Gamla - Æskulýðs- og tómstundaráð
Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 69
69. fundur
Fundur haldinn í æskulýðs- og tómstundaráði Hornafjarðar mánudaginn 23. maí 2005 kl. 17:10.
Mætt voru: Friðrik Ingvaldsson formaður, Gunnar Ingi Valgeirsson, Elsa S. Elísdóttir og Haukur H. Þorvaldsson æskulýðs - og tómstundafulltrúi. Friðrik formaður setti fund og bauð ráðsfólk velkomið.
Gengið var til dagskrár:
1. Vinnuskólinn í sumar
Bæjarráð hefur samþykkt þau drögin sem ÆTH samþykkti á síðasta fundi sínum um skipan mála vinnuskólans. Reiknað er með að vinnuskólinn byrji mánudaginn 13.júní nk.og standi yfir í 8 vikur og mæta unglingarnir í 8.- 10. bekk allir til starfa þann dag. Gert er ráð fyrir eins og staðan er í dag að hægt verði að veita unglingunum 6 tíma á dag í fjóra virka daga og 3 tíma á föstudögum. Verkstjóri vinnuskólans verður Eva Lind Björnsdóttir. Æskulýðs- og tómstundaráð leggur til að lokafrestur til að sækja um vinnuskólansverði auglýstur í fjölmiðlun. Þá verða skólagarðar starfræktir í sumar eins og undanfarið. Fáar umsóknir hafa enn borist gróðurreiti.
2. Bréf frá sunddeild Sindra
Lagt var fyrir fundinn bréf frá sunddeild Sindra þar sem greint er frá því að deildin hefur farið fram á að fá sundæfingar í sundlauginni í sumar alla virka daga frá kl. 09:00 ? 12:00. Forsvarsmenn sundlaugarinn hafa lagt til tímann frá kl. 09:00 ? 11:00 og eins æfingatíma á kvöldin frá kl. 20:30 ? 21:30. Sunddeildin er ekki sátt við að fá ekki úthlutað æfingatímum eins og hún fór fram á og óskar eftir afstöðu ÆTH vegna þessa máls. Æskulýðs- og tómstundaráð leggur til að sundæfingar verði í sundlauginni í júnímánuði og viku af júlí á tímabilinu frá kl. 09:00 ? 12:00. Sunddeildin reynir eftir fremsta megna að hliðra til á æfingum ef mikil aðsókn verður að lauginni á þessum tíma.Í júlí og fram í ágúst verða sundæfingatímar frá kl.09:00 ? 11:00. Haukur greindi frá því að Lars Andrésson Miðtúni 19 Höfn hefur verið ráðinn sem sundlaugarvörður. Þrjár umsóknir um stöðuna bárust.
3. Umhirða íþróttavalla
Umræður hafa verið uppi um umhirðu á Sindravöllum m.a. hvort sveitarfélagið ætti að taka hana upp á sína arma að hluta en undanfarin ár hefur umf. Sindri annast hana. ÆTH finnst rétt að sveitafélagið geri samning við fagaðila um að sjá um umhirðu íþróttavallanna til 3 til 5 ára. Hann sjái um áburðargjöf, götun, söndun, slátt og hann metur einning hvort völlur er hæfur til notkunar. Hann sæki námskeið í umhirðu íþróttavalla sem KSÍ heldur árlega og hafi við sláttinn valsaslátturvél og einning umráð yfir götunarvél. Knd. Sindra sjái áfram um merkingu vallanna, umhugsun um mörkin, vökvun og ruslatínslu. Á fundi í bæjarráði þar sem fundargerð ÆTH um vallarmál var tekin til umfjölluna var bæjarstjóra falið að vinna málið á þessum nótum.
4. Forvarnir
Aðalfundur forvarnaverkefnisins Vertu til sem er haldið úti af sveitarfélögum var haldinn í byrjun maí. Haukur sótti fundinn. Er þetta verkefni til þriggja ára og á því að ljúka í haust ef því verður ekki framlengt. Var að heyra á fundargestum að reynsla af verkefninu hefði verið góð og var hvatt til að það héldi áfram. Á fimmtudaginn lauk formlega forvarnaverkefni sem 8. bekkingar í Heppuskóla hafa unnið við í vetur undir handleiðslu Árna Péturs Hilmarssonar kennara í Heppuskóla og Hauks Helga Þorvaldssonar með athöfn í Þrykkjunni. Verkefnið fólst í því að nemendurnir gerðu handrit að myndbandsauglýsingu sem þau síðan tóku upp, klipptu og léku í. Voru öll myndböndin sex sýnd við athöfnina og öllum nemendum afhentar viðurkenningar og tveimur hópum verðlauna fyrir verkefni sín. Auk 8. bekkinga voru viðstaddir athöfnina nemendur úr 9. bekk og einnig nemendur úr 7.bekk í Hafnarskóla.
5. Brettaaðstaða
Hornafjarðardeild Rauðakross Íslands á Höfn hefur sent bæjaryfirvöldum bréf þar sem minnt er á boð frá deildinni um að leggja fram ákveðið fjármagn til að aðstoða við að koma upp aðstöðu fyrir brettaáhugakrakka á Höfn. Þar sem nú er verið að malbika götur og svæði víða í bænum er spurt í bréfinu hvort nú sé ekki lag að leggja malbik á svæði hér á Höfn sem mætti nýtast brettafólkinu. Bæjarráð tók erindið fyrir og fól tækni- og umhverfissviði og æskuýðs- og tómstundafulltrúa að gera tillögur í málinu. Horft hefur verið eftir svæðum og er helst í umræðunni að hafa svæðið á skólalóð eða innan íþróttasvæðis. Þá er líka brýn nauðsyn að til staðar séu rampar á svæðið svo það virki. ÆTH leggur til að körfuboltasvæðið niður að gosbrunni verði tekið undir brettavöll og körfuboltastangir færðar út á hástökkssvæðið við íþróttavöll. 6. Sumarbæklingur Haukur upplýsti að næstum allt efni og myndir væru komnar í sumarbæklinginn nema frá umf. Sindra. Reiknar hann með að bæklingurinn verði tilbúinn um næstu helgi.
7. Önnur mál.
Haukur kynnti bréf frá Matthildi Ásmundardóttir sjúkraþjálfara þar sem hún hefur áhuga á að fara af stað með stafagöngunámskeið fyrir bæjarbúa. Leitar hún eftir liðstyrk frá sveitarfélaginu um aðstoð við að kaupa stafi. ÆTH finnst þetta spennandi mál en hefur ekki fjármagn til að aðstoða við kaup á stöfum en vísar málinu til bæjarráðs. Þar sem þetta er síðasti fundur sem Elsa S. Elísdóttir situr að sinni eru henni þökkuð góð og gagnleg samskipti sem fulltrúa í æskulýðs-og tómstundaráði. Er henni óskað velfarnaðar í störfum sínum í öðru byggðarlagi.
Fundi slitið kl. 19:00.


