Gamla - Umhverfisnefnd
Fundargerð húsnæðisnefndar 85
85. fundur
Fundur í húsnæðisnefnd Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi,þriðjudaginn 10. mars 2009 og hófst hann kl. 16:00Fundinn sátu:
Guðrún Ingimundardóttir, Inga Kristín Sveinbjörnsdóttir, Einar Karlsson, Ásta Halldóra Guðmundsdóttir,
Fundargerð ritaði: Ásta H. Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs
Dagskrá:
1. 200901104 - Úthlutun íbúða
Sandbakki 1 íbúð 0203 100.1 fm. íbúðinni var úthlutað.
Víkurbraut 26 íbúð 0102 62,8 fm. íbúðinni var úthlutað.
Víkurbraut 30 íbúð 0306 79,6 fm. íbúðinni var úthlutað.
2. 200709059 - Endurskoðun á aðalskipulagi
Farið var yfir texta vegna endurskoðunar á aðalskipulagi og ábendingar verða sendar til nefndar um endurskoðun.
3. 200705114 - Önnur mál
Sala á íbúum úr Kaupleigukerfinu
Ásta lagði fram lista um íbúðir í eigu sveitarfélagsins um er að ræða 31 kaupleiguíbúð og 13 íbúðir í eignasjóði.
Húsnæðisnefnd er sammála um að vanda verði vel til vinnu þessa máls.


