Gamla - Umhverfisnefnd
Umhverfisnefnd Hornafjarðar 93
93. fundur
Fundur í umhverfisnefndar Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi,miðvikudaginn 13. janúar 2010 og hófst hann kl. 18:00
Fundinn sátu:
Þóra Vilborg Jónsdóttir, Valdemar Einarsson, Þórey Bjarnadóttir, Haukur Ingi Einarsson,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs
Dagskrá:
1. 200912034 - Skipulag á Lambleiksstöðum á Mýrum
Lagt fram til kynningar.
2. 201001006 - Uppsetning fjarskiptatækja á Hestgerðishnútu
Hjalti Þór óskar eftir því, í tölvupósti 06.01.2010, vegna ábendinga viðkomandi landeigenda, að tekinn verði til umræðu viðskilnaður framkvæmdaraðila við fjarskiptamastur á Hestgerðishnútu í Suðursveit, sumarið 2008.
Töluverðar umræður sköpuðust um málið. Umhverfisnefnd sýnir því skilning að fjarskiptaþjónusta þurfi að vera til staðar innan sveitarfélagsins en undirstrikar og beinir því til framkæmdaraðila almennt að hafa fullt samráð og samþykki landeigenda áður en framkvæmdir hefjast og lagfæra þær raskanir sem kunna að verða á landi við framkvæmdir.
3. 200709059 - Endurskoðun á aðalskipulagi
Svarbréf Skipulagsstofnunnar um mati á umhverfisáhrifum áætlana vegna fyrirhugaðrar aðalskipulagsbreytingar við Grjótbrúarlind og Hitaveitu frá Hoffelli að Höfn.
Haukur Ingi gerði grein fyrir málinu og kynnti ferli matslýsingar umhverfsisskýrslu vegna framkvæmdarinnar. Malíð verður unnið með umhverfisnefnd á næstu fundum.
4. 200811052 - Vegur upp úr botni Hoffellsdals
Til kynningar
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00


