Gamla - Æskulýðs- og tómstundaráð

Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 56

56. fundur

Fundur haldinn í æskulýðs- og tómstundaráði Hornafjarðar fimmtudaginn
26. janúar 2004 kl. 17:10.

Mætt voru: Friðrik Ingvaldsson formaður, Gunnar Ingi Valgeirsson, Valdemar Einarsson, Elsa S. Elisdóttir, Þórgunnur Torfadóttir og Haukur H. Þorvaldsson æskulýðs - og tómstundafulltrúi.


Friðrik formaður setti fund og bauð ráðsfólk velkomið.

Gengið var til dagskrár:
1. Styrkveiting
Farið var yfir umsóknir sem borist hafa ráðinu um styrkbeiðnir frá ýmsum félögum. Gengið var til afgreiðslu og voru styrkir til eftirtalinna félaga samþykktir:

Umf. Sindri til afborgunar á láni kr. 1250.000.00.
Sindri til almenns rekstrar kr. 1920.000.00.
Reiknuð húsaleiga í Íþróttahúsi Höfn kr. 3200.000.00.
Vegna leikjanámskeiðs kr. 750.000.00.
Sunddeild Sindra (leiga á sundlaug) kr. 150.000.00.

Umf. Máni.
Til íþróttastarfsemi kr. 200.000.00.

Golfklúbbur Hornafjarðar
Framlag vegna framkvæmdasamnings kr. 2100.000.00.
Framlag vegna barna- og ungmennastarfs kr. 400.000.00.

Hestamannafélagið Hornfirðingur
Framlag vegna framkvæmdasamnings kr. 1250.000.00
Framlag vegna barna- og ungmennastarfs kr. 300.000.00.

Hestamenn á Ægissíðu
Vegna unglingastarfs kr. 70.000.00.

Skotfélag Austur-Skaftafellssýslu
Framlag til framkvæmda og starfs kr. 70.000.00.

Dansklúbburinn Taktur
Starfsstyrkur kr. 20.000.00.
Ætlast er til að styrknum verði varið í barna- og ungmennastarf.

Danshópur Mána
Starfsstyrkur kr. 20.000.00.
Ætlast er til að styrknum verði varið í barna – og ungmennastarf.

Sérsjóðurinn
Framlag í Sérsjóð ÆTH kr. 200.000.00.

Umsóknum frá bútasaumsfélaginu Ræmunum og Ungmennafélagi Öræfa var hafnað.

Alls eru veittir styrkir að upphæð 11.900.000.00. kr.


2. Styrkveitingar til efnilegra íþróttamanna og sérverkefna úr Sérsjóði.
Haukur greindi frá því að hann hefði sent út bréf 10.desember til íþróttafélaga þar sem óskað var eftir tilnefningum í að styrkja unga og efnilega íþróttamenn og ef sérstök verkefni væri upp á borði sem Sérsjóðurinn gæti styrkt.
Ábendingar bárust um íþróttafólk frá knattspyrnudeild Sindra þeim Birni Pálssyni og Guðrúnu Ásu Jóhannsdóttur eins var stungið upp á Bjarna Malmquist frjálsíþróttamanni. Fær hver þessara íþróttamanna 20.000 kr. í styrk til að nota í æfingar og ferðalög til að efla sig í íþrótt sinni. Tvær umsóknir komu um sérverkefni frá Fimleikadeild Sindra til styrkja unga og efnilega íþróttamanna til að fara á Trompfimleikamót og Huldu Laxdal Hauksdóttur vegna verkefnisins Fjölskyldan saman/gaman. Var fimleikadeildinnni styrkt um 75.000 kr. Var ákveðið að veita Huldu styrk eftir að kostnaður við verkefnið liggur fyrir.

3. Opnun sundlaugar. Verðskrá.
Sundlaugin var opnuð fimmtudaginn 22.janúar sem er þrem vikum fyrr en undanfarin ár. Ekki vildi betur til þennan fyrst opnunardag en að bilun kom upp í vatnsbúnaði sem olli því að vatn náði að streyma undir laugardúkinn sem varð þess valdandi að ekki var hægt fyrr gesti að fá sér sundsprett. Ákveðið var að opnunartímar í vetur verði frá kl. 07:00 – 09:00 og 16:00 – 20:00 virka daga og frá 09:00 til 15:00 um helgar. Frá júní til loka ágúst verði opið á virkum dögum frá kl. 07:00 – 20:30 og um helgar frá 0900 – 18:00. Varðandi opnun um Humarhátíð er mælst til þess að opið verði í sturtur frá kl.18:00 - 21:00 föstudag og laugardag. Kemur þetta til vegna umræðu sem upp kom eftir Humarhátíð í fyrra.
Verðskrártillögur ráðsins vegna sundlaugar voru samþykktar í bæjarráði í desember.

4. Forvarnamál.
Á miðvikudaginn kemur verður haldinn fundur með lykilaðilum sem hvað mest varða forvarnir á Hornafirði. Á þessum fundi verður farið yfir og rætt innihald skýrslu sem inniheldur könnun sem Rannsókn og greining gerði í mars 2003 á vímuefnaneyslu nemenda í 8.-9. og 10. bekk á Hornafirði. Í framhaldi af þeim fundi verður boðað til fundar með foreldru nemenda í 7.- 10. bekk.
Haukur sýndi ráðsfólki forvarnaplaggöt sem 8. bekkingar í Heppuskóla gerðu í lok forvarnavinnu sem hann ásamt Árna Pétri Hilmarssyni kennara í skólanum unnu með nemendunum í haust. Lauk vinnunni í byrjun desember með því að 8. bekkingar kynntu plaggötin sín fyrir öðrum nemendum Heppuskóla og í lokin fengu nemendur afhent viðurkenningaskjal fyrir þátttökuna og eins voru veitt verðlaun fyrir þrjú bestu plaggötin. Þá greindi Haukur frá því að hann og Sindri Ragnarsson starfsmaður í Þrykkjunni hefur farið í heimsókn í 6. og 7. bekk Hafnarskóla og gefið nemendum segulmiða með útivistarreglum og rætt við þau um útivist, reykingar og áfengi. Var skólanum gefin forvarnaplaggöt í lok þessara heimsóknar sem 8. bekkingar höfðu hannað. Þá hefur Nesjaskóla verið afhent plaggöt.

5. Humarhátíð 2004.
Ráðið ræddi síðustu Humarhátíð og þá sem framundan er. Ráðinu fannst að hátíðin í fyrra hefði verið á mörkum þess að fara úr böndum og lýsir áhyggjum yfir komandi hátíð ef engin breyting verður á tilhögun. Þá hefur það áhyggjur af mikilli drykkju unglinga á hátíðinni. Ráðinu finnst rétt að ræða næstu hátíð á breiðum grundvelli með þátttöku þeirra sem að henni koma beint og óbeint.

6. Önnur mál.
Friðrik lagði fram eftirfarandi bókun: Nú fer í hönd endurskoðun á þriggja og tíu ára fjárhagsáætlunum Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Æskulýðs- og tómstundaráð skorar á háttvirta bæjarstjórn að taka nú myndarlega til hendinni hvað varðar uppbyggingu íþróttamannvirkja sem og eflingu þess íþrótta – og tómstundastarfs sem stundað er innan sveitarfélagsins. Minnt er á að á síðasta ári var lagt í mikla vinnu í stefnumótun málaflokksins og að ætla mætti að sú vinna komi að góðum notum við ákvörðunartöku við þessa endurskoðun. Það er von ráðsins að hægt verði að auka það fjármagn sem veitt er í þennan málaflokk umtalsvert frá því sem nú er.
Samþykkti ráðið bókunina.
Litboltafélag Hornafjarðar var til umræðu og greindi Gunnar Ingi frá reglum og starfsemi þess og leist ráðsmönnum vel á þetta framtak.
Ákveðið að fundir í febrúar og mars verði kl. 20:00.


Fundi slitið kl. 19:40.

Friðrik Ingvaldsson
Valdemar Einarsson
Gunnar Ingi Valgeirsson
Þórgunnur Torfadóttir
Elsa S. Elísdóttir

Haukur H. Þorvaldsson.



Fundargerðir

Dag.grein
16.02.2012 Fundarplan nefnda 2012
19.05.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 100
22.04.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 99
27.03.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 98
21.02.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 97
17.01.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 96
13.12.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 95
15.11.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 94
18.10.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 93
20.09.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 92
03.09.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 91
26.06.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 90
04.06.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 89
30.04.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 88
26.03.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 87
05.03.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 86
22.01.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 85
27.11.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 84
23.10.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 83
23.10.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 83
25.09.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 82
28.08.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 81
28.06.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 80
22.05.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 79
03.05.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 78
27.03.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 77
27.02.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 76
23.01.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 75
22.01.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 85
05.12.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 74
10.11.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 73
24.10.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 72
26.09.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 71
21.09.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 70
23.05.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 69
25.04.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 68
06.04.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 67
28.02.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 66
24.01.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 65
22.11.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 64
25.10.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 63
27.09.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 62
01.09.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 61
24.05.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 60
26.04.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 59
22.03.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 58
01.03.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 57
26.01.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 56
04.12.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 55
20.10.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 54
22.09.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 53
25.08.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 52
26.05.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 51
05.05.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 50
24.03.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 49
24.02.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 48
27.01.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 47
17.12.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.11.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
28.10.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
23.09.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
26.08.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
22.05.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
22.04.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.03.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.02.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
28.01.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica