Gamla - Æskulýðs- og tómstundaráð
Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 57
57. fundur
Fundur haldinn í æskulýðs- og tómstundaráði Hornafjarðar mánudaginn 1. mars 2004 kl. 20:10.
Mætt voru: Friðrik Ingvaldsson formaður, Gunnar Ingi Valgeirsson, Valdemar Einarsson, Elsa S. Elisdóttir, Þórgunnur Torfadóttir og Haukur H. Þorvaldsson æskulýðs - og tómstundafulltrúi.
Friðrik formaður setti fund og bauð ráðsfólk velkomið.
Gengið var til dagskrár:
1. Forvarnamál. Foreldrafundir 23.og 24.febrúar 2004.
Haukur greindi frá foreldrafundum um forvarnamál sem haldnir voru í fundarsal Nýheima mánudagskvöldið 23.febrúar með foreldrum barna í 7. og 8. bekk og þriðjudagskvöldið 24.febrúar með foreldrum unglinga í 9. og 10. bekk. Á þessum fundum var kynnt könnun sem fyrirtækið Rannsókn & greining hefur unnið fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð í því augnamiði að varpa ljósi á vímuefnaneyslu hornfirskra ungmenna í 8.- 10. bekk. Þessi könnun fyrir sveitarfélagið var unnin út úr landskönnun sem Rannsókn & og greining gerði á árunum 1997 – 2003. á lífsstíl, líðan og hugmyndum ungmenna á grunn- og framhaldsskólaaldri á Íslandi. Á fundina kom Jón Sigfússon starfsmaður Rannsóknar& greiningar og kynnti hann niðurstöður sem segja okkur að ástandið hér er ekki nógu gott í þessum málum meðal hornfirskra ungmenna. Í sumum tilfellum mun verra en í samanburðarhópunum sem í eru ungmenni á öllu landinu og ungmenni á Austurlandi. Í öðrum tilfellum var er ástandið svipað en sjaldnast mikið betra. Jón fléttaði inn í kynninguna ýmsum þáttum úr skýrslu sem Rannsókn og greining vann fyrir Menntamálaráðuneytið og nefnist Menntun, menning og íþróttaiðkun íslenskra ungmenna. Þar koma fram mjög gagnlegar upplýsingar fyrir foreldra og þá sem vinna að forvörnum. Fundirnir voru þannig uppsettir að Jón kynnti niðurstöður og á eftir sat hann ásamt fleirum fyrir svörum um niðurstöðurnar. Urðu gagnleg og ágæt skoðanaskipti meðal fundarfólks á fundunum. Það gleðilega gerðist á fyrri fundinum að foreldrar hittust á óformlegum fundi eftir hann og ræddu saman. Er vonandi að það sé kveikja að foreldrastarfi. Má segja að útgangspunkturinn á fundunum hafi verið að ná betri samstöðu meðal þeirra sem koma að uppeldi og ýmsu starfi með börnum og unglingum. Þarf að eiga sér stað öflug vakning í þessum málum til að allir stefni í sömu átt. 25 foreldrar mættu á hvorn fund. Möguleiki er á að fá Rannsókn & greiningu til að fara dýpra í rannsóknir á ástandin hér og greina hvar vandinn liggur ef mönnum sýnist svo. Æskulýðs- og tómstundaráð leggur til að sá möguleiki verði kannaður að fá Rannsókn og greiningu til að vinna bakgrunnsrannsókn sem gæti skýrt út hvar vandinn liggur. Þá er alveg ljóst að ná þarf betri tengslum milli þeirra aðila sem geta stutt við vinnu í forvörnum og var Hauki falið að ná saman fundi sem fyrst með þessum aðilum og biðja þá að íhuga á hvern hátt hver og einn getur lagt þessum málum lið.
2. Önnur mál
Haukur greindi frá heimsókn Petrúnar Jónsdóttir til Hornafjarðar sl. fimmtudag en hún er kynningarfulltrúi hjá Íþrótta- og olympíusambandi Íslands með áherslu á fyrirmyndarfélagið. Petrún hitti að mál forsvarsmenn íþróttafélaga hér á Hornafirði og ungmennasambandsins Úlfljóts. Á fundinum kynnti Petrún hvað þyrfti til að félag eða deild áinni sér nafnbótina fyrirmyndarfélag. Hvatti hún fólk til dáða og kíkti við í íþróttahúsinu á blakæfingu enda er Petrún landliðsþjálfari kvenna í blaki.
Ársreikningar umf. Sindra fyrir árið 2003 verða formlega lagðir fram á aðalfundi félagsins sem haldinn verður í Hafnarskóla annað kvöld. Samkvæmt upplýsingum ráðsins er ljóst að af sjö deildum félagsins skila tvær hagnaði knattspyrnudeild og frjálsíþróttdeild aðrar deildir og aðalstjórn sýna tap upp á rúmlega 400.þúsund. Velta félagsins á árinu var tæpar 45 milljónir þar af var knattspyrnudeildin með rúmlega 23. milljónir, ekki er velta yngri flokka félagsins að fullu inn í þessum tölum.
Fundi slitið kl. 21:40.
Friðrik Ingvaldsson Haukur H. Þorvaldsson.
Valdemar Einarsson
Gunnar Ingi Valgeirsson
Þórgunnur Torfadóttir
Elsa S. Elísdóttir


