Gamla - Umhverfisnefnd
Fundargerð umhverfisnefndar 78
78. fundur
Fundur í umhverfisnefnd Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, fimmtudaginn 15. maí 2008 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu:
Sigurlaug Gissurardóttir, Þóra Vilborg Jónsdóttir, Stephen Róbert Johnson, Valdemar Einarsson, Haukur Ingi Einarsson (HIE),
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs
1. 200805008 - Samþykkt um umgengni og þrifnað utanhúss
Bréf Heilbrigðiseftirlits Austurlands, 19. apríl lagt fram til umfjöllunar.
Sigurlaug gerði grein fyrir drögum að samþykktinni og las hana upp. Miklar umræður sköpuðust um frágang lóða og almenna umhirðu innan sveitarfélagsins. Meðal annars geymslulóðir í Óslandi og aðrar ógirtar lóðir. Umhverfisnefnd leggur til að drög að endurskoðaðri samþykkt um umgengni og þrifnað utanhúss verði samþykkt og sérstök áhersla verði lögð á að unnið verði eftir samþykktinni. Þá eru umráðamenn athafnasvæða hvattir til að girða af athafnasvæði sín og jafnframt verði íbúar í dreifbýli og þéttbýli hvattir til að hafa snyrtilegt í kringum lóðir sínar og fyrirtæki.
2. 200805007 - Samþykkt um hesthús og önnur gripahús í skipul. búfjárhverfum á starfssvæði heilbrigðisnefdnar Austurlands
Bréf Heilbrigðiseftirlits Austurlands, 19. apríl lagt fram til umfjöllunar.
Sigurlaug gerði grein fyrir drögum að samþykktinni og las hana upp. Umhverfisnefnd leggur til að drög verði samþykkt enda styður það við athugasemd nefndarinn frá vetfangsferð í síðastliðið haust varðandi frágang girðinga, útihúsa og umhirða almennt kringum útihús í frístundabyggð. Nefndin mælir með að gefinn verði allt að þriggja ára aðlögunarfrestur til að uppfylla 4. og 5. grein.
Nefnd lagði einnig til að bætt verði við grein 6. " Hættulegum úrgangi (t.d. fúavarnaefni, málningu, skordýra- og meindýraeitri, útrunnum lyfjum og lyfjaleifum) skal halda aðskildum ásamt heyrúlluplasti frá öðrum úrgangi og skila inn til móttökustöðvar fyrir spilliefni og endurvinnslu"
3. 200805016 - Drög að reglugerð
Lögð fram drög að reglugerð fyrir Vatnajökulsþjóðgarð, til kynningar og umsagnar.
Umhverfisnefnd leggur til að bætt verði inn í 7. gr. Opnunartími og þjónusta þjóðgarðsins eftirfarandi viðbót " Markmið með rekstri meginstarfsstöðva er að þar verði unnt að veita almenningi upplýsingar og fræðslu um náttúruvernd, náttúrufar s.s. lífríki og jarðmyndanir, menningarminjar og sögu ásamt þjónustu eins og þörf krefur svo sem aðstöðu til flokkunar á úrgangi. Stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs tekur ákvörðun um fyrirkomulag rekstrar meginstarfsstöðva og annarra upplýsinga og þjónustustöðva í þjóðgarðinum og á jaðri hans. "
Nefndin telur mikilvægt að áður en endanleg afstað verði tekin til reglugerðarinnar liggi fyrir mörk Vatnajökulsþjóðgarðs samanber viðauka I.
Jafnframt mælist nefndin til þess að áður en reglugerðin verði samþykkt endanlega verði hún kynnt á almennum fundum.
4. 200705040 - Umfjöllun á sorpflokkun
Til kynningar bréf frá Jóni Þór Frantzsyni framkvæmdarstjóra Íslenska Gámafélagsins, hugsum áður en við hendum.
Haukur gerði grein fyrir bréfi Jóns Þórs Frantzsonar framkvæmdarstjóra Íslenska Gámafélagsins. Umhverfisnefnd óskar eftir því að fá Jón Þór á fund nefndarinnar í ágúst eða september og greina betur frá verkefninu "hugsum áður en við hendum,,.
5. 200711006 - Fráveitumál
Kynnt verður sýningin IFAT. Þar sem til sýnis eru heildstæðar lausnir í fráveitumálum og öðrum umhverfismálum.
Haukur Ingi lagði fram drög að minnisblaði og gerði grein fyrir sýningunni sem haldin var í Munchen.
6. 200705114 - Önnur mál
Umræða skapaðist um samþykktir um hunda- og kattahald og eftirfylgni þeirra, umhverfisnefnd hvetur hunda- og kattaeigendur að virða gildandi samþykktir þar að lútandi.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:40


