Gamla - Æskulýðs- og tómstundaráð

Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 65

Fundur haldinn    í  æskulýðs- og tómstundaráði Hornafjarðar fimmtudaginn 24. janúar 2005  kl. 17:10.

 

Mætt voru: Friðrik Ingvaldsson formaður, Gunnar Ingi Valgeirsson, Valdemar Einarsson, Elsa S. Elísdóttir, Þórgunnur Torfadóttir og Haukur H. Þorvaldsson æskulýðs - og tómstundafulltrúi.

 

Friðrik formaður setti fund og bauð ráðsfólk velkomið.

 

Gengið var til dagskrár:

Styrkveiting

Farið var yfir umsóknir sem borist hafa ráðinu um styrkbeiðnir frá ýmsum félögum. Gengið var til afgreiðslu og voru styrkir til eftirtalinna félaga samþykktir:

 

Umf. Sindri til afborgunar á láni  kr. 1250.000.00.

Sindri til almenns rekstrar kr. 1920.000.00.

Reiknuð húsaleiga í Íþróttahúsi Höfn kr. 3200.000.00.

Vegna leikjanámskeiðs kr. 750.000.00.

Sunddeild Sindra (leiga á sundlaug) kr. 140.000.00.

 

Umf. Máni.

Til íþróttastarfsemi kr. 250.000.00. Reiknuð húsaleiga í Mánagarði kr.170.000.00.

 

Golfklúbbur Hornafjarðar

Framlag vegna framkvæmdasamnings kr. 2100.000.00.

Framlag vegna barna- og ungmennastarfs kr. 400.000.00.

 

Hestamannafélagið Hornfirðingur

Framlag vegna framkvæmdasamnings kr. 1250.000.00

Framlag vegna barna- og ungmennastarfs kr. 350.000.00.

 

Dansklúbburinn Taktur

Starfsstyrkur kr. 20.000.00.

Ætlast er til að styrknum verði varið í barna- og ungmennastarf.

 

Litboltafélag Hornafjarðar kr. 100.000.00.

 

 

Skotfélag Hornafjarðar óskar eftir húsaleigustyrk. Hauki falið að kanna hvort hægt er að ná samningum við hafnarstjórn um góða húsaleigu.

 

Þórgunnur vill láta bóka eftirfarandi: Leitað verði leiða til að ná fram öðrum áherslum í styrkveitingum og verkaskiptingum milli sveitarfélagsins og umf. Sindra til að ná fram betri nýtingu fjármagnsins og til að bæta þjónustuna. Ráðið tekur undir þessa bókun og leggur til aðili frá umf. Sindra, sveitarfélaginu og ÆTH  skoði þetta.

Friðrik lýsti ánægju sinni yfir hvað félög skiluðu greinagóðum gögnum með umsóknum. Tóku annað ráðsfólk undir það.

 

Alls eru veittir styrkir að upphæð 11.900.000.00. kr.

 

 

Styrkveitingar til efnilegra íþróttamanna og sérverkefna úr Sérsjóði.

Haukur greindi frá því að hann hefði sent út bréf 28.desember til íþróttafélaga þar sem óskað var eftir tilnefningum í að styrkja unga og efnilega íþróttamenn og ef sérstök verkefni væri upp á borði sem Sérsjóðurinn gæti styrkt.

Ekki bárust tilnefningar á réttum tíma og ákvað ráðið að veita knattspyrnumanninum Gísla Freyr Brynjarssyni  styrk að upphæð 20.000 kr. og 3.fl. kvenna í knattspyrnu  50.000 kr. til æfinga – og keppnisferðar utanlands. Tvær umsóknir komu um sérverkefni frá Fimleikadeild Sindra til að styrkja komu þjálfara til deildarinnar í desember sl. og frá Huldu Laxdal Hauksdóttur vegna verkefnisins Fjölskyldan saman / gaman sem hún vann með félögum í formi fjölskyldudaga. Ákveðið að veita Huldu 75.000 kr.vegna þessa og hefur ráðið áhuga á að leita áfram liðsinni Huldu vegna þessa verkefnis.  ÆTH sá sér ekki fært að verða við beiðni fimleikadeildarinnar.  

 

Opnun sundlaugar. Verðskrá.

Sundlaugin var opnuð laugardaginn 15.janúar sem er viku fyrr en á síðasta ári. Ákveðið hefur verið að opnunartímar í vetur verði frá kl. 07:00 – 09:00 og 16:00 – 20:00 virka daga og frá 09:00 til 15:00 um helgar. Frá júní til loka ágúst verði opið á virkum dögum frá kl. 07:00 – 20:30 og um helgar frá 0900 – 18:00.

Verðskrártillögur ráðsins vegna sundlaugar voru samþykktar í bæjarráði í desember í tengslum við afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2005..

 

4.  Fjárhagáætlun 2005-rekstur-framkvæmdir

 

Rætt var um framkvæmdir á sviði íþróttamála á árinu 2005. Ákveðið er að skipta um gólf í íþróttahúsinu, skipta um báða heitupottana í sundlauginni, mála íþróttahúsið og skipta um perur í sal, þá er fjármagni varið í frumathugun á byggingu sundlaugar.  Friðrik vill láta bóka að liður sem er geiðsla húsaleiga til íþróttamannvirkja fyrir afnot skóla verði uppfærður til raunvirðis í næstu fjárhagsáætlun. Elsa ræddi um gólfefnaskipti í íþróttahúsi og vill láta bóka að áður en farið verði í lagningu nýs gólfefnis verði vandlega skoðað hvort ekki er möguleiki á stækkun salargólfsins og verði þessi athugun tekin inn í frumathugun á sundlaugarbyggingu. Varðandi nýtt gólf var ákveðið að leita álits hjá umf. Sindra og íþróttakennurum um hvaða gólfefni yrði valið, dúkur eða parket..  

 

Forvarnir

Fimmtudaginn 13.janúar var haldinn fundur í forvarnahópnum VÁ HORN í fundarsal Ráðhúss. Þetta er annar fundur hópsins hinn var í nóvember. Mætt voru Ásgerður Gylfadóttir skólahjúkrunarfræðingur, Sigrún Sveinbjörnsdóttir foreldri, Jón Garðar Bjarnason aðstoðarvarðsstjóri í lögreglunni, Ragnhildur Einarsdóttir formaður U.S.Ú. og fulltrúi Heppuskóla, Birgir Kjartansson félagsmálastjóri og Haukur Helgi Þorvaldsson æskulýðs- og tómstundafulltrúi. Á fundinum var m.a. rætt um stöðu mála hjá unglingunum varðandi vímuefna- og útivistarmál. Fannst mönnum hún góð t.d. sagði Ragnhildur að 9. bekkur væri reyklaus og fáir að reyktu í Heppuskóla. Hún greindi líka frá því að 9. bekkingar væru að fara í hópferð að Laugum í Sælingsdal

( um 700 km. frá Höfn ) en þar rekur UMFÍ unglingabúðir. Verður þetta vikuferð sem endar á Samfésballinu í Laugardalshöll 4.mars. Jón Garðar sagði að útivistartíminn væri haldinn og hegðan unglinga góð t.d. væri ekkert um skemmdarverk eða þjófnaði. Hann spurði hvort þetta væri lognið á undan storminum hvort væri einhver undiralda. Ekki voru fundarmenn á því en ávallt þyrfti að halda vöku sinni. Ásgerður gerði athugasemd við að Jafningjafræðslan var ekki tekinn inn í Vinnuskólann sl. sumar. Hún greindi einnig frá því að fátt ungt fólk hefðu hingað til nýtt sér opið hús og ráðgjöf sem hjúkrunarfræðingar á heilsugæslustöðinni héldu úti einu sinni í viku. En það tæki tíma að vinna þessu sess. Haukur sagði það hafa verið ákvörðun flokkstjóra og sín að Jafningjafræðslan var ekki. Flokkstjóra fannst krakkarnir ekki veita þessari heimsókn nægja athygli. Rætt var um aðkomu foreldra að forvörnum sem er lítil. Spurningin er hvernig er hægt að gera foreldravakningu hér í þessum efnum ? Sigrún sagði frá súpufundi foreldra í Skotlandi er hún var þar í námi. Á hann fjölmenntu foreldrar spurning hvort við eigum við að gera eitthvað svipað? Haukur sagði frá forvarnavinnu sem væri að fara í gang hjá honum og Árna Pétri kennara í Heppuskóla með 8. bekkingum um að gera leiknar forvarnaauglýsingar. Haukur sagði líka að hann mundi leggja til að gerð yrði könnun í Heppuskóla eins og undanfarin ár (var ekki í fyrra) um notkun nemenda á áfengi, tóbaki og öðrum vímuefnum og um félagsmál unglinganna. Inn í könnunina mætti bæta lið um samskipti foreldra og unglinga og slíka samskiptakönnun mætti hugsanlega líka leggja fyrir foreldra nemendanna. Þá greindi Haukur frá því að hann og Jón Garðar Bjarnason lögreglumaður hefur farið í heimsókn í 5., 6., og 7. bekk Hafnarskóla síðla í nóvember og gefið nemendum segulmiða með útivistarreglum og rætt við þau um útivist, reykingar og áfengi. Ákveðið var að næsti fundur VÁ- HORNS hópsins verði 10. febrúar og þá fari fram hugmyndavinna um hvernig best væri að ná til foreldra. Fundir hópsins verða framvegis annan fimmtudag í mánuði.

Umsókn barst frá Heppuskóla um styrk til viku ferða 9. bekkjar að Laugum i Særlingsdal en þar rekur UMFÍ unglingabúðir. Var ákveðið að veita 3000 kr.í styrk á hvern nemanda af liðnum vímuvarnarverkefni. Nemendur 9. bekkjar eru 40.

 

 

Humarhátíð 2005.

Ráðið ræddi síðustu Humarhátíð og þá sem framundan er. Fanns ráðsmönnum að síðasta humarhátíð hefði farið vel fram.  Ráðinu finnst rétt að ræða næstu hátíð á breiðum grundvelli með þátttöku þeirra sem að henni koma beint og óbeint.

 

Ákveðið að næstu fundir verði haldnir á mánudagskvöldum kl. 20:00.

 

 

 

Fundi slitið kl. 19:20.

 

Friðrik Ingvaldsson                                                               Haukur H. Þorvaldsson.

Valdemar Einarsson                                                              

Gunnar Ingi Valgeirsson

Þórgunnur Torfadóttir

Elsa S. Elísdóttir




Fundargerðir

Dag.grein
16.02.2012 Fundarplan nefnda 2012
19.05.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 100
22.04.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 99
27.03.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 98
21.02.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 97
17.01.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 96
13.12.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 95
15.11.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 94
18.10.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 93
20.09.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 92
03.09.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 91
26.06.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 90
04.06.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 89
30.04.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 88
26.03.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 87
05.03.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 86
22.01.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 85
27.11.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 84
23.10.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 83
23.10.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 83
25.09.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 82
28.08.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 81
28.06.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 80
22.05.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 79
03.05.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 78
27.03.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 77
27.02.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 76
23.01.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 75
22.01.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 85
05.12.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 74
10.11.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 73
24.10.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 72
26.09.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 71
21.09.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 70
23.05.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 69
25.04.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 68
06.04.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 67
28.02.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 66
24.01.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 65
22.11.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 64
25.10.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 63
27.09.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 62
01.09.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 61
24.05.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 60
26.04.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 59
22.03.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 58
01.03.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 57
26.01.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 56
04.12.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 55
20.10.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 54
22.09.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 53
25.08.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 52
26.05.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 51
05.05.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 50
24.03.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 49
24.02.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 48
27.01.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 47
17.12.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.11.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
28.10.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
23.09.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
26.08.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
22.05.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
22.04.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.03.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.02.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
28.01.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica