Gamla - Æskulýðs- og tómstundaráð
Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 67
67. fundar
Æskulýðs- og tómstundaráð 67. fundur
FUNDARGERÐ Fundur haldinn í æskulýðs- og tómstundaráði Hornafjarðar þriðjudaginn 06. apríl 2005 kl. 19:50. Mætt voru: Friðrik Ingvaldsson formaður, Gunnar Ingi Valgeirsson, Þórgunnur Torfadóttir og Haukur H. Þorvaldsson æskulýðs - og tómstundafulltrúi. Friðrik formaður setti fund og bauð ráðsfólk velkomið.
Gengið var til dagskrár:
1. Vinnuskólinn, tilhögun
Eins og fram hefur komið var það ósk bæjarráðs að málefni Vinnuskólans verði vistuð hjá æskulýðs- og tómstundaráði. Taka þarf skýra afstöðu til hvernig þeim málum og verkaskiptingu verður háttað. Undanfarin ár hefur vinnuskólinn verið á ábyrgð tækni- og umhverfissviðs. Á sameiginlegum fundi með Helga Má Pálssyni framkvstj. umhverfis- og tæknisviðs og Val Sveinssyni deildarstjóra sama sviðs og Stefáni Ólafssyni framkvstj. fræðslu- og félagssviðs og Hauki H. Þorvaldssyni æskulýðs- og tómstundafulltrúa var farið yfir málefni vinnuskólans. Í framhaldi af fundinum voru gerð drög að vinnutilhögun og verkaskiptingu við vinnuskólann. Haukur lagði drögin fyrir ráðið til umræðu. Drögin voru samþykkt með örlitlum breytingum. Verða þau fylgiskjal með fundargerðinni.
2. Útgáfa sumarbæklings
Ráðið ræddi um hvort ætti að halda áfram útgáfu á sumarbæklingi eins og gert hefur verið undanfarin ár. Illa hefur gengið að ná inn efni í bæklinginn og hefur hann komið nokkuð seint út til að þjóna tilgangi sínum fyllilega. Ráðið er sammála um að gefa bæklinginnút í vor ekki seinna en 20. maí. Hauki falið verkefnið.
3. Þrykkjan-Sindrabær-Mánagarður. (endurbætur)
Haukur greindi frá framkvæmdum í Sindrabæ og Mánagarði vegna stöðu þeirra sem menningarhúsa. Framkvæmdum er nær lokið.
Framkvæmdir í Sindrabæ fólust í því að lögð voru gólfefni á fyrstu hæð eikarparkett á sal og vinyldúkur á forstofu og teppi upp stig að bíósal. Þá voru sett 58 ný sæti í bíósalinn með borðum við 50 sæti og hann allur tekinn í gegn dúklagður, málaður og sett ný lýsing. Settur var skjávarpi í loftið og geislaspilari sem bæði spilar dvd og myndbandsspólur. Kemur bíósalurinn til með að þjóna kvikmyndasýningum, starfsemi tónskóla og félagsmiðstöð og eins geta grunnskólarnir nýtt sér hann í sínu starfi. Einning er hægt að halda þar smærri ráðstefnur og fundi. Ljóst er að starfsemi Þrykkjunnar verður áfram í Sindrabæ.
Framkvæmdir í Mánagarði hafa miðast að því að þar verði leikfélög og leikhópar með sína starfsemi. Áhorfendapallar voru keyptir í salinn og einning sviðspallar til að stækka svið. Sviðsop var stækkað og svið málað. Sett upp eldvarnahurð í sal. Gott hljóðkerfi og ljósarekkar voru einnig keypt. Til stendur að mála sal í dekkri litum en hann er í dag vegna breyttrar starfsemi. Mikill áhugi hefur komið fram hjá húsverði í Mánagarði og eins Magnúsi J. Magnússyni formanni Leikfélags Hornafjarðar að hugað verði að því að útbúa geymsluhúsnæði bakvið Mánagarð á milli íþróttahúss og Mánagarðs. Nýta mætti veggi á þrjá vegu aðeins þyrfti að steypa gólf, setja þak og einn langvegg með hurð í. Myndi þetta leysa geymsluvanda íþrótta- og leikhúss.
4. Iðkendur í íþróttum í íþróttahúsinu á Höfn, Mánagarði og sundlaug
Samantekt frá starfsfólki í íþróttahúsinu Höfn, Mánagarði og sundlaug var lögð fram um iðkendafjölda í íþróttum í húsunum. Iðkendur eru um 572 á aldrinum 2 til 16 +. Langflestir eru á aldrinum frá 6 til 16 ára. Flestir stunda knattspyrnu og því næst koma fimleikar og þá blak. Það tímabil sem samantektin náði til spannaði tímabilið frá september 2004 fram að 1.apríl 2005.
Umræður urðu um samantektina og var ráðsfólk sammála um að vinna könnun sem tæki til grunnskólabarna um iðkun þeirra í íþróttum og öðrum tómstundum. Kæmi skýrar fram í hvaða íþróttagreinum og tómstundum börn væru en í framlagðri samantekt. Heppilegasti tíminn í þetta væri um miðjan október í haust.
5. Gólfskipti í íþróttahúsi og stækkun
Þiðjudaginn 22 mars var æskulýðs- og tómstundaráð boðað til aukafundar í Ráðhússal. Á dagskrá var endalegt val á gólfefni í íþróttahúsið á Höfn.
Auk ráðsfólks komu starfsmenn íþróttahússins á fundinn ásamt Stefáni Ólafssyni framkvstj. fræðslu- og félagssviðs. Á fundinum gerðu Helgi Már Pálsson og Valur Sveinsson frá umhverfis- og tæknisviði fundarmönnum grein fyrir stöðu mála varðandi val á gólfefni og kynntu nýtt tilboð í gólf. Gerðu þeir að tillögu sinni að þessu tilboði yrði tekið sem fólst í því að lagður yrði dúkur á gólfið með tvöföldu fjaðrandi undirlagi. Nýja gólfið verður lagt ofan á gólfefnið sem fyrir er. Voru fundarmenn þessari tillögu sammála. Þá var rætt um lit á dúkinn og komu tveir litir til greina og var endanleg ákvörðun um lit sett í hendur Val og Helga.
Gólfið er frá P.Ólafssyni. ehf og kostar tæpar 7 milljónir með vinnu tæknideildar. Þá vantar að taka inn í kostnað við ýmsar festingar og uppistöður í gólfi fyrir ýmsar íþróttagreinar.
6. Kynnningarfundur frá Ungt fólk í Evrópu
Miðvikudaginn 30. mars komu tveir fulltrúar frá verkefninu Ungt fólk í Evrópu í heimsókn hingað og héldu kynningarfund um starfsemi verkefnisins sem hefur starfað hérlendis frá 1993. Ungt fólk í Evrópu (UFE) er styrkjaáætlun Evrópusambandsins sem veitir styrki í margvísleg verkefni sem unnin eru af ungu fólki á aldrinum 15 ? 25 ára í Evrópu.
Einnig styrkir UFE verkefni sem eru fyrir æskulýðsleiðbeinendur og aðra sem vinna með ungu fólki.
Styrkjaverkefni UFE skiptist í 5 flokka: ungmennaskipti, sjálfboðaliðaþjónustu, frumkvæðisverkefni, stuðningaverkefni og samstarfsverkefni.
Heimsóttu fulltrúarnir nemendur FAS og héldu síðan almennan kynningarfund í sal Nýheima fyrir fulltrúa frá stofnunum og ungt fólk. Voru fulltrúarnir mjög ánægðir með undirtektir og aðbúnað hér og ekki síður heimamenn að njóta þessara kynningar.
Fundi slitið kl. 21:20.


