Gamla - Æskulýðs- og tómstundaráð

Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 58

58. fundur

Fundur haldinn í æskulýðs- og tómstundaráði Hornafjarðar mánudaginn 22. mars 2004 kl. 20:10.

Mætt voru: Friðrik Ingvaldsson formaður, Gunnar Ingi Valgeirsson, Valdemar Einarsson, Elsa S. Elisdóttir, Þórgunnur Torfadóttir og Haukur H. Þorvaldsson æskulýðs - og tómstundafulltrúi.


Friðrik formaður setti fund og bauð ráðsfólk velkomið.

Gengið var til dagskrár:

1. Forvarnamál. Brottfall unglinga úr íþróttum.

Þórgunnur greindi frá fundi með skóla- og íþróttafólki hér og væntanlegri heimsókn Vöndu Sigurgeirsdóttur æskulýðs- og íþróttafrömuðar hingað til Hornafjarðar í apríl. Þórgunnur sagði tilefni heimsóknar Vöndu vera þá að ræða brottfall unglinga úr íþróttum. Hún færi í skóla, ræddi þessi mál við nemendur í 4. – 10. bekk, skólamenn, foreldra, stjórnir íþróttafélaga og íþróttaþjálfara og aðra sem þessi mál varða. Haukur sagði að hægt væri að leita eftir fjármagni sem verja á til forvarna í sveitarfélaginu vegna kostnaðar við þessa heimsókn. Ráðsmenn tóku þessu vel og hétu fyllsta stuðningi við það.



2. Útgáfa sumarbæklings.

Undanfarin ár hefur æskulýðs- og tómstundaráð gefið út sumarbækling með efni sem varðar börn og unglinga yfir sumartímann s.s. íþrótta- og tómstundaframboð ásamt öðrum nauðsynlegum upplýsingum. Hefur útgáfan mælst vel fyrir. Mjög erfiðlega hefur gengið að ná í þær upplýsingar sem ætlaðar eru í bæklinginn og hefur útgáfa hans oft dregist vegna þess og bæklingurinn þannig ekki komið fullkomlega að þeim notum sem skyldi. Ráðið vill gera tilraun til að gefa bæklinginn út en ef viðbrögð félaga við upplýsingum í bæklinginn dragast á langinn þá getur komið til þess að hann komi ekki út.


3. Starfsemi félagsmiðstöðvarinnar í sumar.

Rætt var um starfsemi félagsmiðstöðvarinnar í sumar. Rætt var um að skoða hvort hægt væri að samþætta einhverja starfsemi í félagsmiðstöðinni og vinnuskólanum. Hauki var falið að ræða það við stjórnendur vinnuskólans. Rætt var um opnunartíma að degi til hjá 8.-10. bekk á miðvikudögum og hvort þörf er á að endurskoða hann vegna dræmrar aðsóknar. Ekki er annar tími auðfundinn en starfsmenn munu leita ráða og skoða hvort breytinga er almennt þörf á opnunartímum í félagsmiðtöðinni á næsta starfstímabili. Almennt hefur aðsókn að félagmiðstöðinni verið fremur dræm í vetur. Nú hefur ekkert minna starf eða framboð verið en áður en eitthvað veldur þessu og hafa bæði starfsmenn og Þrykkjuráð sem unglingar skipa rætt þetta. Haukur fór yfir opnunartíma félagsmiðstöðvarinnar almennt og þá vikustarfsemi sem er í Sindrabæ. Á hverjum virkum degi vikunnar er alltaf eitthvað um að vera. Lagði Haukur fram dagskrá og opnunartíma hjá nokkrum félagsmiðstöðvum og var það í takt við það sem er í Þrykkjunni. Haukur vill taka fram að nú þegar er búið að ákveða að félagsmiðstöðin verði næstu árin til húsa í Sindrabæ verði reynt að taka húsnæðinu tak og færa það að smekk unga fólksins. Þegar eru unglingar byrjaðir að gera skissur á vegg eftir sínu höfði með umsjón handmenntakennar og ætla síðan að mála hann. Þá verður að taka í gegn bakrýmið og eins endurskipuleggja rými í sal. Ráðið leggur til að reynt verði að fá nefnd sem skipuð er starfsmönnum, unglingum, foreldrum og tæknimönnum til að spá í starfið og hvernig húsnæðið muni best nýtast sem félagsmiðstöð unglinga. Félagsmiðstöðin er vel búin tækjum. Ekki er endalaust hægt að bæta við tækjum enda úrval tækja takmarkað sem hægt er að fá í félgamiðstöðvarnar. Enn og aftur leggur Haukur áherslu á að starfskraftur í fullri stöðu verði ráðinn að félagsmiðstöðinni til að vinna eingöngu með börnum og unglingum. Með því móti er hægt að gera starfið enn öflugra. Tveir starfsmenn eru nú í hlutastörfum.

4. Önnur mál

Haukur greindi frá því að Hulda Laxdal Hauksdóttir hefur skipulagt einn þátt í verkefninu –Fjölskyldan –Saman –gaman. Nú í vikunni er íþróttavika þar sem þjálfarar bjóða foreldrum á æfingu sinna barna. Búið var að skipuleggja Skautadag en síðan hann var settur á dagskrá hefur ekki gert frost og bíður hann næsta vetrar. Þá er framundan í næsta mánuði Hestadagar. Ekkert starf í verkefninu verður í sumar. Hulda mun leggja fyrir hvaða kostnaður fylgir þessari skipulagningu af hennar hálfu með það í huga að styrkur komi úr Sérsjóði æskulýðs- og tómstundaráðs í það.
Þá greindi Haukur frá 500.þús. kr. styrk sem verkefnið –Ungt fólk, frumkvæði og menning –menningadagar og málþing fékk frá Menningarráði Austurlands. Þetta verkefni er samstarfsverkefni nokkurra ráða, nefnda og stofnana sem koma að starfi með ungu fólki á aldrinum 16 – 25 ára á Hornafirði. Aðalstarfið hefst í ágúst nk. Þá var líka sótt um styrk í þetta verkefni til Æskulýðssjóðs ríkisins.



Fundi slitið kl. 21:40.

Haukur H. Þorvaldsson.


Friðrik Ingvaldsson
Valdemar Einarsson
Gunnar Ingi Valgeirsson
Þórgunnur Torfadóttir
Elsa S. Elísdóttir


Fundargerðir

Dag.grein
16.02.2012 Fundarplan nefnda 2012
19.05.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 100
22.04.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 99
27.03.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 98
21.02.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 97
17.01.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 96
13.12.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 95
15.11.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 94
18.10.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 93
20.09.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 92
03.09.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 91
26.06.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 90
04.06.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 89
30.04.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 88
26.03.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 87
05.03.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 86
22.01.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 85
27.11.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 84
23.10.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 83
23.10.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 83
25.09.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 82
28.08.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 81
28.06.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 80
22.05.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 79
03.05.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 78
27.03.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 77
27.02.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 76
23.01.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 75
22.01.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 85
05.12.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 74
10.11.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 73
24.10.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 72
26.09.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 71
21.09.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 70
23.05.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 69
25.04.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 68
06.04.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 67
28.02.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 66
24.01.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 65
22.11.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 64
25.10.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 63
27.09.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 62
01.09.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 61
24.05.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 60
26.04.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 59
22.03.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 58
01.03.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 57
26.01.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 56
04.12.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 55
20.10.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 54
22.09.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 53
25.08.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 52
26.05.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 51
05.05.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 50
24.03.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 49
24.02.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 48
27.01.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 47
17.12.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.11.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
28.10.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
23.09.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
26.08.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
22.05.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
22.04.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.03.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.02.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
28.01.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica