Gamla - Umhverfisnefnd
Fundargerð umhverfisnefndar 83
83. fundur
Fundur í umhverfisnefnd Hornafjarðarhaldinn í ráðhúsi,mánudaginn 8. desember 2008 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu:
Sigurlaug Gissurardóttir, Þóra Vilborg Jónsdóttir, Valdemar Einarsson, Miralem Haseta, Haukur Ingi Einarsson,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs
Dagskrá:
1. 200707002 - Umfjöllun um sorpmál á Hornafirði
Haukur gerði grein fyrir þeirri vinnu sem fram hefur farið frá síðasta fundi í sorpmálum. Taldi hann að grenndargámastöðvar í sveitum verði komið á innan fárra vikna þó verði það háð veðri. Gerði hann grein fyrir þeim viðbrögðum sem 1/2 tunna hafi fengið, um 30 - 40 heimili hafa sótt um minna tunnuílát sem er um 5% af heimilum sveitarfélagsins. Umhverfisnefnd leggur til að gjaldskrá til fyrirtækja er snúa að sorpeyðingu verði tekið til endurskoðunar. Starfmanni falið að halda kynningarfund fyrir fyrirtæki og kynna þá vinnu sem fram fer í gámaporti og mögulegra leiða til hagræðingar í sorpmálum fyrirtækja. Umhverfisnefnd leggur til að grenndargámastöðvar í þéttbýli verði 6, við Krakkakot, Sindrahús við Miðbæ, Íþróttahús, Golfskála, Krónuhús og Hafnarsvæði þannig verði hverfum boðið upp á greiðari aðgang að grenndargámastöðvum. Haukur gerði grein fyrir kostnaði og tekjum vegna samnings við endurvinnsluaðila, þar kom fram að samningurinn gefur sveitarfélaginu um 40 þ. krónur í tekjur þegar búið er að taka tillit urðunarkostnaðar. Haukur gerði grein fyrir þeirri vinnu sem fram hefur farið með bændum og Skinney Þinganes um endurnýtingu á lífrænum áburði sem fellur til við fiskvinnslu. Umhverfisnefnd fagnar framtaki þessara aðila og hvetur til frekari þróunar.
2. 200811017 - Náttúruverndaráætlun - till. að friðlýsingu búsvæðis tröllasmiðs
Tröllasmiður Tillaga að friðlýsingu búsvæðis hans.
Umhverfisnefnd leggur til að rannsakað verði nánar á friðlýsingar Töllasmiðs í samræmi við önnur landnot á svæðinu, t.d efnistöku, vatnsveitu og landbúnað.
3. 200705087 - Hringvegur um Hornafjarðarfljót Framhaldsumræður
Til kynningar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:40


