Gamla - Umhverfisnefnd
Fundargerð umhverfisnefndar 97
97. fundur
Fundur í umhverfisnefnd Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, miðvikudaginn 28. apríl 2010 og hófst hann kl. 12:00Fundinn sátu:
Sigurlaug Gissurardóttir, Þóra Vilborg Jónsdóttir, Valdemar Einarsson, Miralem Haseta, Haukur Ingi Einarsson,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs
Dagskrá:
1. 201004056 - Drög 3 að stjórnunar- og verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs
Farið yfir drög 3 að stjórnunar- og verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs 13.apríl 2010
Farið var yfir kafla er snúa að suðursvæði, teknir voru saman neðangreindir minnispunktar og starfsmanni falið að koma minnispunktunum áfram á rétta aðila.
Kafli 9.1. Jökulsker, Ábending gisting á jökulskerjum er óheimil óskað eftir skýrari orðalagi um gistingu á jökli utan jökulskerja.
Kafli 9.2. Kjósa og Skaftafellsfjöllum, Ábending umhverfisnefnd kvetur til merkinga gögnuleiða og að notað verði efni úr nærumhverfinu.
Kafli 9.2. Heinabergsdalur og Vatnsdalur, Ábending umferð um veg inn Heinabergsdalinn verði takmörkuð við hefðbundnar nytjar.
Kafli 9.3. Aðal aðkomuleiðir, Ábending vantar að tilgreina veg upp að Skálafellsjökli við Jöklasel F985.
Kafli 9.3. Gönguleiðir, Ábending huga að samfelldri gögnuleið frá Lónsöræfum að Skaftafelli og fjallaskála á þeirri leið.


