Gamla - Æskulýðs- og tómstundaráð

Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 62

62. fundur

Fundur haldinn í æskulýðs- og tómstundaráði Hornafjarðar miðvikudaginn 27. sept. 2004 kl. 17:10.

Mætt voru: Friðrik Ingvaldsson formaður, Elsa S. Elísdóttir, Gunnar Ingi Valgeirsson, Þórgunnur Torfadóttir og Haukur H. Þorvaldsson æskulýðs - og tómstundafulltrúi.

Friðrik formaður setti fund og bauð ráðsfólk velkomið.

Gengið var til dagskrár:

1. Vinnuskólinn- ÆTH ?Tækni- og umhverfissvið.
Rætt var um aðkomu æskulýðs- og tómstundaráðs að Vinnuskólanum en eins og fram hefur komið vill bæjarráð að vinnuskólinn verði vistaður hjá ráðinu. Undanfarin ár hefur hann verið í umsjón Tækni ? og umhverfissviðs. Valur Sveinsson kom á fundinn og skýrði út ýmislegt hvað varðar framkvæmd og fjárhagsáætlun skólans. Ákveðið var að vinna áfram að málefnum vinnuskólans hjá æskulýðs- og tómstundaráði. Þórgunnur benti á námskeið sem tengjast vinnuskólum á vegum Rauðakrossins og nefnist Jafnrétti og virðing.


2. K.S.Í. sparkvöllur + körfuboltavöllur.

Sparkvöllur Knattspyrnusamband Íslands og sveitarfélagins er nú næstum tilbúinn vantar ljós við hann og koma þau um næstu mánaðarmót. Frá því hann var óformlega tekinn í notkun fyrir u. þ. b. hálfum mánuði hefur hann verið vel nýttur. Þá hefur körfum verið komið fyrir á malbikaða vallarsvæðinu við sparkvöllinn. Gengið hefur verið frá svæðinu eins og ÆTH benti á á síðasta fundi. Rætt var um umsjón og umgengisreglur á vellinum. Ráðið telur að gilda eigi sömu umgengnisreglur og í íþróttahúsum á vellinum. Farið var yfir drög að reglum um notkun og umsjón vallarins og eru þær líka í skoðun hjá starfmönnum íþróttahúss. Áformað er að vígja völlinn formlega er hann verður að fullu tilbúinn.


3. Úfff... Ungt fólk, fjör og framtak.

Málþing með ungu fólk á aldrinum 16. til 25.ára var haldið í Nýheimum á Höfn miðvikudaginn 8.september. Málþingið var liður í að örva frumkvæði ungs fólks á Hornafirði og til að skapa fjölbreytni í tómstundum og afþreyingu og mynda tengslanet við aðra hópa ungs fólks. Að þessu verkefni sem hófst formlega 15.ágúst með veglegri menningarviku standa fjölmargir aðilar á Hornafirði sem koma að æskulýðs-, skóla- og menningarmálum þ.á.m. æskulýðs- og tómstundaráð. Hefur Menningarmiðstöð Hornafjarðar verið í forsvari fyrir það. Fékk verkefnið m.a. styrk frá Menningarráði Austurlands. Á málþingið kom ungt fólk frá Menntaskólanum á Egilsstöðum, Fjölbrautarskóla Suðurlands, forstöðumaður H.- Hússins í Hveragerði og Óskar Dýrmundur Ólafsson forstöðumaður félagsmiðstöðvarinnar Miðbergs í Reykjavík hann fjalla um jaðaríþróttir og í leiðinni skoða hann aðstöðu fyrir hjólabretti hér. Bergþóra Ágústsdóttir fráfarandi formaður nemendaráðs F.A.S. setti málþingið. Ráðstefnustjóri var Eyjólfur Guðmundsson skólameistari F.A.S. Kynnir var Margrét Erla Maack en hún hefur mikið unnið í listastarfi ungs fólks á höfuðborgarsvæðinu. Að loknum framsögum gesta var skipt í umræðuhópa sem skiluðu frá sér niðurstöðum. Góð aðsókn var að málþinginu sérstaklega á meðan framsögur voru en smá saman þynntist hópurinn og sátu ekki margir eftir er niðurstöður hópastarfsins voru kynntar. Um kvöldið var slegið á létta strengi m.a.sýnd bíómyndin Epíð og sungið. Vænta menn þess að þetta megi verða til að örva félags- og menningarlíf þessa aldurshóps hér á Hornafirði. Nú er að fylgja þessu eftir. Sú nefnd sem að undirbúningi málþingsins stóð hefur ekki komið saman til að bera saman bækur sínar en hittist á morgun þriðjudag. Ráðið hyggst senda skólameistara F.A.S fyrirspurn um hvernig íþróttaiðkun í skólanum sé háttað og býður fram afnot af aðstöðu sem það hefur um að segja.



4. Íþróttaiðkun í Íþróttahúsinu á Höfn á vorönn 2004.

Haukur fór yfir samantekt sem starfsmenn Íþróttahússins á Höfn unnu um fjölda iðkenda í íþróttum í íþróttahúsinu og kynferði þeirra. Þarf að fá sambærilegar tölur úr íþróttahúsi í Mánagarði. Fá út prósentutölur í árgöngum líka.

5. Önnur mál.

Rætt var um mikilvæg þess að nauðsynlegu viðhaldi íþróttamannvirkja sé sinnt.
Í algjör vandræði stefnir ef ekki verður lyft Grettistaki í þeim efnum.
Samþykkt var að ráðið færi í vettvangsskoðun í íþróttamannvirki á næsta fundi.
Styrkur til umf. Sindra frá sveitarfélaginu kom til umræðu og rætt var um það að kominn væri tími til að endurskoða samning við Sindra. Tvennt bar þar hæst annars vegar umhirða valla hvort ekki væri eðlilegra að hún færist frá Sindra til sveitarfélagsins eða einhvers fagaðila. Hinsvegar hvort greiða ætti þjálfurum yngstu barnanna laun í stað þess að veita félaginu fyrirgreiðslu til þess. Þar með fengju t.d öll börn 12 ára og yngri fría íþróttaþjálfun og gætu sótt eins marga tíma og þau vildu. Kæmi þetta fyrirkomulag sér sérlega vel fyrir barnmargar fjölskyldur en börn og ungt fólk er fyrst og fremst sá markhópur sem æskulýðs- og tómstundaráð ber fyrir brjósti.
Valdemar boðaði forföll vegna sjósóknar.



Fundi slitið kl. 19:00.

Haukur H. Þorvaldsson.

Friðrik Ingvaldsson
Elsa S. Elísdóttir
Gunnar Ingi Valgeirsson
Þórgunnur Torfadóttir


Fundargerðir

Dag.grein
16.02.2012 Fundarplan nefnda 2012
19.05.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 100
22.04.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 99
27.03.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 98
21.02.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 97
17.01.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 96
13.12.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 95
15.11.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 94
18.10.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 93
20.09.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 92
03.09.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 91
26.06.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 90
04.06.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 89
30.04.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 88
26.03.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 87
05.03.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 86
22.01.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 85
27.11.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 84
23.10.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 83
23.10.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 83
25.09.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 82
28.08.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 81
28.06.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 80
22.05.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 79
03.05.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 78
27.03.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 77
27.02.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 76
23.01.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 75
22.01.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 85
05.12.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 74
10.11.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 73
24.10.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 72
26.09.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 71
21.09.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 70
23.05.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 69
25.04.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 68
06.04.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 67
28.02.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 66
24.01.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 65
22.11.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 64
25.10.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 63
27.09.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 62
01.09.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 61
24.05.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 60
26.04.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 59
22.03.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 58
01.03.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 57
26.01.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 56
04.12.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 55
20.10.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 54
22.09.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 53
25.08.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 52
26.05.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 51
05.05.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 50
24.03.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 49
24.02.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 48
27.01.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 47
17.12.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.11.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
28.10.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
23.09.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
26.08.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
22.05.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
22.04.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.03.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.02.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
28.01.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica