Gamla - Umhverfisnefnd
Fundargerð Umhverfisnefndar 38
38. fundur
Fundur haldinn í Umhverfisnefnd Hornafjarðar í Ráðhúsinu mánudaginn
13. október 2003 kl. 17:10 í Ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Egill Jónasson formaður, Þóra V Jónsdóttir, Björk Pálsdóttir, og starfsmaður nefndarinnar Helgi Már Pálsson.
1. Umhverfisverðlaun 2003
Auglýst var eftir tilnefningum í Eystrahorni og á Skjávarpinu, en engar ábendingar hafa borist. Rætt var um ákveðin félög og fyrirtæki hér á Höfn sem væru verðug verðlaunanna. Samþykkt var að auglýsa aftur eftir tilnefningum.
2. Sina og hætta á sinubrunum á opnum svæðum
Eldvarnareftirlitsfulltrúi hefur gert athugasemdir vegna hættu á sinubruna í Álaugarey og í Óslandi. Rætt var um hvort leyfa ætti tímabundna og afmarkaða beit hesta á þessum svæðum. Nefndin fellst á að gera eina tilraun á þessum svæðum undir umsjón tækni- og umhverfissvið og leggur áherslu á að girðingar verði vandaðar.
3. Umhverfisþing
Kynnt var fyrirhugað umhverfisþing umhverfisráðuneytisins, sem að þessu sinni mun fjalla um náttúruverndarmál og einkum drög að náttúruverndaráætlun, sem umhverfisráðherra hyggst leggja fram nú í haust. Rætt var um fyrri bókanir og samþykkt að ýtrekar þær á umhverfisþinginu. Formaður og starfsmaður munu sækja þingið, sem hefst á morgun.
4. Fráveitumál
Farið var yfir tillögur í fráveitumálum þéttbýlisins. Samþykkt var að mikið mengandi matvælavinnslur hreinsi sitt afrennslisvatn með viðunandi hætti áður en því er veitt í fráveitukerfi bæjarins, staðsetning hreinsistöðvarinnar verði í Óslandi sunnan Ásgarðs og að útrás frá því verði með Óslandinu vestanverðu og í jaðri fólkvangsins og síðan verði hún leidd út í Melaálinn, ef niðurstöður straumlíkansins frá Vatnaskilum sýni fram á það sem bestu lausn. Þessi tillaga er merkt sem 2 D í forhönnunarskýrslu Línuhönnunar frá júní s.l.
5. Önnur mál
Egill ræddi um fok á sandi við Hlíðarsand í Lóni og möguleika á að nota heyrúllur til að hefta fok þar. Rætt verði við vegagerðina um þessi mál. Hann taldi einnig að huga þyrfti að endurbótum eða nýju svæði fyrir kartöflugarða á næsta ári.
Björk spurðist fyrir um starfsemi í gamla Smur og dekk við Bugðuleiru hvort þar sé komin fiskvinnsla, hreinsun á leikvöllum í þéttbýlinu sé ábótavant, stöðu á hreinsunarátaki á fyritækjalóðum og vettvangsskoðun á landbroti í sveitarfélaginu.
Nefndarmenn ýtreka fyrri tilmæli vegna hreinsunar á fyrirtækjalóðum og að fljótlega verði farið í skoðunarferð á landbroti.
Fundi slitið kl. 18:15
Egill Jónasson
Helgi Már Pálsson
Þóra V Jónsdóttir
Björk Pálsdóttir


