Gamla - Umhverfisnefnd
Fundargerð umhverfisnefndar 82
82. fundur
Fundur umhverfisnefndar Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, miðvikudaginn 12. nóvember 2008 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu:
Sigurlaug Gissurardóttir, Þóra Vilborg Jónsdóttir, Valdemar Einarsson, Miralem Haseta, Haukur Ingi Einarsson, Magnús J.Magnússon,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs
Dagskrá:
1. 200709059 - Endurskoðun á aðalskipulagi
Lagðar fram til kynningar og staðfestingar tvær fundargerðir starfshóps um endurskoðun á aðalskipulagi.
Til kynningar.
2. 200705040 - Umfjöllun á sorpflokkun
Haukur gerði grein minnisblaði um endurvinnslu á úrgangi. Töluverðar umræður sköpuðust um fyrirkomulag flokkunar og næstu skref í þeim efnum. Umhverfisnefnd leggur það til að sveitarfélagið bjóði heimilum upp á mismunandi stærð tunnuíláta fyrir heimili samhliða því að breyta gjaldskrá sorpeyðingar til samræmis við það og vísar þessu til umfjöllunar í bæjarráði. Ennfremur leggur Umhverfisnefnd það til að teknir verði í notkun grenndargámastöðvar í sveitum í samræmi við minnisblað framkvæmdarstjóra- tækni- og umhverfissviðs. Samhliða þessu verði svokallaðir bláir gámar fjarlægðir úr sýslunni. Nefndin leggur það til að grenndargámastöðvar í sveitum verði komið á fyrir áramótin. Ákveðið var að stefna að íbúafundi í byrjun næsta árs þar sem árangur í endurvinnslu verði kynntur. Ennfremur var ákveðið að fjalla aftur um minnisblaðið á næsta fundi og taka sérstaklega fyrir fyrirkomulag og staðsetningu grenndargámastöðvum í þéttbýli ásamt úrgangsmálum fyrirtækja og málefnum gámaports.
3. 200810112 - Utanvegaakstur - vinna starfshóps
Erindi Umhverfisráðuneytisins er varðar utanvegaakstur. Vísað til Umhverfisnefndar frá bæjarráði 3. Nóv. S.l
Umhverfisnefnd leggur til að framkvæmdarstjóri tækni- og umhverfissvið verði tengiliður hópsins.
4. 200705114 - Önnur mál
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:10


