Gamla - Æskulýðs- og tómstundaráð

Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 64

64. fundur

Fundargerð

Fundur haldinn í æskulýðs- og tómstundaráði Hornafjarðar mánudaginn

22. nóv. 2004  kl. 17:10.

Mætt voru: Friðrik Ingvaldsson formaður, Gunnar Ingi Valgeirsson,  Þórgunnur Torfadóttir, Björn Traustason og Haukur H. Þorvaldsson æskulýðs - og tómstundafulltrúi.

Friðrik formaður setti fund og bauð ráðsfólk velkomið.

Gengið var til dagskrár:

1.      Fjárhagsáætlun 2005

Farið var yfir fjárhagsáætlun ÆTH fyrir næsta ár.

2.      Hækkun gjaldskrár í sundlaug og opnunartímar

Samþykkt var að hækka gjaldskrá sundlaugar og tekur hún gildi um leið og laugin verður opnuð eftir áramót. Stakt gjald fullorðinna hækkar úr 275 kr. í  300 kr. Stakt gjald barna hækkar úr 110 kr. í 135 kr. 15 miða kort fullorðina hækkar úr 2700 kr. í 3100 kr. 15 miða kort  barna hækkar úr 1100 kr. í 1200 kr. Árskort fullorðinna hækkar úr 19000 kr. í 21000 kr. Gjald í sturtu hækki úr 150 kr. í 170 kr. Leiga á sundfötum og handklæðum hækkar úr 200 kr. í 220 kr. Ráðið leggur til að lauginni verði lokað sunnudaginn 19.desember. Stefnt skal að því að opna laugina á nýju ári laugardaginn 8. janúar.

Lagt er til að sumaropnun taki gildi 1.júní til 24. ágúst en sumaropnun um helgar gildir fram í miðjan september. Opið verði virka daga frá kl. 07:00 ? 20:30 og um helgar frá kl. 09:00 ? 18:00.

3.      Styrkveiting til íþróttamanna. Sérsjóðurinn.

Að venju leggur ráðið til að ungt og efnilegt hornfirskt íþróttafólk verði styrkt til að efla sig í íþrótt sinni. Hauki falið að óska eftir ábendingum frá íþróttafélögum á Hornafirði. Innistæða á reikning sérsjóðs eru kr. 285 þúsund.

Einnig kemur til greina að styrkja einstakling til að vinna að ákveðnu verkefni í samstarfi við ÆTH.

Ráðið vill minna á að nú í desember er umf. Sindri 70 ára.

4.      Forvarnir. Þrykkjan

Haukur greindi frá því að hann hafi áhuga á að stofna VÁ-HORN hóp hér á Hornafirði sem kæmi saman einu sinni í mánuði og skiptist á skoðunum um  forvarnir og kæmi með hugmyndir um leiðir og markmið. Hópurinn stæði samna af embættismönnum, foreldrum, fulltrúum skóla og frá íþróttahreyfingunni. Haukur hefur sent út bréf vegna þessa til þeirra sem málið varðar og fengið jákvæð viðbrögð. Hefur kennaraverkfall sett strik í reikninginn hvað varðar þátttöku skólanna.

Þá hefur Haukur einning sent út bréf til foreldra þar sem skorað er á þá að stuðla að endurreisn Hornfirsku foreldrasamtakanna. Bréfið var sent til fimm foreldra og komu jákvæð svör frá tveimur. Einnig var auglýsing látin rúlla á Skjávarpinu þar sem foreldrar eru hvattir til að taka þátt í endurreisn samtakanna og hafa samband við Hauk en það bar ekki árangur. Í framhaldi af þessu var boðaður fundur með foreldrum, embættismönnum og lögreglu fimmtudaginn 11. nóvember. Þar mættu þrír foreldrar , starfsmaður Þrykkjunnar, Jón Garðar lögreglumaður og Haukur. Rætt var um stöðu mála hjá unglingunum í dag og voru menn sammála um að hún væri  nokkuð góð. Foreldramál voru rædd og tóku þeir foreldrar sem sátu fundinn vel í að reyna að hvetja foreldra til dáða. Forvarnarsíðunni var brugðið upp á Skjávarpinu í október með ábendingum til foreldra. Þá starfrækja hjúkrunarfræðingar opna móttöku fyrir ungt fólk á heilsugæslustöðinni. Þar getur unga fólkið komið eða hringt, fræðs og leitað ráðleggingar um t.d. kynþroskann, kynsjúkdóma, unglingabólur, vímuefni, einelti, þunglyndi o.m.fl. Að sögn forsvarsmanna hafa ekki margir unglingar nýtt sér þessa þjónustu. Starfsemi Þrykkjunnar hefur gengið eðlilega fram og hefur aðsókn verið nokkuð góð. Reynt hefur verið að hafa einhvern stóran viðburð í hverri viku sem unglingarnir hafa tekið þátt í að undirbúa. Þrykkjan tók þátt í Viskunni sem er spurningakeppni Samfés og komst þar í átta liða úrslit. Keppninni er útvarpað á RÁS 2. Á föstudaginn kom fréttablað Þrykkjunnar, Þrykkjufréttir út en það var fjölmiðlaklúbburinn sem sér um útgáfuna. Á döfinni er söngvakeppnin og ball sem haldið verður út í Hrollaugsstöðum 2. desember og er ráðgert að bjóða unglingum frá Klaustri og Djúpavogi að koma. Þrír starfsmenn starfa við Þrykkuna í hlutastörfum ásamt Hauki. Hann telur mikla nauðsyn á að ráðinn verði starfsmaður í heilt starf til að vinna með börnum og unglingum í Þrykkjunni. Gæti þessi starfsmaður tekið að sér verkefni við Vinnuskólann að sumarlagi.

5.      Lögreglusamþykkt

Ráðið leggur til að í 35 gr. verði aldurstakmark að söfnunarkössum hækkað úr 16 í 18 ár. Þá leggur ráðið til að útivistarreglur verði óbreyttar.

Fundi slitið kl. 19:00.

útivistarreglur verði óbreyttar. Fundi slitið kl. 19:00.


Fundargerðir

Dag.grein
16.02.2012 Fundarplan nefnda 2012
19.05.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 100
22.04.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 99
27.03.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 98
21.02.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 97
17.01.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 96
13.12.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 95
15.11.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 94
18.10.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 93
20.09.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 92
03.09.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 91
26.06.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 90
04.06.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 89
30.04.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 88
26.03.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 87
05.03.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 86
22.01.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 85
27.11.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 84
23.10.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 83
23.10.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 83
25.09.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 82
28.08.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 81
28.06.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 80
22.05.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 79
03.05.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 78
27.03.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 77
27.02.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 76
23.01.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 75
22.01.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 85
05.12.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 74
10.11.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 73
24.10.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 72
26.09.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 71
21.09.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 70
23.05.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 69
25.04.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 68
06.04.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 67
28.02.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 66
24.01.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 65
22.11.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 64
25.10.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 63
27.09.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 62
01.09.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 61
24.05.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 60
26.04.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 59
22.03.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 58
01.03.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 57
26.01.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 56
04.12.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 55
20.10.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 54
22.09.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 53
25.08.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 52
26.05.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 51
05.05.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 50
24.03.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 49
24.02.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 48
27.01.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 47
17.12.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.11.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
28.10.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
23.09.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
26.08.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
22.05.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
22.04.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.03.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.02.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
28.01.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica