Gamla - Æskulýðs- og tómstundaráð
Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 66
66. fundur
Æskulýðs- og tómstundaráð 66. fundur
Fundur haldinn í æskulýðs- og tómstundaráði Hornafjarðar fimmtudaginn 28. febrúar 2005 kl. 19:50.
Mætt voru: Friðrik Ingvaldsson formaður, Gunnar Ingi Valgeirsson, Valdemar Einarsson, Elsa S. Elísdóttir, Þórgunnur Torfadóttir og Haukur H. Þorvaldsson æskulýðs - og tómstundafulltrúi. Friðrik formaður setti fund og bauð ráðsfólk velkomið. Gengið var til dagskrár:
1. Íþróttahúsið Höfn, val á gólfefni ofl. Fyrir fundi liggur að taka ákvörðun um hvaða efni á að setja á gólf íþróttahússins á Höfn. Komið hefur upp í umræðunni um gólfskipti sú hugmynd hvort huga ætti að stækkun íþróttahússins áður en farið er í gólfskiptin. Tækni- og umhverfissvið hefur gert mjög grófa kostnaðaráætlun um stækkunarmöguleikann. Starfsmenn tækni-og umhverfissviðs kynntu hann á fundi ásamt gólfefnum í húsið fyrir íþróttakennurum, formanni Sindra, æskulýðs- og tómstundafulltrúa, formanni æskulýðs- og tómstundaráðs. Valið stendur á milli dúks eða parkets. Á fundi ráðsins voru báðir möguleikar ræddir bæði stækkun og lagning á gólfefni. Varðandi stækkunarmöguleika á íþróttahúsi er ráðið sammála um að samfara skoðun á hönnun sundlaugar verði möguleikar á stækkun hússins skoðaðir. Ráðið mælir með því að lagt verði parket á gólfið og tekið tilboði frá P.Ólafssyni um parket af tegundinni hlynur með tvöfaldri fjöðrun en ráðið vill í þessu sambandi minna á að koma verður í veg fyrir leka á íþróttahúsaþaki áður en parketið verður lagt.
2. Vinnuskólinn.
Tilhögun. Eins og fram hefur komið áður var það ósk bæjarráðs að málefni Vinnuskólans verði vistuð hjá æskulýðs- og tómstundaráði. Taka þarf skýra afstöðu til hvernig þeim málum og verkaskiptingu verður háttað. Undanfarin ár hefur vinnuskólinn verið á ábyrgð tækni- og umhverfissviðs. Æskulýðs- og tómstundaráð vill að starfsmaður þess fari yfir starfsemina með starfsmönnum umhverfis- og tæknisviði og skili inn tillögum á næsta fund ráðsins um tilhögun skólans.
3. Styrkveitingar (breytingar).
Styrkveiting úr Sérsjóði. Ráðið ræddi um hvort ekki ætti að huga að breytingu á styrkjafyrirkomulagi til íþróttafélaga. Í Hafnarfirði eru æfingagjöld greidd niður fyrir iðkendur 10 ára og yngri. Hefur þetta fyrirkomulag skilað mikilli aukningu iðkenda á þessum aldri inn í íþróttirnar þar. Hér þarf að fylgjast betur með því að þeir styrkir sem eru veittir íþróttafélögum séu nýttir til að niðurgreiða þátttökugjöld á námskeið. Samþykkt var að ráðið vinni að skoðun á breytingum og eftirfylgni á styrkjum fyrir næsta styrkár. Skal því lokið fyrr september fund í haust. Haukur leggur til að Bjarna Malmquist frjálsíþróttamanni verði veittur styrkur úr Sérsjóði að upphæð 20.000 kr. til að nýta í keppnisferðir og til að auka færni sína og getu í íþróttum. Bjarni hefur náð mjög góðum árangri í frjálsum íþróttum á mótum hjá FRÍ nú nýverðið.
4. Forvarnir
Haukur greindi frá því að fimmtudaginn 10. febrúar var haldinn fundur í forvarnahópnum VÁ HORN í fundarsal Ráðhúss. Þetta var þriðji fundur hópsins. Mætt voru Ásgerður Gylfadóttir skólahjúkrunarfræðingur, Hanna Úlfarsdóttir sjúkraliði, Birgir Kjartansson félagsmálastjóri og Haukur Helgi Þorvaldsson æskulýðs- og tómstundafulltrúi. Á fundinum var m.a. rætt um aðkomu foreldra að forvarnamálum. Æskulýðs- og tómstundaráð ræddi um hvort styrkja ætti tvö forvarnaverkefni Blátt áfram sem er átaksverkefni UMFÍ sem nú er að afla fjár til kaupa á vönduðu brúðuleikhúsi sem farið verður með í alla grunnskóla á landinu. Tilgangur þess er að uppfræða foreldra og einstaklinga um leiðir til að koma í veg fyrir og greina og bregðast við kynferðislegri misnotkun á börnum og gera fólki grein fyrir staðreyndum og áhættuþáttum. Hitt verkefnið er ?Ég er húsið mitt? sem hefur starfað í 6 ár. Þetta er verkefni í bókarformi og ætlað fyrir 4. til 11 ára börn. Verkefnið er til að ná góðum árangri á öllum sviðum og aðstoða uppalendur við eflingu sjálfsímyndar barna. Ákveðið að styrkja Blátt áfram verkefnið um allt að 10.000 kr. úr forvarnasjóði. Haukur greindi frá því að starfshópur um lýðheilsu hefur tekið til starfa hér. Hópurinn hefur haldið 3 fundi og var í morgun á fundi með Jórlaugu Heimisdóttur verkefnisstjóra hjá Lýðheilsustöð. Verkefnið sem tekið er fyrir er hreyfing og mataræði barna og ungmenna.
5. Humarhátíð 2005.
Haukur greindi frá fundi sem hann sat ásamt Friðriki Jónasi Friðrikssyni frá Björgunarfélagi Hornafjarðar , Gesti Halldórssyni frá Sindra, Alberti Eymundssyni bæjarstjóra, Hjalta Vignissyni forstöðumanni Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar og Ara Þorsteinssyni framkvæmdast. Frumkvöðlaseturs Austurlands. Á fundinum var rætt um væntanlega Humarhátíð og aðkomu félaganna að henni. Ekki hefur tekist að fá þriðja hjólið undir vagninn en félögin eru að leita eftir þriðja samstarfsaðila. Ákveðið að næstu fundir verði haldnir á mánudagskvöldum kl. 20:00. Fundi slitið kl. 22:20.


