Gamla - Umhverfisnefnd

Fundargerð umhverfisnefndar 79

Fundur 79

Fundur haldinn íumhverfisnefnd Hornafjarðar þriðjudaginn 10. júní 2008

kl. 12:00 í Ráðhúsi Hornafjarðar.

 

Mætt voru:     Sigurlaug Gissurardóttir, formaður, Valdemar Einarsson, Miralem Haseta og Þóra Vilborg Jónsdóttir.

Einnig: Haukur Ingi Einarsson.

 

Sigurlaug bauð fundarmenn velkomna.  Gengið var til dagskrár:

 

1. Fráveitumál

Haukur gerði grein fyrir ferð sem farin var hringinn í kringum landið og skoðað fráveitulausnir, sorpmál og jarðgerð.  Gerði hann grein fyrir fráveitumannvirkjum í Hveragerði, Reykjavík og Egilsstöðum.  Jafnframt var gerð grein fyrir skýrslu sem unnin var af Línuhönnun 2004/2005 og tillögum um lausn á fráveitumálum fyrir þéttbýlið Höfn.  Línuhönnun er að fara yfir málið í samvinnu við starfmenn. Nú í júní verða tekin sýni meðfram strandlengjunni og í kjölfarið farið yfir næstu skref.  Núverandi hugmyndir eru að koma upp grófhreinsistöð sem tekur frá föst efni frá heimilum á vesturströndinni og fylgjast með hvort þurfi að hreinsa iðnaðarskólp sem veitt er út um Standeyjarræsi, Álaugareyjarræsi og við bræðslu.  Haukur gerði grein fyrir legu útrásar fráveitumannvirkis og að hagkvæmast væri að fara með lögnina í gegnum Ósland.  Ósland er skilgreint sem fólkvangur og því verður að skoða legu útrásar m.t.t. þess.   Umhverfisnefnd beinir því til bæjarráðs að kanna réttmæti þess að umhverfisnefnd fari með hlutverk stjórnar fólksvangs í Óslandi sambanber erindisbréfi Umhverfisnefndar og vísar í því sambandi til auglýsingar um fólkvang í Ósland frá 1982 sem kveður á um hvernig stjórn fólksvangsins skuli skipuð.  Umhverfisnefnd óskar eftir því að við undirbúning fráveitulagnar í Óslandi verði sá kostur skoðaður að leggja lögnina meðfram landi en ekki eftir því.  Undir þessum lið var gerð grein fyrir jarðgerð og sorpflokkun sem skoðuð var í ferðinni.

  1. Fjölskyldustefna Hornafjarðar
    Til kynningar.  Ákveðið var að taka þennan lið fyrir á næsta fundi umhverfisnefndar.


 

3.    Fræðslustarf á vegum umhverfisráðuneytisins.

Til kynningar.  Starfmanni falið að gera efnið aðgengilegt á heimasíðu sveitarfélagsins.  Miralem vék af fundi.

 

  1. Refa og minkaveiðar viðmiðunartaxtar og upplýsingargjöf
    Til kynningar.  Umhverfisnefnd leggur áherslu á að gengið verði eftir að veiðimenn skili inn skýrslum um þekkt greni þar sem komið geti til skerðingar þátttöku ríkis í greiðslum fyrir unnin dýr sé þeim ekki skilað.  Starfsmanni falið að óska eftir grenjaskrám hjá ráðnum veiðimönnum.

  2. Önnur mál

Þóra Vilborg Jónsdóttir spurðist fyrir um sláttuþjónustu sem sveitarfélagið bjóði upp á í þéttbýli, hvort slíkt stæði ekki einnig til boða fyrir íbúa dreifbýlisins.  Haukur gerði grein fyrir því að svo væri ekki þar sem ekki er til nægjanlegur tækjakostur né starfskraftur til að anna mögulegri eftirspurn.

Valdimar spurðist fyrir um hvort ekki mætti beita samþykkt um umgengni og þrifnað utanhúss.  Benti hann á nokkur atriði máli sínu til stuðnings.

Sigurlaug spurðist fyrir um stöðumat á Staðardagsskrá 21.  Haukur gerði grein fyrir því að málið væri í vinnslu.

 

 

Fundi slitið kl. 13.30

 

Sigurlaug Gissurardóttir                                                                      Haukur Ingi Einarsson

Þóra Vilborg Jónsdóttir                                                                                                      

Miralem Haseta                                                                                                                  

Valdemar Einarsson

 

 


Fundargerðir

Dag.grein
08.04.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 167
28.04.2010 Fundargerð umhverfisnefndar 97
12.04.2010 Fundargerð umhverfisnefndar 96
11.03.2010 Fundargerð umhverfisnefndar 95
09.02.2010 Fundargerð umhverfisnefndar 94
13.01.2010 Umhverfisnefnd Hornafjarðar 93
10.12.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 92
08.10.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 91
09.09.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 90
14.05.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 89
20.04.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 88
12.03.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 87
10.03.2009 Fundargerð húsnæðisnefndar 85
26.02.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 86
19.02.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 85
08.01.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 84
08.12.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 83
12.11.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 82
25.09.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 81
11.09.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 80
10.06.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 79
15.05.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 78
18.03.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 76
14.02.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 75
10.01.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 74
13.12.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 73
08.11.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 72
11.10.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 71
10.10.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 70
16.07.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 69
09.07.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 68
07.05.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 67
26.02.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 66
05.02.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 65
08.01.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 64
11.12.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 63
26.10.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 62
29.09.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 61
09.09.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 60
10.07.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 59
15.05.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 58
03.04.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 57
06.03.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 56
06.02.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 55
16.01.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 54
15.11.2005 Fundargerð umhverfisnefndar 53
06.06.2005 Fundargerð umhverfisnefndar 52
18.04.2005 Fundargerð umhverfisnefndar 51
14.03.2005 Fundargerð umhverfisnefndar 50
14.02.2005 Fundargerð umhverfisnefndar 49
10.01.2005 Fundargerð umhverfisnefndar 48
13.12.2004 Fundargerð umhverfisnefndar 47
08.11.2004 Fundargerð umhverfisnefndar 46
13.09.2004 Fundargerð Umhverfisnefndar 45
13.07.2004 Fundargerð Umhverfisnefndar 44
12.07.2004 Fundargerð Umhverfisnefndar 43
08.03.2004 Fundargerð Umhverfisnefndar 42
09.02.2004 Fundargerð Umhverfisnefndar 41
12.12.2003 Fundargerð Umhverfisnefndar 40
10.11.2003 Fundargerð Umhverfisnefndar 39
13.10.2003 Fundargerð Umhverfisnefndar 38
11.06.2003 Fundargerð Umhverfisnefndar 37
10.03.2003 Fundargerð Umhverfisnefndar
09.12.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
11.11.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
14.10.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
09.09.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
08.07.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
16.04.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
19.03.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
11.02.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
18.04.0005 Fundargerð umhverfisnefndar 51
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica