Gamla - Umhverfisnefnd
Fundargerð umhverfisnefndar 92
92. Fundur
Fundur umhverfisnefndar Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, fimmtudaginn 10. desember 2009 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu:
Sigurlaug Gissurardóttir, Þóra Vilborg Jónsdóttir, Miralem Haseta, Haukur Ingi Einarsson, Magnús J.Magnússon,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs
Dagskrá:
1. 200810112 - Utanvegaakstur - vinna starfshóps
Óskað eftir umræðum um utanvegaakstur. Tillögur að úrbótum lagðar fram á fundinum.
Akstur utan vega er vaxandi vandamál í Sveitarfélaginu Hornafirði sem brýnt er að stemma stigu við. Umhverfisnefnd leggur áherslu á að við gerð verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs verði gerð grein fyrir þeim vegslóðum sem eiga að vera opnir og akstur leyfður. Umhverfisnefnd leggur til að sett verði upp skilti með tilmælum til ökumanna vélknúinna ökutækja að aka ekki utan vega. Fyrstu skiltin verði sett upp í nánd við sýslumörk og við þéttbýlið á Höfn. Horft verði til uppsetningar skilta við fjölfarna ferðamannastaði.
2. 200905044 - Fjárhagsáætlun 2010
Framkvæmdir 2010 tengdar umhverfismálum til kynningar.
Umhverfisnefnd bendir á að í drögum að fjölskyldustefnu er gert ráð fyrir mögulegri uppbyggingu opinna svæða í sveitarfélaginu öllu þar sem landeigendum yrði gefinn kostur á stuðningi við uppbyggingu opinna svæða í samvinnu við sveitarfélagið gegn því að svæðin verði opin almenningi.
3. 200910127 - Tilkynning um málþing um lífrænan úrgang til landbóta
Lögð fram dagsskrá málþingsins til umræðu.
Til kynningar.
4. 200912021 - Endurskoðun auglýsingar fyrir fólkvang í Óslandi
Lögð fram tillaga að breytingu á auglýsingu vegna friðlands í Óslandi.
Umhverfisnefnd samþykkir dörg að endurskoðun auglýsingar friðlands í Óslandi.


