Gamla - Umhverfisnefnd
Fundargerð umhverfisnefndar 95
95. fundur
Fundur í umhverfisnefnd Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, fimmtudaginn 11. mars 2010 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu:
Sigurlaug Gissurardóttir, Þóra Vilborg Jónsdóttir, Valdemar Einarsson, Haukur Ingi Einarsson,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs
Dagskrá:
1. 200909035 - Breyting á Aðalskipulagi Hornafjarðar, Vatnsveita, hitaveita og þjóðvegur í þéttbýli
Bæjarráð vísaði erindinu til umhverfisnefndar á síðasta fundi sínum 8. mars sl.
Lagt fram til kynningar og áframhaldandi vinnu starfsmanna.
2. 200711005 - Umhverfisviðurkenning
Umhverfisviðurkenning fyrir árið 2009
Engar tillögur bárust. Umhverfisnefnd er sammála um að auglýsa aftur eftir tillögum að umhverfisviðurkenningu.
3. 200905043 - SAMÞYKKT um umgengni og þrifnað utan húss á starfssvæði heilbrigðisnefndar Austurlands
Reglur lagðar fram til umfjöllunar
Umhverfisnefnd leggur áherslu á að reglurnar verði formlega afgreiddar af bæjarstjórn.
4. 201002029 - Miðbæjarskipulag við Hafnarbraut, Tjarnarbrú, nýju sundlaug og íþróttasvæði
Hugmyndir að miðbæjarsvæði lagðar fram til kynningar og umræðu.
Umhverfisnefnd hvetur til þess að gengið verði frá Tjarnarlundi svæðinu í nágrenni nýju sundlaugarinnar, í anda teikninga gerðum af Þráni Haukssyni landslagsarkitekt. Jafnframt hvetur umhverfisnefnd til að grassvæðið við Miðbæ verði hækkað upp og gert meira aðlaðandi meðan ekki er fyrirséð að hafnar verði byggingar á svæðinu. Einnig mætti huga að fleiri svæðum svo sem undir Fiskhólnum.
5. 201003057 - Dagur umhverfisins
Fyrirkomulag og dagsskrá umhverfisþings.
Umhverfisnefnd er sammála um að annars verði fjallað um utanvegaakstur og hinsvegar tengsl deiliskipulags við nærliggjandi unmhverfi. Stefna skal að því að halda umhverfisþingið 20. apríl n.k.


