Gamla - Umhverfisnefnd
Fundargerð umhverfisnefndar 91
91. fundur
Fundur í umhverfisnefnd Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi,fimmtudaginn 8. október 2009 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu:
Sigurlaug Gissurardóttir, Valdemar Einarsson, Björn Arnarson, Haukur Ingi Einarsson,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs
Dagskrá:
1. 200909018 - Gjaldskrá v/úrgangsmála
Gjaldskrá v/úrgangsmála
Farið yfir drög að gjaldskrá úrgangsmála. Umhverfisnefnd samþykkir drög að gjaldskrá og vísar henni til staðfestingar bæjarráðs.
2. 200910026 - Dagur umhverfisins 2009
Dagur umhverfisins 2009
Hugmyndir að dagsskrá kynntar. Starfsmanni falið að halda undirbúningi áfram í samræmi við umræður á fundinum.
3. 200711005 - Umhverfisviðurkenning
Umhverfisviðurkenning
Drög að breytingum á reglum er varðar umhverfisviðurkenningu kynnt. Umhverfisnefnd er sammála um að breyta reglunum í samræmi við umræður á fundinum þannig að fleiri flokkar umhverfisviðurkenninga verði veitt ár hvert. Samþykkt að vísa breytingum til staðfestingar bæjarráðs. Starfsmanni falið að kanna útfærslu á viðurkenningu.
4. 200909073 - Umhverfisþing 9.-10.október 2009
Umhverfisþing 9.-10.október 2009
Dagskrá kynnt. Umhverfisnefnd óskar efitr því að fá upplýsingar af þinginu eftir að því líkur. Starfsmanni falið að taka saman minnisblað og leggja fyrir nefdina á næsta fundi.


