Gamla - Æskulýðs- og tómstundaráð
Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 59
59. fundur
Fundur haldinn í æskulýðs- og tómstundaráði Hornafjarðar mánudaginn 26. apríl 2004 kl. 17:10.
Mætt voru: Friðrik Ingvaldsson formaður, Gunnar Ingi Valgeirsson, Þórgunnur Torfadóttir og Haukur H. Þorvaldsson æskulýðs - og tómstundafulltrúi.
Friðrik formaður setti fund og bauð ráðsfólk velkomið.
Gengið var til dagskrár:
1. Heimsókn Vöndu. Brottfall unglinga úr íþróttum.
Þórgunnur greindi frá heimsókn Vöndu Sigurgeirsdóttur æskulýðs- og íþróttafrömuðar hingað til Hornafjarðar dagana 14.-16 apríl. Tilefni heimsóknar Vöndu var að ræða um brottfall unglinga úr íþróttum. Vanda fór í skóla og ræddi þessi mál við nemendur í 4. ? 10. bekk einnig við skólamenn, foreldra, stjórnir íþróttafélaga, íþróttaþjálfara og aðra sem þessi mál varða. Voru þetta allt góðir og gagnlegir fundir og vel sóttir. Var skipaður verkefnahópur sem hefur það að leiðarljósi að vinna að stefnumörkun og námskrá innan Sindra. Vanda mun senda hingað austur samantekt úr heimsókninni og hvað hún leggur áherslur á. Munu menn fara yfir hana m.a. í Sindra og æskulýðs- og tómstundaráði. Ráðið lýsir yfir ánægju með heimsókn Vöndu og þátt Þórgunnar í komu hennar. Vonar ráðsfólk að hún skili árangri.
2. K.S.Í. sparkvöllur.
Knattspyrnusamband Íslands hefur sent sveitarfélögum erindi um samstarf um uppbyggingu sparkvalla í sveitarfélögum. Fram kemur í erindinu að KSÍ muni leita eftir samstarfi við sveitarfélög og gera við þau samning um byggingu sparkvalla , helst á skólasvæðum. Hlutur sveitarfélaganna verður jarðvegsvinna (undirlag vallar) og uppsetning ramma um völlinn. Vellirnir eru 18 x 33 metrar þó mega þeir vera stærri og minni, minni þar sem rými takmarkast af stærð skólalóðar og stærri til þess að gefa möguleika á fleiri þátttakendum í hvert sinn. Bæjarráð fjallaði um erindið á fundi sínum 20. apríl og vísaði því til æskulýðs- og tómstundaráðs og umhverfis- og tæknisviðs og bað um tilllögu að útfærslu og kostnaðaráætlun. Friðrik lagði til að völlurinn verði staðsettur við Heppuskóla nánar tiltekið þar sem núverandi körfuboltavöllur er og verði stærð hans 35 x 18 metrar. Völlurinn falli að langhlið íþróttahúss og gangi 18 metra inn á körfuboltavöllinn. Ráðið samþykkir tilllögu Friðriks. Þá vill ráðið að lagður verði hiti í völlinn. Þórgunnur bar þau boð af skólastjórafundi í grunnskólum Hornafjarðar þar sem þessi mál kom til umræðu að þar hafi verið uppi sú skoðun að völlurinn yrði staðsettur við Heppuskóla. Ráðið leggur til að sótt verði um völlinn fyrir árið 2004.
3. Brettaaðstaða. Rauði krossinn.
Borist hefur erindi frá Rauðakrossdeildinni á Höfn þar sem segir að komið hafi til tals að deildin gefi brettapalla fyrir þá krakka sem eru á hjólabrettum hér. Hefur forathugun farið fram á svæði fyrir þessa starfsemi hjá tækni ? og umhverfissviði. Þá hefur Haukur heyrt í mönnum í Reykjavík sem vit hafa á þessum málum og beðið þá um hugmyndir og kostnað. Þórgunnur taldi að besti kosturinn væri að deildin gæfi ákveðna fjárupphæð til að byggja rampa fyrir brettinn auk þess að afla sjálfboðaliða við vinnu á móti legði sveitarfélagið til malbikað svæði fyrir íþróttina og aðstoðaði við uppbyggingu rampana. Gott væri að staðsetningin yrði á miðbæjarsvæði. Löngun deildarinnar er að tilkynna um þessa gjöf ef af yrði á alþjóðadegi Rauða krossins þann 8 maí nk. Æsklýðs- og tómstundaráð fagnar þessu frumkvæði Rauðakrossdeildarinnar.
4. ?Ísland á iði?
Á fundi bæjarráðs 20. apríl var tekið fyrir erindi frá Íþrótta- og Olympíusambandi Íslands um Ísland á iði, göngu-/ og skokkhópar fyrir almenning og fyrirtækjakeppnin ?Hjólað í vinnuna? 17.- 28.maí. Vísaði bæjarráð erindinu til umfjöllunar í æskulýðs- og tómstundaráði. Í verkefninu Ísland á iði er óskað erftir stuðningi sveitarfélagsins við að koma á fót göngu ? og skokkhópum sem myndu starfa a.m.k. fram að Kvennahlaupi ÍSÍ þann 19.júní. Gert er ráð fyrir að hópurinn hefji skokkið 10.- 14.maí og boðið verði upp á æfingar 2 -3 sinnum í viku, helst undir stjórn viðurkennds leiðbeinanda án endurgjalds þátttakenda. Leitað er eftir stuðningi sveitarfélagsins við að standa straum af launakostnaði við leiðbeinanda. Meginmarkmið verkefnisins ?Hjólað í vinnuna? er að vekja athygli á hjólreiðum sem heilsusamlegum, hagkvæmum og umhverfisvænum samgöngumáta. Óskað er eftir liðsinni sveitarfélagsins við að hvetja vinnustaði á sínu svæði til þátttöku. Ráðið tók þessuu erindi vel og fól Hauk að auglýsa upp hjólin og finna leiðbeinanda til að standa fyrir skokkhóp tímabundinð sem vonandi gæti orðið sjálfbær með tímanum.
5. Starfsemi Vinnuskólans.
Haukur náði ekki að koma boðum til Vals Sveinssonar fyrir fund og er málinu frestað.
Ráðið hefur undanfarin ár fjallað um starfsemi Vinnuskólans þó hann sé ekki í þess umsjá. Spurningin er undir hvaða nefnd heyra málefni Vinnuskólans og í hvaða farvegi er hann í dag. Æskulýðs- og tómsstundaráð hefur viljað fylgjast með vinnutilhögun unglinga í Vinnuskólanum og vinnu fyrir 16 ára og eldri og hefur þessvegna sóst eftir upplýsingum um starfsemi hans árlega.
6. Unglingalandsmót 2005 og 2006. Umsóknir.
Minnnispunktar hafa borist frá starfsmanni U.S.Ú. að umsóknarfrestur um að halda Unglingalandsmót 2005 eða 2006 rennur út 5. mai nk. Á fundi ráðsins í desember þar sem þetta var rætt leist því vel á hugmyndina um að sækja um unglingalandsmót og taldi að það gæti orðið mikil lyftistöng fyrir íþrótta- og æskulýðsstarf í sveitarfélaginu. Það verður hinsvegar ekki nema fyrir liggi að sveitarfélagið sé tilbúið að leggja í þær framkvæmdir á íþróttamannvirkjum sem til þarf fyrir slíkt mót. Því ljóst er að undirstaða fyrir mótin eru góð íþróttamannvirki sem bæði keppendur og sveitarfélagið geti verið stolt af. Jón Gunnar Gunnarsson starfsmaður USÚ ætlar að kalla stjórn sambandsins samnan í vikunni til að fjalla um unglingamótið og boðar starfsmann nefndarinnar á þann fund..
Fundi slitið kl. 19:25.
Haukur H. Þorvaldsson.
Friðrik Ingvaldsson
Gunnar Ingi Valgeirsson
Þórgunnur Torfadóttir


