Gamla - Æskulýðs- og tómstundaráð
Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 63
63. fundur
Fundur haldinn í æskulýðs- og tómstundaráði Hornafjarðar mánudaginn 25. okt. 2004 kl. 17:10.
Mætt voru: Friðrik Ingvaldsson formaður, Elsa S. Elísdóttir, Gunnar Ingi Valgeirsson, Þórgunnur Torfadóttir, Valdemar Einarsson og Haukur H. Þorvaldsson æskulýðs - og tómstundafulltrúi.
Friðrik formaður setti fund og bauð ráðsfólk velkomið.
Gengið var til dagskrár:
1. Vettvangsskoðun í íþróttamannvirki og félagsmiðstöð á Hornafirði.
Ráðið brá sér í vettvangsskoðun í íþróttamannvirkin og félagsmiðstöðina. Fyrst var farið í Mánagarð og hann ásamt íþróttaaðstöðu skoðaður. Síðan var haldið í íþróttahúsið á Höfn og það skoðað hátt og lágt ásamt nýjasta íþróttamannvirkinu sparkvellinum. Sundlaugin var því næst heimsótt. Að lokum var farið í félagsmiðstöðina Þrykkjuna. Þessi heimsókn er til þess gerð að ráðsfólk fái tilfinningu fyrir því hvað má betur fara og bæta í þessum stofnunum. Verða teknir saman punktar eftir þessa heimsóknir sem munu væntanlega nýtast við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2005.
Ljóst er að víða er þörf á viðhaldi og endurbótum þó sérstaklega í íþróttahúsi Hafnar og sundlauginni en þetta eru trúlega langmest nýttu mannvirkin í eigu sveitarfélagsins.
Fundi slitið kl. 19:10.
Friðrik Ingvaldsson
Elsa S. Elísdóttir Haukur H. Þorvaldsson.
Gunnar Ingi Valgeirsson
Þórgunnur Torfadóttir
Valdemar Einarsson


