Gamla - Æskulýðs- og tómstundaráð

Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 60

60. fundur

Fundur haldinn í æskulýðs- og tómstundaráði Hornafjarðar mánudaginn 24. maí 2004 kl. 17:10.

Mætt voru: Friðrik Ingvaldsson formaður, Elsa S. Elísdóttir, Gunnar Ingi Valgeirsson, Valdemar Einarsson, Þórgunnur Torfadóttir og Haukur H. Þorvaldsson æskulýðs - og tómstundafulltrúi.


Friðrik formaður setti fund og bauð ráðsfólk velkomið.

Gengið var til dagskrár:

1. Starfsemi Vinnuskólans í sumar.

Valur Sveinsson mætti á fundinn og gerði grein fyrir starfsemi Vinnuskólans í sumar.
Vinnuskólinn verður stafræktur í sumar með svipuðu sniði og venjulega. Þar vinna unglingar í 8. – 10. bekk, ásamt ungu fólki 17 ára og eldra. Unglingarnir fá mislangan vinnutíma en allir vinna þeir í 8 vikur og mætir 8. og 9. bekkur til starfa 7. júní og 10. bekkur mætir 14. júní. Leitast verður við að hafa verkefnin fjölbreytt og skemmtileg, einnig verður farið í skemmti- og vinnuferð á tímabilinu. Markmið skólans er að undirbúa unga fólkið fyrir vinnumarkaðinn og fá allir umsagnarbók þar sem gefið er fyrir stundvísi, framkomu, vandvirkni, sjálfstæði í vinnubrögðum, samvinnu og fleira. Unglingarnir geta notað umsögnina til að sýna vinnuveitendum er þeir sækja um starf á hinum almenna vinnumarkaði. Ellilífeyrisþegar geta fengið slátt í görðum sínum með góðum afslætti. Hátt í 70 umsóknir hafa borist um störf í Vinnuskólanum.
8 verða í slátturhópi og 8 í ofurhópi. Ábending kom fram um að haga vinnu við gangstéttargerð öðruvisi en verið hefur.
Verkstjórar eru Guðrún Ása Jóhannsdóttir og Helga Rún Guðjónsdóttir.
Skólagarðarnir undir Fiskhólnum verða starfræktir fyrir börn sem fædd eru 1991-1996. Börnin fá fræ, útsæði, plöntur og leiðsögn við ræktun algengustu grænmetis- og blómaplanta. Með þeim starfa leiðbeinendur sem koma þeim af stað með ræktunina og umhirðu garðanna. Lífræn ræktun er í skólagörðunum, engin eiturefni né tilbúinn áburður. Skólagarðarnir hefjast í byrjun júní.
Umsjón: Sigurborg Björnsdóttir.
Bæjarráð hefur sent frá sér bókun þar sem segir að Vinnuskólinn verði á starfssviði æskulýðs- og tómstundaráðs.
Haukur sagði að gert væri ráð fyrir að félagsmiðstöðin yrði opin á föstudögum fram í miðjan júlí. Þá daga sjá vinnuhópar um dagskrá í samvinnu við starfsmann félagsmiðstöðvar og flokkstjóra viðkomandi flokks.


2. Sumarbæklingur 2004.

Haukur gerði grein fyrir stöðu á útgáfu sumarbæklings 2004. Enn er ekki allt efni komið en hann vonast til að náist að gefa hann út um næstu mánaðarmót.

3. K.S.Í. sparkvöllur.

Knattspyrnusamband Íslands hefur tilkynnt að sveitarfélaginu Hornafirði hafi verið úthluta einum af þeim 60 sparkvöllum sem úthlutað var til sveitarfélaga. KSÍ sér um að leggja gervigrasið á vellina. Sveitarfélagið sótti um völl að stærðinni 35 x 18 m. Sér sveitarfélagið um að greiða þann kostnað sem hlýst af því að leggja gervigrasið á þá tvo metra sem eru umfram stærðarmörk KSÍ sem voru 18 x 33 metrar. Völlurinn verður staðsettur við Heppuskóla nánar tiltekið þar sem núverandi körfuboltavöllur er fellur hann að langhlið íþróttahússins og gengur 18 metra inn á körfuboltavöllinn. Í umsókninni til KSÍ var óskað eftir velli á árinu 2004. Er það eindregin von æskulýðs- og tómstundaráðs að framkvæmdir við gerð vallarins hefjist sem allra fyrst og fagnar þessu skrefi í átt að uppbyggingu íþróttamannvirkja í sveitarfélaginu.


4. Brettaaðstaða. Rauði krossinn.

Borist hefur erindi frá Rauðakrossdeildinni á Höfn þar sem segir að komið hafi til tals að deildin gefi brettapalla fyrir þá krakka sem eru á hjólabrettum hér. Hefur forathugun farið fram á svæði fyrir þessa starfsemi hjá tækni – og umhverfissviði. Þá hefur Haukur heyrt í mönnum í Reykjavík sem vit hafa á þessum málum og beðið þá um hugmyndir og kostnað og er einn þeirra tilbúinn að koma hingað austur um miðjan júní til að skoða aðstöðu og gera tilllögur um hvernig skuli uppbyggð. Einning heldur hann kynningu á jaðaríþróttum.


5. Erindi frá bæjarráði til ÆTH. Kynning.

Á fundi bæjarráðs 20. apríl var tekið fyrir erindi frá Íþrótta- og Olympíusambandi Íslands um “Ísland á iði”, göngu-/ og skokkhópar fyrir almenning og fyrirtækjakeppnin “Hjólað í vinnuna” 17.- 28. maí. Ráðið tók þessu erindi vel og fól Hauk að auglýsa upp hjólin og finna leiðbeinanda til að standa fyrir skokkhóp tímabundinð sem vonandi gæti orðið sjálfbær með tímanum. Haukur reyndi að finna fólk til að standa fyrir skokkhópi en tókst ekki, m.a. var auglýst eftir fólki. Þá var verkefnið “Hjólað í vinnuna” auglýst upp og vakin athygli á því á Hornfirska fréttavefnum. Er að sjá að þetta hafi borið árangur því fólk hefur í auknu mæli verið að hjóla í vinnuna.
Bæjarráð vísaði erindi frá Lýðheilsustöð til skólanefndar og æskulýðs- og tómstundaráðs. Í erindinu kemur fram að Lýðheilsustöð lýsir yfir áhuga á samráði við sveitarfélög um bætt mataræði og aukna hreyfingu barna og ungmenna.
Kynntar ályktanir frá 67. íþróttaþingi ÍSÍ sem haldið var í apríl m.a. um fyrirmyndarfélög, örugtt og heilbrigt umhverfi æskufólks þar sem þingið felur framkvæmdastjórn ÍSÍ að setja fram leiðbeinandi viðmiðunarreglur, varðandi samskipti þjálfara, leiðbeinenda og umsjónarmanna barna og unglinga, sveitarfélögin og íþróttir en þar fagnar þingið þeim skilningi sem nú á sér stað hjá mörgum sveitarfélögum í byggingu íþróttamannvirkja og niðurgreiðslum á æfinga – og þátttökugjöldum barna í íþróttum. Þingið hvetur önnur sveitarfélög til að fara að þessu fordæmi. Þá hvetur þingið sveitarstjórnir til að auka framlög til reksturs íþrótta- og ungmennafélaga m.a. með því að fjármagna ráðningu starfsmanns.
Þá vísaði bæjarráð erindi Vinnueftirlitsins um áhættumat vegna vinnu barna- og unglinga til tækni- og umhverfissviðs og æskulýðs- og tómstundaráðs. Haukur ásamt verkstjórum vinnuskólans eru að vinna í málinu.



6. Umhirða íþróttavalla og umsjón.

Haukur vekur athygli ráðsfólks á umhirðu og umsjón valla á Sindravöllum og í Nesjum. Í framhaldi af þessu leggur ÆTH fram eftirfarandi bókun: Með uppbyggingu á völlum á svæði Sindravalla skapast mun meiri unhirða og um leið umsjón á því svæði. ÆTH fer fram á að tækni- og umhverfissvið ásamt æskulýðs- og tómstundafulltrúa fundi með stjórn knattspyrnudeildarinnar og gera plan yfir faglegan þátt umhirðunnar s.s. áburðarnotkun, sandburð og að rétt slátturvél sé notuð á vallarsvæðinu. Þetta sama á líka við um Mánavöll. Undanfarin ár hafa staðið deilur um afnotarétt vallarins og rétt annara félaga en Mána til að nota hann. Þessvegna er mjög mikilvægt að fáist skýr svör við hver og hverjir megi nota hann. Mikilvægt er að báðir vellirnir falli undir eina vallarstjórn sem skipuð er aðilum frá Sindra, Mána, tækni- og umhverfissviði og æskulýðs- og tómstundaráði. Vallarstjórninni verði komið á hið fyrsta. Skal leita eftir tilnefningum í hana frá sviðum og félögum og verði það í verkahring æskulýðs- og tómstundafulltrúa.


7. Unglingalandsmót 2006.

Á fundi í ungmennasambandinu Úlfljóti 27.04 2004 var samþykkt að kanna möguleika á að halda Unglingalandsmót UMFÍ árið 2006 á Hornafirði. Sem keppnisgreinar voru nefndar, frjálsar íþróttir, knattspyrna, sund, golf, glíma, hestaíþróttir, fimleikar og hokký leikið á hjólaskautum mætti amk. vera til kynningar. Að sögn Jóns G. Gunnarssonar starfsmanns USÚ hefur sambandið formlega sótt um að halda unglingalandsmótið 2006. Bæjarráð Hornafjarðar segir í bókun sinni um málið, að það hvetji íþróttahreyfinguna á Hornafirði til að sækja um að unglingalandsmótið verði haldið á Hornafirði árið 2006. Engar kvaðir eru um frekari uppbyggingu íþróttamannvirkja umfram það sem er í dag vegna þeirrar umsóknar.
Æskulýðs- og tómstundaráð leggur mikla áherslu á að það sé ekki fagnaðarefni að fá unglingalandsmót á Hornafjörð nema að verulegar endurbætur á íþróttamannvirkjum eigi sér stað fyrir mótið þannig að við getum stolt tekið á móti þeim mikla fjölda fólks sem sækir slík mót.


8. Önnur mál.

ÆTH leggur til að sundlaugin verði opin á stórhátíðisdögum og einnig verði skoðað að lengja opnun á Humarhátið.


Fundi slitið kl. 19:15.

Friðrik Ingvaldsson
Elsa S. Elísdóttir
Gunnar Ingi Valgeirsson
Valdemar Einarsson
Þórgunnur Torfadóttir

Haukur H. Þorvaldsson.


Fundargerðir

Dag.grein
16.02.2012 Fundarplan nefnda 2012
19.05.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 100
22.04.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 99
27.03.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 98
21.02.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 97
17.01.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 96
13.12.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 95
15.11.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 94
18.10.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 93
20.09.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 92
03.09.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 91
26.06.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 90
04.06.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 89
30.04.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 88
26.03.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 87
05.03.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 86
22.01.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 85
27.11.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 84
23.10.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 83
23.10.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 83
25.09.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 82
28.08.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 81
28.06.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 80
22.05.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 79
03.05.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 78
27.03.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 77
27.02.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 76
23.01.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 75
22.01.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 85
05.12.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 74
10.11.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 73
24.10.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 72
26.09.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 71
21.09.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 70
23.05.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 69
25.04.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 68
06.04.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 67
28.02.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 66
24.01.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 65
22.11.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 64
25.10.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 63
27.09.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 62
01.09.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 61
24.05.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 60
26.04.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 59
22.03.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 58
01.03.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 57
26.01.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 56
04.12.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 55
20.10.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 54
22.09.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 53
25.08.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 52
26.05.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 51
05.05.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 50
24.03.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 49
24.02.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 48
27.01.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 47
17.12.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.11.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
28.10.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
23.09.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
26.08.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
22.05.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
22.04.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.03.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.02.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
28.01.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica