Gamla - Æskulýðs- og tómstundaráð

Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 48

48. fundur

Fundur haldinn í æskulýðs- og tómstundaráði Hornafjarðar mánudaginn

24. febrúar 2003 kl. 20:00 í fundarsal Ráðhúss.

Mætt voru: Friðrik Ingvaldsson formaður, Gunnar Ingi Valgeirsson, Valdemar Einarsson, Þórgunnur Torfadóttir, Elsa S. Elísdóttir og Haukur H. Þorvaldsson æskulýðs - og tómstundafulltrúi.

Friðrik formaður setti funda og bauð ráðsfólk velkomið.


Gengið var til dagskrár:

1. Stefnmótunin, kostnaðaráætlun mannvirkja kynnt.

Að beiðni bæjarráðs hefur Tækni- og umhverfissvið unnið frumkostnaðaráætlun sem tekur til þeirra framkvæmda sem um er getið í drögum að stefnumótun í æskulýðs- íþrótta - , og tómstundamálum á Hornafirði. Valur Sveinsson frá tækni- og umhverfis sviði fór yfir áætlunina á fundinum. Kostnaðaráætlun náði yfir Sindravelli, malar- og keppnisvöll, gervigrasvöll, skemmu yfir gervigrasvöllinn, bílastæði og sundlaug, andyri og búningsaðstöðu sem þjónar sundlaug, íþróttahúsi og gervigrasvellinum. Valur sagði að það bæri að taka þessari áætlun með miklum fyrirvara þar sem engin hönnun mannvirkja lægi fyrir.



2. Íþróttamaður Hornafjarðar, drög að reglugerð.

Kynnt voru drög að reglugerð fyrir vali á Íþróttamanni Hornafjarðar. Haukur hélt fund með forystu U.S.Ú. á þann fund komu Guðrún Þorsteinsdóttir og Jón Gunnar Gunnarsson. Kynnti Haukur þau drög sem lögð eru fram hér og fannst þeim þau vel geta gengið og ætlaði Jón að kynna þau nánar fyrir forystu U.S.Ú. Æskulýðs- og tómstundaráð samþykkir fyrir sitt leit drögin sem eru til umfjöllunar með áorðnum orðalagsbreytingum. Ráðið leggur til að þessar reglur verði lagðar fyrir næsta ársþing U.S.Ú. til umræðu.


Reglugerð fyrir val á


ÍÞRÓTTAMANNI ÁRSINS Á HORNAFIRÐI


grein.

Æskulýðs- og tómstundaráð Hornafjarðar gengst ár hvert fyrir útnefningu á Íþróttamanni ársins á Hornafirði.

2. grein

Tilnefningar skulu koma frá öllum aðildafélögum U.S.Ú. á Hornafirði. Tilnefningar skulu berast til æskulýðs- og tómstundaráðs fyrir 15. desember ár hver. Skilyrði fyrir valinu er að viðkomandi íþróttamaður keppi fyrir hönd U.S.Ú

grein.

Í janúar ár hvert afhendir æskulýðs- og tómstundaráð íþróttamaður ársins farandgrip sem hann hefur í vörslu sinni út árið.Á farandgripinn skal ritað nafn íþróttamannins, ártal. Íþróttamanni ársins er jafnframt veitt viðurkenning til eignar

grein

Æskulýðs- og tómstundaráð veitir þeim viðurkenningar sem tilnefndir eru íþróttamenn ársins í hverri íþróttagrein fyrir sig.

grein

Viðurkenningar eru einnig veittar fyrir landsliðssæti ( unglinga-, karla- eða kvenna ) eða aðilum sem unnið hafa framúrskarandi vel að íþrótta- og æskulýðsmálum á Hornafirði.

grein

Afhending viðurkenninganna skal fara fram með þeirri viðhöfn sem æskulýðs- og tómstundaráð ákveður hverju sinni.



3. Úthlutunarreglur fyrir styrki ,drög að reglugerð.



Lögð voru fram drög að reglum fyrir úthlutun styrkja á vegum æskulýðs- og tómstundaráðs. Voru reglurnar samþykktar með smá orðalagsbreytingum.

Úthlutunarreglur vegna framlaga til íþrótta- tómstunda- og æskulýðsmála á Hornafirði


1.gr.



Úthlutað er styrkjum til íþrótta- tómstunda- og æskulýðsmála í samræmi við fjárhagsáætlun Hornafjarðar hverju sinni. Við úthlutun skal haft að leiðarljósi að stuðlað sé að fjölbreytileika í íþrótta- tómstunda- og æskulýðsstarfi í sveitarfélaginu.



2.gr.



Í nóvember ár hvert skal auglýst eftir umsóknum um styrki fyrir næsta fjárlagaár. Úthlutun styrkja skal að jafnaði miðast við lok janúar.



3.gr.



Um styrki geta sótt félög og aðilar sem sinna íþrótta- tómstunda- og æskulýðsstarfi í sveitarfélaginu eða hafa með höndum aðra sambærilega starfsemi.

4.gr.



Æskulýðs- og tómstundaráð Hornafjarðar gerir tillögur að úthlutun samkvæmt reglum þessum að loknum umsóknarfresti.



Umsókn skal fylgja:

a. Yfirlit yfir fjárhagsstöðu umsækjanda, og deilda hans ef við á, fyrir síðastliðið ár.

b. Yfirlit yfir fjölda virkra iðkenda og aldursskiptingu þeirra.

c. Fjárhagsáætlanir umsækjanda, og deilda hans ef við á, fyrir árið.

d. Áætlanir um umfang starfsins.

Við úthlutun verður einnig litið til:

a. Markmiða umsækjanda í æskulýðsstarfi.

b. Menntunar og reynslu leiðbeinenda, ásamt markmiðum með starfi þeirra.

c. Fjölbreytni og umfangs verkefna.

d. Virkni félagslegs starfs.

5. gr.



Þau félög sem eru deildarskipt sækja um styrk fyrir sínar deildir. Ekki er úthlutað sérstaklega til deilda heldur skal viðkomandi félag ráðstafa þeim fjármunum sem það fær í styrk, sjálft til deildanna eftir reglum hvers félags fyrir sig.



Fundi slitið kl. 22:00.



Friðrik Ingvaldsson. Haukur H. Þorvaldsson.

Þórgunnur Torfadóttir.

Gunnar Ingi Valgeirsson.

Valdemar Einarsson.

Elsa S. Elísdóttir


Fundargerðir

Dag.grein
16.02.2012 Fundarplan nefnda 2012
19.05.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 100
22.04.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 99
27.03.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 98
21.02.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 97
17.01.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 96
13.12.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 95
15.11.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 94
18.10.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 93
20.09.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 92
03.09.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 91
26.06.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 90
04.06.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 89
30.04.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 88
26.03.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 87
05.03.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 86
22.01.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 85
27.11.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 84
23.10.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 83
23.10.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 83
25.09.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 82
28.08.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 81
28.06.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 80
22.05.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 79
03.05.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 78
27.03.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 77
27.02.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 76
23.01.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 75
22.01.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 85
05.12.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 74
10.11.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 73
24.10.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 72
26.09.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 71
21.09.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 70
23.05.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 69
25.04.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 68
06.04.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 67
28.02.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 66
24.01.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 65
22.11.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 64
25.10.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 63
27.09.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 62
01.09.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 61
24.05.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 60
26.04.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 59
22.03.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 58
01.03.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 57
26.01.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 56
04.12.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 55
20.10.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 54
22.09.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 53
25.08.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 52
26.05.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 51
05.05.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 50
24.03.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 49
24.02.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 48
27.01.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 47
17.12.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.11.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
28.10.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
23.09.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
26.08.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
22.05.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
22.04.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.03.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.02.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
28.01.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica