26.03.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 87
05.03.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 86
22.01.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 85
27.11.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 84
23.10.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 83
23.10.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 83
25.09.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 82
28.08.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 81
28.06.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 80
22.05.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 79
03.05.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 78
27.03.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 77
27.02.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 76
23.01.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 75
22.01.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 85
05.12.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 74
10.11.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 73
24.10.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 72
26.09.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 71
21.09.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 70
23.05.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 69
25.04.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 68
06.04.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 67
28.02.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 66
24.01.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 65
22.11.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 64
25.10.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 63
27.09.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 62
01.09.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 61
24.05.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 60
26.04.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 59
22.03.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 58
01.03.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 57
26.01.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 56
04.12.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 55
20.10.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 54
22.09.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 53
25.08.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 52
26.05.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 51
05.05.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 50
24.03.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 49
24.02.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 48
27.01.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 47
17.12.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.11.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
28.10.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
23.09.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
26.08.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
22.05.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
22.04.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.03.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.02.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
28.01.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica