Gamla - Æskulýðs- og tómstundaráð

Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 61

61. fundur

Fundur haldinn í æskulýðs- og tómstundaráði Hornafjarðar miðvikudaginn 1. sept. 2004 kl. 17:10.

Mætt voru: Friðrik Ingvaldsson formaður, Elsa S. Elísdóttir, Gunnar Ingi Valgeirsson, Þórgunnur Torfadóttir og Haukur H. Þorvaldsson æskulýðs - og tómstundafulltrúi.

Friðrik formaður setti fund og bauð ráðsfólk velkomið.

Gengið var til dagskrár:

1. Starfsemi Þrykkunnar í vetur.

Reiknað er með að opna Þrykkjuna mánudaginn 13. september.
Opið verður í Þrykkjunni fyrir 8.-10. bekk á mánudagskvöldum kl. 20:00 – 22:00.
Á miðvikudögum verður opið frá kl. 16:00 – 18:00 fyrir klúbbastarf og eins fundi Þrykkjuráðs. Þá verður kvöldopnun á miðvikudögum frá kl. 20:00 – 22:00.
Á föstudögum er opið frá kl. 19:30 – 22:00.
Opið verður fyrir 6. og 7. bekk annan hvern þriðjudag frá kl. 16:30 – 18:45. Hauki falið að skoða það með skólastjóra Hafnarskóla.
Framhaldsskólanum verður boðið að hafa fimmtudagskvöldin.
Bíódagar eru á þriðjudögum og sunnudögum.
Þar sem skólatími lengist á föstudögum getur það komið niður á undirbúningi Þrykkjubúa fyrir viðburði á föstudögum og verður að skoða hvernig það verður leyst.
Ljóst er að skátastarf verður ekki í vetur nema til komi leiðbeinandi sem hefur reynslu af skátastarfi.
Haukur hefur áhuga á að vinna með 8. bekkingum að ákveðnu forvarnaverkefni í vetur og eins þarf að huga að hvort ekki er hægt að hrinda af stað forvarnavinnu á breiðum grundvelli í anda verkefnisins “Að allt árið”.
Þess má geta að staðið var fyrir forvarnaauglýsingum í tengslum við Humarhátíð.
Bjólfskviðu er leigður Sindrabær frá 27.ágúst til 11.september sem æfingaaðstaða og til að matast.

2. Ung í Norden.

Haukur greindi frá því að tvö ungmenni þau Sólveig Sigurðardóttir og Elvar Bragi Kristjónsson en þau luku námi í 10. bekk Heppuskóla í vor fóru í lok júní til Danmerkur ásamt fleiri íslenskum ungmennum til þátttöku í verkefninu Ung í Norden sem er norrænt samstarfsverkefni. Létu þau mjög vel af ferðinni og stóðu sig frábærlega vel tóku þátt í ýmsum smiðjum sem í boði voru. Þessi för var á vegum Þrykkjunnar og sá starfsmaður um undirbúning. Fyrirtæki og klúbbar styrktu unglingana til fararinnar með fjárframlögum.


3. Sundlaugin , opnun, viðhald.

Opnunartími sundlaugar breyttist frá og með 24.ágúst vegna skólasunds. Nú er opið virka daga frá kl. 07:00 – 09:00 og 16:00 – 20:00. Óbreyttur opnunartími er um helgar til 13.september frá kl. 09:00 – 18:00. Haukur leggur til að eftir þann tíma verði opið um helgar frá kl. 09:30 til 15:30.
Dúkur er orðinn mjög illa farinn í lauginni og er orðin full ástæða til að setja nýjan dúk. Í tækjasal í kjallar þarf að taka til hendi og endurbæta undirstöður undir dælur ofl. Þá er aðstaða fyrir starfsfólk aldeilis óviðunandi.
Æskulýðs- og tómstundaráð vill minna á stefnumótun ráðsins í æskulýðs- og íþróttamálum þar sem ný sundlaug var sett sem forgangsmannvirki. Nú er komið árið 2004 og finnst ráðinu rétt að fara að huga að byggingu nýrrar sundlaugar. Meðan það ekki gerist verður að halda gömlu lauginni í sómasamlegu ástandi.
Þórgunnur sagði frá því að sundæfingar hefðu verið á vegum sundeildar í sumar og hefði aðsókn verið góð.
Hún sagði líka að nokkur óvissa væri með sundæfingar í haust vegna breyttra aðstæðna. Aðsókn í laugina var orðin tæplega 1600 gestum fleiri í lok júlí en á sama tíma í fyrra.

4. K.S.Í. sparkvöllur.

Sparkvöllur Knattspyrnusamband Íslands og sveitarfélagins er nú tilbúinn undir graslagningu. Völlurinn er 33 x 18 m. Blómaland hefur séð um að útbúa völlinn undir gras. Á næstu dögum verður grasið lagt. Rætt var um hver ætti að hafa umsjón með nýtingu vallarins. Æskilegast er að starfsmenn íþróttahúss hafi umsjónina með höndum. Ljóst er að á meðan skólastarf er í Heppuskóla nýti nemendur völlinn í frímínútum. Þá leggur ÆTH til að á malbikaða svæðið við sparkvöllinn verði settar upp körfur svo hægt sé að leika þar körfubolta. Ráðið lýsir óánægju með staðsetningu vallarins það lagði til að völlurinn kæmi tvo metra frá íþróttahússhorni að sunnanverðu vegna fyrirhugaðrar byggingar sundlaugar við íþróttahúsið. Ráðið vill minna á það að gengið verði frá malarpúða utan við völlinn.

5. Úfff... Ungt fólk, fjör og framtak.

Málþing með ungu fólk á aldrinum 16. til 25.ára verður haldið í Nýheimum á Höfn miðvikudaginn 8.september. Þetta er liður í að örva frumkvæði ungs fólks á Hornafirði til að skapa fjölbreytni í tómstundum og afþreyingu og mynda tengslanet við aðra hópa ungs fólks. Að þessu verkefni sem hófst formlega 15.ágúst með veglegri menningarviku standa fjölmargir aðilar á Hornafirði sem koma að æskulýðsmálum þ.á.m. æskulýðs- og tómstundaráð og hefur Menningarmiðstöðin verið í forsvari fyrir það. Fékk verkefnið m.a. styrk frá Menningarráði Austurlands. Á málþingið koma væntanlega ýmsir gestir að eins og t.d. Óskar Dýrmundur Ólafsson forstöðumaður félagsmiðstöðvarinnar Miðbergs í Reykjavík og mun hann fjalla um jaðaríþróttir og í leiðinni skoða hér aðstöðu fyrir hjólabretti. Vænta menn þess að þetta megi verða til að örva félags- og menningarlíf þessa aldurshóps hér á Hornafirði.


6. Umhirða íþróttavalla og umsjón.
Haukur greindi frá því að reynt hafi verið að koma á fót vallarstjórn á íþróttavöllum í sveitarfélaginu en það tóks ekki, aðeins kom formleg tilnefning fulltrúa í vallarstjórn frá U.S.Ú. og Tækni- og umhverfissviði. Umf. Sindri tilnefndi munnlega og svar barst frá umf. Mána um að félagið tæki ekki þátt í vallarstjórn nema að samkomulag næðist um eignarhald á vellinum. En það tókst ekki . Málið verður áfram í vinnslu. Gunnar Ingi er óánægður með umhirðu Sindravallar hvað varðar flesta þætti umhirðunar. Ráðið vill að komið verði á sérstakri vallarstjórn á Sindravöllum og gengið frá því í samningum við félagið.


7. Sindrabær-breytingar v/menningarhúss.

Undanfarna mánuði hefur staðið yfir skoðun á hvernig verja á þeim fjármunum sem ætlaðir eru í menningarhús á Hornafirði. Verkefnahópur undir forystu Gísla Sverris Árnasonar forstöðumanns Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar hefur fundað og gert ákveðnar tilllögur í hvað fjármununum verður varið sem hafa verið samþykktar í bæjarráði. Samkvæmt tillögum starfshópsins verða gerðar endurbætur á stofnbúnaði bæði í Sindrabæ og Mánagarði ásamt Nýheimum. Miðað er við að þessum endurbótum verði lokið um áramót.

8. Vinnuskólinn- ÆTH –Tækni- og umhverfissvið.
Bæjarráð fór fram á það á fundi sínum 3.júní að ÆTH og tækni- og umhverfissvið leggi fram áætlun um hvernig skipulagi Vinnuskólans verði hagað næstu árin en ljóst er að um samstarfsverkefni er að ræða á milli þessara aðila þótt skipulagslega heyri verkefnið undir æskulýðs- og tómstundarráð. Ljóst er að það þarf að fara í þessa vinnu vegna þessa sem allra fyrst. Taka málefni Vinnuskólans fyrir á næsta fundi.

9. Erindi frá bæjarráði. Bréf frá Félagi áhugafólks um íþróttir aldraðra og Hugmynd um uppbyggingu fjölnota íþróttahúss í Fjarðabyggð..
Á fundi bæjarráðs 26. ágúst var tekið fyrir erindi frá Félagi áhugafólks um íþróttir aldraðra og var því vísað til ÆTH. Í bréfinu er farið fram á að sveitarfélagið stuðli að því að eldri borgarar fá tíma í íþróttahúsum og sundlaug fyrir íþróttastarf á þeirra vegum. Eins og staðan er í dag þá eru eldri borgarar með leikfimi og aðrar íþróttir í Ekrusalnum, þeir hafa verið með sundleikfimi í sundlauginni einu sinni í viku yfir vetrartímann. Eldri borgarar höfðu aðgang að tímum í íþróttahúsinu á Höfn en finnst betra að vera í Ekrunni. Ekki hefur neitt erindi frá félagi eldri borgara hér komið á borð ÆTH um aðstöðu. Tvisvar hafa komið í heimsókn leiðbeinendur frá Félagi áhugafólks um íþróttir aldraðra á Hornafjörð árið 2000 og 2003. Starfsmaður ÆTH hefur fylgst með starfi eldri borgara og situr þar sem áheyrnafulltrúi sveitarfélagsins í stjórn og virðast þessi mál í góðum farvegi. Hann hefur einning gert nákvæma könnun á starfi og aðstöðu eldri borgara hér á Hornafirði m.a. í íþróttum. Þess má geta að púttvöllurinn er á flötunum við HSSA. ÆTH sér ekki að hornfirskir íþróttamenn muni koma til með að nýta sér fjölnota íþróttahús í Fjarðabyggð vegna vegalengdar en fagnar þessu fyrirhugaða átaki í Fjarðabyggð.

Fundi slitið kl. 19:15.

Haukur H. Þorvaldsson.

Friðrik Ingvaldsson
Elsa S. Elísdóttir
Gunnar Ingi Valgeirsson
Þórgunnur Torfadóttir


Fundargerðir

Dag.grein
16.02.2012 Fundarplan nefnda 2012
19.05.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 100
22.04.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 99
27.03.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 98
21.02.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 97
17.01.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 96
13.12.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 95
15.11.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 94
18.10.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 93
20.09.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 92
03.09.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 91
26.06.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 90
04.06.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 89
30.04.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 88
26.03.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 87
05.03.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 86
22.01.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 85
27.11.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 84
23.10.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 83
23.10.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 83
25.09.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 82
28.08.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 81
28.06.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 80
22.05.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 79
03.05.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 78
27.03.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 77
27.02.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 76
23.01.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 75
22.01.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 85
05.12.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 74
10.11.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 73
24.10.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 72
26.09.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 71
21.09.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 70
23.05.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 69
25.04.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 68
06.04.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 67
28.02.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 66
24.01.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 65
22.11.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 64
25.10.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 63
27.09.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 62
01.09.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 61
24.05.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 60
26.04.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 59
22.03.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 58
01.03.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 57
26.01.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 56
04.12.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 55
20.10.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 54
22.09.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 53
25.08.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 52
26.05.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 51
05.05.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 50
24.03.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 49
24.02.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 48
27.01.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 47
17.12.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.11.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
28.10.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
23.09.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
26.08.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
22.05.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
22.04.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.03.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.02.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
28.01.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica