Gamla - Æskulýðs- og tómstundaráð

Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 50

50. fundur

Fundur haldinn í æskulýðs- og tómstundaráði Hornafjarðar mánudaginn

05. maí 2003 kl. 17:10 í fundarsal Ráðhúss.



Mætt voru: Friðrik Ingvaldsson formaður, Gunnar Ingi Valgeirsson, Þórgunnur Torfadóttir, og Haukur H. Þorvaldsson æskulýðs - og tómstundafulltrúi.







Friðrik formaður setti funda og bauð ráðsfólk velkomið.


Gengið var til dagskrár:





1. Breytingar við stefnumótun.

Á fundi Bæjarstjórnar Hornafjarðar 2. apríl 2003 voru drög að ?Stefnumótun í æskulýðs-, íþrótta- og tómstundamálum á dagskrá og var eftirfarandi bókað af því tilefni: Eyjólfur lagði fram tilllögu um að undir liðnum önnur félög verði talin upp Leikfélag Hornafjarðar og önnur leiklistarstarfsemi. Einnig að þar sem rætt er um ýmsa æskulýðsstarfsemi bætist við: Könnuð verði þörf fyrir aðstöðu 16-25 ára ungmenna , svonefnt ungmennahús. Reynir gerði tillögu um að fram komi í stefnumótuninni að skotfélaginu verði útveguð æfingaaðstaða. Reynir benti á að bæta þurfi Björgunarsveitinni Kára í upptalningu félaga. Bæjarráð samþykkti stefnumótunina með breytingatillögu frá Eyjólfi samhljóða. Athugasemd Reynis um skotfélagið var vísað til umfjöllunar í Æskulýðs- og tómstundaráði.

Ráðið mælir með því að í framtíðinni verði skotfélaginu útvegað svæði fyrir sína starfsemi.



2. 50 ára afmæli Sundlaugar Hafnar.

Á næstkomandi Sjómannadag eru liðin 50 ár frá því sundlaugin var formlega tekin í notkun. Haukur lagði fram drög að afmælisdagskrá og samþykkti nefndin þau.



3. Ungmennahús, ráðstefna.

Í lok marsmánaðar var haldinn í Hinu Húsinu í Reykjavík sameiginlegur fundur ungmennahúsa sem bar yfirskriftina ?Ungmennahús 16-25 ára?. Jón Garðar Bjarnason lögreglmaður og formaður vinnunefndar um ungmennahús á Hornafirði sótti fundinn að beiðni Æskulýðs- og tómstundaráðs. Jón Garðar mætti á fund ráðsins og greindi frá því helsta sem fram fór á fundinum um ungmennahús. Á fundinn mættu fulltrúar ýmissa sveitarfélaga og félagasamtaka víðsvegar að af landinu og ræddu um ungmennastarf tengdu ungmennahúsum. Tilgangur fundarins var að koma fólki saman sökum mikillar vakningar í þjóðfélaginu um stöðu ungmenna á aldrinum 16 ? 25 ára og þeirrar staðreyndar að víða hefur þessi hópur orðið útundan í skipulagðri félags- og mennngarstarfsemi. Fram kom á fundinum að fólki finnst mikil þörf fyrir hús af þessu tagi. Það ýtti undir mennigarstarf án vímuefna. Verkefnið Þjóðvegur 1. sem er samstarfsverkefni allra ungmennahúsa á landinu fer hringferð um landið þar sem húsin á hverjum stað verða heimsótt og einning verður fundað með aðilum sem eru með í bígerð að koma upp aðstöðu. Hópurinn kemur til Hornafjarðar 25 júlí. Það var nokkuð gegnumgangandi að mati Jóns Garðars að fólk leit til sveitarfélaganna með fjármagn og annað. Þótti mörgum sveitarfélögin vænlegust til að leggja til fjármagn til lengri tíma litið í þessa starfsemi og einning að þau hefðu á að skipa faghópum sem tengdust þessum málum. Auk þess sem samfélögin á hverjum stað kæmi hverju og einu sveitarfélagi fyrir sig mest við og því til hagsbóta að stýra og efla unglingamenningu á hverjum stað. Ungmennahús veitir tækifæri til að starfa með ungu fólki innan frá. Stóra málið er að finna aðstöðu og fjármagn til að reka svona ungmennahús. Jón Garðar telur verkefnið ekki geta orðið að veruleika nema með aðkomu sveitarfélagsins. Jón Garðar þakkaði fyrir að hafa fengið tækifæri til að sækja fundinn. Þakkaði ráðið Jóni Garðari fyrir greinagóða skýrslu og áhuga á þessum málum og er reiðubúið að styðja við starf vinnunefndarinnar og leggur til að mótuð verði framtíðarsýn sem tekur heilstætt á málefnum ungs fólks á Hornafirði og sú vinna hefjist strax í haust. Þá leggur ráðið áherslu á að málið sé unnið vel áður en starfsemin hefst.



4. Starfsemi Vinnuskólans í sumar.

Valur Sveinsson deildarstjóri á Tækni-og umhverfissviði kom á fundinn og fór yfir stöðu Vinnuskólans í sumar. Búið er að senda könnunarblöð til 9. og 10. bekkinga í Heppuskóla um hvort þau ætli sér að vinna í Vinnuskólanum í sumar. Eftir þá könnun kemur í ljós hvort hægt er að útvega 8. bekkingum vinnu. Valur sagði að búið væri að ráða yfirverkstjóra. 39 umsóknir hafa borist í 16 störf í slátturhóp og flokksstjóra en þeir starfsmenn eru 17 ára og eldri. Staðan verður kynnt bæjarráði í vikunni. Ráðið leggur áherslu á að reynt verði eftir fremsta megni að 8. bekkingar fái vinnu að öðrum kosti kallar það á að finna þeim einhverjar tómstundir í sumar.



Opnun félagsmiðstöðvar í sumar.

Haukur lagði til að opið verði einu sinni í viku á föstudögum frá kl. 15:00 - 18:00 og frá 20:00 - 23:00. á tímabilinu 6. júní til 11. júlí. Efnt verði til viðburða í samvinnu við Vinnuskólann. Þetta þarf að endurskoða ef 8. bekkingar fá ekki vinnu í sumar.

Haukur leggur mikla áherslu á að fastur starfsmaður komi að félagsmiðstöðinni strax í haust um er að ræða heilt starf. Er þetta í samræmi við samþykkta stefnumótun ÆTH. Ráði tekur undir þetta.





Fundi slitið kl. 19:15.



Friðrik Ingvaldsson Haukur H. Þorvaldsson.

Þórgunnur Torfadóttir

Jón Garðar Bjarnason.

Gunnar Ingi Valgeirsson


Fundargerðir

Dag.grein
16.02.2012 Fundarplan nefnda 2012
19.05.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 100
22.04.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 99
27.03.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 98
21.02.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 97
17.01.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 96
13.12.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 95
15.11.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 94
18.10.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 93
20.09.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 92
03.09.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 91
26.06.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 90
04.06.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 89
30.04.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 88
26.03.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 87
05.03.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 86
22.01.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 85
27.11.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 84
23.10.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 83
23.10.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 83
25.09.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 82
28.08.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 81
28.06.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 80
22.05.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 79
03.05.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 78
27.03.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 77
27.02.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 76
23.01.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 75
22.01.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 85
05.12.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 74
10.11.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 73
24.10.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 72
26.09.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 71
21.09.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 70
23.05.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 69
25.04.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 68
06.04.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 67
28.02.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 66
24.01.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 65
22.11.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 64
25.10.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 63
27.09.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 62
01.09.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 61
24.05.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 60
26.04.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 59
22.03.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 58
01.03.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 57
26.01.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 56
04.12.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 55
20.10.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 54
22.09.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 53
25.08.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 52
26.05.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 51
05.05.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 50
24.03.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 49
24.02.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 48
27.01.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 47
17.12.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.11.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
28.10.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
23.09.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
26.08.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
22.05.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
22.04.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.03.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.02.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
28.01.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica