Gamla - Umhverfisnefnd
Fundargerð umhverfisnefndar 81
81. fundur
Fundargerð umhverfisnefndar Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, fimmtudaginn 25. september 2008 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu:
Sigurlaug Gissurardóttir, Þóra Vilborg Jónsdóttir, Valdemar Einarsson, Miralem Haseta, Haukur Ingi Einarsson, Magnús J.Magnússon,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs
Dagskrá:
1. 200709059 - Endurskoðun á aðalskipulagi
Haukur gerði grein fyrir breytingartillögu sem lögð var fyrir byggingar- og skipulagsnefnd á síðasta fundi nefndarinnar. Umhverfisnefnd leggur til að fundargerðir starfshópsins verði lagðir fyrir umhverfisnefnd jafnframt gefi umhverfisnefnd umsögn á vinnu starfshópsins áður en hópurinn skili vinnu frá sér til bæjarstjórnar. Umhverfisnefnd leggur til að hópurinn fjalli einnig almennt um framtíðarhorfur í atvinnuþróun í sveitarfélaginu. Nefndin leggur þunga áherslu á að víðtækt samráð verði haft við íbúa á meðan vinnu starfshópsins stendur yfir. Þóra lagði áherslu á að fólk í grasrót hvers framboðs verði skipað í starfhópinn.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:45


