Gamla - Umhverfisnefnd
Fundargerð umhverfisnefndar 90
90. fundur
Fundur í umhverfisnefnd Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi,miðvikudaginn 9. september 2009 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu:
Sigurlaug Gissurardóttir, Þóra Vilborg Jónsdóttir, Valdemar Einarsson, Miralem Haseta, Haukur Ingi Einarsson, Magnús J.Magnússon,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs
Dagskrá:
1. 200909019 - Námur, umhverfis- og auðlindafræði, Georg Haney
Georg Haney, mastersnemi í umhverfis- og auðlindafræði hélt kynningu á lokaverkefni sýnu er snýr að uppbyggingu verkferla sem hægt verður að innleiða í skipulagsvinnu er varðar námur í sveitarfélögum. Til kynningar.
2. 200909020 - Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Austurlands
Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Austurlands.
Til kynningar.
3. 200909018 - Gjaldskrá v/úrgangsmála
Gjaldskrá v/úrgangsmála. Haukur gerði grein fyrir uppbyggingu nýrrar gjaldskrár um útgangsmál. Gjaldskráin er miðuð út frá því að auka flokkun í sveitarfélaginu og gera gjaldtökuna gagnsærri. Ákveðið að vísa gjaldskránni til meðferðar bæjarráðs með áorðnum breytingum, umhverfisnefnd mælir einnig með því að gjaldsrkáin ásamt nýju sorpfyrirkomulagi fá kynningu í sveitarfélaginu.
4. 200709065 - Fjölskyldustefna Hornafjarðar
Fjölskyldustefna Hornafjarðar. Nefndarmenn ætla að skila ábendingum til starfmanns í tölvupósti og starfsmaður mun koma þeim áfram til stýtihóps fjölskyldustefnu.
5. 200705114 - Önnur mál
Sigurlaug gerði grein fyrir undirbúningi að málþingi um umhverfismál sem Ríki Vatnajökuls stefnir að því að halda í október. Hauki Inga falið að fylgja málinu áfram f.h umhverfisnefndar.


