Gamla - Umhverfisnefnd
Fundargerð umhverfisnefndar 87
87. fundur
Fundur í umhverfisnefnd Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi,fimmtudaginn 12. mars 2009 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu:
Sigurlaug Gissurardóttir, Þóra Vilborg Jónsdóttir, Valdemar Einarsson, Björn Arnarson, Magnús J.Magnússon, Haukur Ingi Einarsson,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs
Dagskrá:
1. 200705114 - Önnur mál
Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir og Björn Arnarsson kynntu samstarfsverkefni um fuglaskoðun á Suðausturlandi. Fram kom hvar verkefnið væri statt og næstu skref í verkefninu. Stefnt er að því að stofna klasa um verkefnið vorið 2009 og viðskiptaáætlun kláruð um svipað leiti. Rætt var um IBA svæði ( Important Birdlife Areas ). Umhverfisnefnd fagnar kraftinum sem er í verkefninu og óskar eftir frekari upplýsingar um þau svæði í Sveitarfélaginu Hornafirði sem gætu fallið undir IBA svæði. Umhverfisnefnd lýsir yfir áhuga á að skilgreina áhugaverð fuglasvæði innan sveitarfélagsins sem IBA svæði.
2. 200903013 - Tilnefning til umhverfisverðlauna
Tilnefning til umhverfisverðlauna. Einungis ein ábending barst. Í ljósi þess velti umhverfisnefnd upp hvort reglur um umhverfisviðurkenningu séu of víðtækar. Umhverfisnefnd telur mikilvægt að breyta reglum um umhverfisviðurkenningu þannig að veitt verðir viðurkenning í þremur flokkum. Einn flokkur verði um almennar framfarir í umhverfismálaum, annar flokkur verði fyrir snyrtilegt umhverfi heimili í sveitarfélaginu og þriðji flokkurinn fyrir snyrtilega umgengni fyrirtækja og lögbýla.
Ákveðið að fresta ákvörðun um veitingu umhverfisviðurkenningar til næsta fundar.
Starfmanni falið að afla upplýsinga um reglur um almenna umgengni sem í landinu gilda og senda nefndarmönnum.


