Gamla - Umhverfisnefnd
Fundargerð umhverfisnefndar 89
89. fundur
Fundur í umhverfisnefnd Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi,fimmtudaginn 14. maí 2009 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu:
Sigurlaug Gissurardóttir, Þóra Vilborg Jónsdóttir, Miralem Haseta, Haukur Ingi Einarsson,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs
Dagskrá:
1. 200810080 - Útflutningur vatns
Haukur gerði grein fyrir stöðu mála við Grjótbrúarlind, nýverið hafa verið tekin vatnssýni sem sýna að heilnæmi vatnsins sé mjög gott. Umræður sköpuðust um önnur vatnsból í sveitarfélaginu og mikilvægi þess að vatnsverndarsvæði þeirra verði tryggð. Hauki Inga falið óska eftir upplýsingum landeigenda um staðsetningu vatnsbóla og aðbúnað.
2. 200905043 - SAMÞYKKT, um umgengni og þrifnað utan húss á starfssvæði heilbrigðisnefndar Austurlands
Lagt fram til umfjöllunar og meðferðar.
Umhverfisnefnd leggur til að drög að endurskoðaðri samþykkt um umgengni og þrifnað utan húss á starfssvæði heilbrigðisnefndar Austurlands verði gerð að samþykkt sveitarfélagsins. Umhverfisnefnd óska eftir að samþykktir og reglur er snúa að nefndinni verði auglýstar reglulegar og þeim gerð betri skil á heimasíðu sveitarfélagsins.
3. 200905011 - Fjárhúsavík gömlu ruslahaugar
Lagt fram til kynningar. Umhverfinefnd þakkar ábendinguna og leggur áherslu að úrbætur fari fram sem fyrst. Umræða varð um gamlar ruslagryfjur til sveita þar sem ár og sjór hafa brotið sér leið að gryfjunum og opnað þær.
Umhverfisnefnd leggur til að málið verði skoðað.
4. 200705114 - Önnur mál
Umræður sköpuðust um hús/íbúðir í þéttbýli þar sem ekki er föst búseta. Umhverfisnefnd leggur til að kannað verði um hversu margar eignir er um að ræða, ástand þeirra og lóða metið.
Vinnuskóli. Haukur gerði grein fyrir undirbúningi að starfsemi vinnuskólans sumarið 2009, búið að er ráða í allar stöður og beðið eftir að skólum ljúki svo hægt verði að byrja vinnuskólann.


