Gamla - Æskulýðs- og tómstundaráð

Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs

44. fundur

Fundur haldinn í æskulýðs- og tómstundaráði Hornafjarðar mánudaginn

28. október 2002 kl. 17:00 í fundarsal Ráðhúss.



Mætt voru: Friðrik Ingvaldsson formaður, Gunnar Ingi Valgeirsson, Valdemar Einarsson, Þórgunnur Torfadóttir, Elsa S. Elisdóttir og Haukur H. Þorvaldsson æskulýðs - og tómstundafulltrúi.





Gengið var til dagskrár og gerðist þetta helst:



1. Opnunartímar sundlaugar Hafnar sumar 2003.

Haukur lagi fyrir ráðið tillögu að opnunartímum sundlaugar á næsta sumri. Opið verði á virkum dögum frá kl. 07:00 – 20:30 og um helgar frá kl. 09:00 – 18:00. Þetta er sami opnunartími og undanfarin ár. Ráðið vill að opnunartími sé ekki skertur á Humarhátíð að öðru leiti geriri ráðið ekki athugasemd við opnunina.

Þá greindi Haukur frá því að gengið hefði verið frá ráðningu Ingvars Þórðarsonar í stöðu sundlaugarstjóra sem auglýst var á dögunum. Fjórar umsóknir bárust. Vífill Karlsson hefur látið af störfum í sundlauginni og er honum þökkuð mjög vel unnin störf í sundlauginn þau 9 ár sem hann hefur starfað þar. Tímabundið hefur veri ráðið í hálfa stöðu í sundlauginni og frá og með næsta starfsári losnar staða sundlaugarvarðar við laugina þar sem Guðný Böðvarsdóttir sem er nú í hálfri stöðu hefur sagt starfi sínu lausu.



2. Fundur Fræðslu- og félagssviðs og ÆTH.

Greint var frá fundi fræðslu- og félagssviðs og æskulýðs- og tómstundaráðs með foreldrum barna sem haldinn verður í Sindrabæ þriðjudaginn 29. október. Á fundinum flytur Birgir Þ. Kjartansson félagsmálastjóri framsögu, Haukur H. Þorvaldsson æskulýðs- og tómstundafulltrúi talar um starfsemi Þrykkjunnar og Jón Garðar Bjarnason aðstoðarvarðstjóri lögreglunnar á Hornafirði talar um útivistarreglur og úrræði og leiðir hvað þær varða. Þá verður kynning á starfi foreldrafélaga. Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs stýrir fundinum.





3. Félagsleg staða ungmenna 16 ára og eldri á Hornafirði.

Undir þessum lið komu góðir gestir á fundinn þau, Jón Garðar Bjarnason aðstoðarvarðstjóri lögreglunnar, Ágúst Reynisson og Sandra Olgeirsdóttir frá nemendaráði FAS , Steingerður Hreinsdóttir kennari í FAS og Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs. Formaður bauð gestina sérlega velkomna á fundinn og sagði að aðdragandinn að þessari umræðu sem færi fram hér á eftir væri bréf frá Jóni Garðari Bjarnasyni á Höfn þar sem kemur fram áhugi hans á að stofnað til starfs með unglingum fyrir 16 ára og eldri með tilkomu unglingahúss. Jón Garðar segir í bréfinu að hann hafi um skeið horft í kringum sig eftir raunhæfum lausnum á þeim vanda sem óneitanlega er til staðar í málefnum ungmenna á fyrrgreindum aldri og þá sérstaklega það sem varðar afþreyingu fyrir þennan aldurshóp. Jón Garðar leggur til í bréfinu að stofnuð verði nefnd í samvinnu lykilaðila s.s. bæjaryfirvöld, lögreglu, Rauðakrossdeild Hornafjarðar einnig komi unglingar og foreldrar að þessu.

Jón Garðar fékk orðið og fór yfir sínar hugleiðingar sem fram komu í bréfinu og lagði áherslu á atriði sem fram komu þar eins og húsnæði (kaffihús) og að áhugafélög ofl. kæmu að starfinu og að þetta væri forvarnarverkefni fyrir marga. Öll starfsemi og vinna við húsnæðið yrði í höndum unglinganna og starfsemin væri í höndum húsráðs og starfandi yrði fastur starfsmaður.

Stefán Ólafsson tók til máls og spurði hvort hægt væri að horfa til húsnæðis sem fyrir er á Höfn til að nýta í tengslum við þetta en leggja meiri áherslu á starfið. Stefán spurði hvort FAS fengi enga peninga til að halda úti forvarnafulltrúa. Steingerður sagði að búið væri að ráða starfsmann í hlutastarf til að vinna með nemendum. Söndru og Ágústi leist vel á framkomnar hugmyndir. Friðrik spurði hvernig félagslífi er háttað hjá nemendum í FAS í dag. Þau eru með kaffihúsa- og vídeókvöld og Busaball, þeim finnst að auglýsa þyrfti viðburði betur og eins að yrði meira mark tekið á þeim unglingum sem eru í forsvari. Elsa spurði hvort ekki vantaði einhvern drifkraft t.d. í skólanum til að drífa nemendur áfram..Valdemar vakti athygli á að það væru fleiri á þessum aldri en þeir sem væru í mennta- eða framhaldsskólum og það þyrfti taka þá inn í myndina. Jón Garðar taldi nauðsynlegt að einhver miðja væri þar sem unglingarnir kæmu saman. Sandra tók undir orð Jóns Garðars. Þórgunnur sagðist ekki vera á móti húsi en vildi skoða hvort ekki væri ekki hægt að nýta það sem fyrir er og þá sérstaklega nýtt húsnæði FAS. Elsa sagði mjög mikilvægt að sem öflugast félagsstarf fari fram í skólanum hafði góða reynslu af því í Menntaskólanum á Egilsstöðum. Sandra segir að þurfi kjarna og hann geti vel byrjað og verið í skólanum. Jón Garðar segir að sér húsnæði væri heimili unglinganna. Haukur sagði að mikil vakning væri nú á landinu að huga að málefnum þessa aldurshóps. Hann sagði frá erindum sem unglingar fluttu á málþingi austur á Héraði þar sem þeir segja að aðstað og bakland verði að vera til staðar og eins að í þeim bæjarfélögum sem eru með mennta- og framhaldsskóla sé iðandi félagslíf en oft er þrengt að aðstöðu innan skólanna sem notuð er fyrir félagsstarfið. Aðeins var komið inn á erfiðleika við að halda 16.ára böll. Friðrik sagði í lokin að ráði fæli starfsmanni sínum að huga áfram að þessum málum í samráði við æskulýðs- og tómstundaráð. Friðrik þakkað gestum og fundamönnum öðrum fyrir góðann fund.





Fundi slitið kl. 19:15.



Friðrik Ingvaldsson. Haukur H. Þorvaldsson.

Þórgunnur Torfadóttir.

Gunnar Ingi Valgeirsson.

Valdemar Einarsson.

Elísa S. Elisdóttir.


Fundargerðir

Dag.grein
16.02.2012 Fundarplan nefnda 2012
19.05.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 100
22.04.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 99
27.03.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 98
21.02.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 97
17.01.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 96
13.12.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 95
15.11.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 94
18.10.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 93
20.09.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 92
03.09.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 91
26.06.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 90
04.06.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 89
30.04.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 88
26.03.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 87
05.03.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 86
22.01.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 85
27.11.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 84
23.10.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 83
23.10.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 83
25.09.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 82
28.08.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 81
28.06.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 80
22.05.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 79
03.05.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 78
27.03.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 77
27.02.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 76
23.01.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 75
22.01.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 85
05.12.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 74
10.11.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 73
24.10.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 72
26.09.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 71
21.09.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 70
23.05.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 69
25.04.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 68
06.04.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 67
28.02.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 66
24.01.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 65
22.11.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 64
25.10.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 63
27.09.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 62
01.09.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 61
24.05.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 60
26.04.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 59
22.03.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 58
01.03.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 57
26.01.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 56
04.12.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 55
20.10.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 54
22.09.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 53
25.08.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 52
26.05.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 51
05.05.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 50
24.03.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 49
24.02.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 48
27.01.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 47
17.12.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.11.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
28.10.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
23.09.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
26.08.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
22.05.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
22.04.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.03.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.02.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
28.01.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica