Gamla - Æskulýðs- og tómstundaráð
Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 68
68. fundur
Æskulýðs- og tómstundaráð 68. fundur
Fundur haldinn í æskulýðs- og tómstundaráði Hornafjarðar mánudaginn
25. apríl 2005 kl. 17:10.
Mætt voru: Friðrik Ingvaldsson formaður, Gunnar Ingi Valgeirsson, Elsa S. Elísdóttir, Valdemar Einarsson, og Haukur H. Þorvaldsson æskulýðs - og tómstundafulltrúi.
Friðrik formaður setti fund og bauð ráðsfólk velkomið.
Gengið var til dagskrár:
1. Vinnuskólinn
Drögin sem ÆTH samþykkti á síðasta fundi sínum um skipan mála vinnuskólans verða tekin fyrir í bæjarráði í vikunni. Búið er að auglýsa eftir starfsmönnum við skólann og á næstunni verða senda út starfsumsóknir til unglinganna og vinnutilhögun.
2. Ísland á iði
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands vekur athygli á að dagana 2.-13. maí mun fræðslu- og hvatnigaverkefni ÍSÍ, Ísland á iði, standa fyrir fyrirtækjakeppninni “Hjólað í vinnuna”. Markmiðið með verkefninu er að vekja athygli á hjólreiðum sem heilsusamlegum, hagkvæmum og umhverfisvænum samgöngumáta. Á heimasíðu verkefnisins isisport.is er hægt að skrá sig og fylgja eftir að skrá þátttökudagana. Þetta er keppni milli fyrirtækja og stofnana. Leitað er eftir liðsinni sveitarfélaga við að hvetja til þátttöku í keppninni t.d. með að því að nýta heimasíður þeirra til að segja frá keppninni og hvetja. Samþykkti ráðið að auglýsa þetta á Skjávarpinu og vefunum og hvetja til þátttöku. Hauki falið verkefnið.
3. Samfés og FÍÆT (aðalfundir)
Haukur greindi frá því að fyrir dyrum standa aðalfundir tveggja samtaka sem starfa við æskulýðs- og tómstundamál barna og ungmenna. Það er annarsvegna Samfés sem er samtök félagsmiðstöðva á Íslandi og stendur fyrir nokkrum stórum viðburðum á landsvísu á hverju ári s.s. landsmóti, ýmsum keppnum þar sem söngvakeppnin er fyrirferðamest og eins stóra Samfésballið. Félagsmiðstöðin Þrykkjan hefur sótt ýmsa af þessum viðburðum Samfés í gegnum árin þrátt fyrir að eiga langt að sækja. Þá er útvarp Samfés á dagskrá Rásar 2 og eins er á Rás 2 spurningakeppni Samfés, Viskan og hafa Þrykkjuunglingar tekið þátt í Viskunni og eins farið með efni í útvarpið nú síðast klukkutíma þátt þar sem fjallað var um ýmsa viðburði sem voru á döfinni og búið að halda. FÍÆT er félag íþrótta-æskulýðs og tómstundafulltrúa á Íslandi. Þeir koma saman einu sinni á ári til að bera saman bækur sínar og fá til sín gesti til að fræða og halda fyrirlestra.
4. Umhirða valla. Hver á að hugsa um þá ?
Umræður hafa verið uppi um umhirðu á Sindravöllum m.a. hvort sveitarfélagið ætti að taka hana upp á sína arma að hluta en undanfarin ár hefur umf. Sindri annast hana. ÆTH finnst rétt að sveitafélagið geri samning við fagaðila um að sjá um umhirðu íþróttavallanna til 3 til 5 ára. Hann sjái um áburðargjöf, götun, söndun, slátt og hann metur einning hvort völlur er hæfur til notkunar. Hann sæki námskeið í umhirðu íþróttavalla sem KSÍ heldur árlega og hafi við sláttinn valsaslátturvél og einning umráð yfir götunarvél. Knd. Sindra sjái áfram um merkingu vallanna, umhugsun um mörkin, vökvun og ruslatínslu.
5. Forvarnamyndbönd
Haukur kom með disk með forvarnamyndböndum sem 8. bekkingar hafa unnið í vetur undir stjórn hans og Árna Péturs Hilmarsson kennara í Heppuskóla. Eftir er að velja myndbönd til sýningar í Skjávarpi og eins að veita viðurkenningar fyrir starfið. 8.bekkingar léku sjálf í myndböndunum og klipptu þau til. Aðalfundur forvarnaverkefnisins “Vertu til” sem er sveitafélagaverkefni verður haldinn í Kópavogi miðvikudaginn 4.maí. Haukur hefur hug á að sækja fundinn.
6. Vetrarstarf Þrykkjunnar
Haukur fór yfir vetrarstarf Þrykkjunnar sem var fjölbreytt að vanda. Vegna breytinga í Sindrabæ í desember og fram í febrúar var starfsemin á nokkrum hrakhólum þennan tíma en það var leist með því að fá inni í Pakkhúsi og Mángarði. Starfsmenn eru þrír, Sindri Ragnarsson. Eva Lind Björnsdóttir og Birgir F. Reynisson þá var Sigríður Bára Steinþórsdóttir starfsmaður fram að áramótum. Í burðaliðnum er samstarfssamningur á milli Heppuskóla og Þrykkjunnar um ýmis samskiptamál og samstarfsverkefni á vegum stofnannana. Sindri Ragnarsson starfsmaður Þrykkjunnar sat fundinn undir þessum lið og svaraði fyrirspurnum.
7. Önnun mál
Styrkbeiðni hefur borist ÆTH frá þrekmeistarahópnum Skvetturnum sem er skipaður fimm hornfirskum konum en þær stefna á þrekmót á Akureyri í maí þar sem keppt er um Þrekmeistarann 2005 í kvennaflokki. Umsókninni hafnað.
Friðrik lagði til að starfsrækt verði kofabyggð í sumar í c.a. einn mánuð og verði ráðinn starfsmaður í hálft starf til að vinna með börnunum í kofagerðinni. Var ráðið samþykkt þessu. Vegna þessa þyrfti að sækja um aukafjárveitingu sem þyrfti að skoða nánar hver yrði.
Fundi slitið kl. 19:00.


