Gamla - Umhverfisnefnd
Fundargerð umhverfisnefndar 76
76. fundur
Fundur í Umhverfisnefndar Hornafjarðar haldinn í Mánagarði, þriðjudaginn 18. mars 2008 og hófst hann kl. 18:00
Fundinn sátu:
Sigurlaug Gissurardóttir, Þóra Vilborg Jónsdóttir, Stephen Róbert Johnson og Haukur Ingi Einarsson
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, framkvæmdarstjóri tækni- og umhverfissviðs
Sigurlaug bauð fundarmenn velkomna og las upp fundargerð síðasta fundar.
Tilnefningar til umhverfisviðurkenningar teknar til umfjöllunar.
Eftirfarandi tilnefningar bárust.
Charles J. Goemans fyrir að skipuleggja og halda utan um starf sjálfboðaliða sem unnið hafa að stígagerð á friðuðum svæðum víða um land, meðal annars í Skaftafelli þar sem jafnframt er meginstarfsstöð þeirra.
Guðrún T. Finnsdóttir og Guðvarður Birgisson, Hæðargarði 11 í Nesjum fyrir vel skipulagða og snyrtilega lóð umhverfis íbúðarhús sitt.
Motorcross félagið fyrir snyrtilegan frágang á Motorcross svæði.
Búnaðarsamband Austur-Skaftfellinga fyrir hönd þeirra bænda sem tekið hafa þátt í að halda utan um heyrúlluplast og koma því til endurvinnslu.
Hótel Höfn fyrir vel heppnaðar endurbætur á Hótelinu.
Nefndin var sammála um að veita tveim aðilum viðurkenningar, viðurkenningarnar verða veittar á degi umhverfisins.
Tilnefningarnar fá:
Charles J. Goemans fyrir að skipuleggja móttöku, þjálfun og vinnu sjálfboðaliða í áraraðir við stígagerð, nýlagningar og lagfæringar þar sem leitast er við að nýta grjót og möl úr umhverfinu. Einnig Guðrún T. Finnsdóttir og Guðvarður Birgisson fyrir vel skipulagða og snyrtilega lóð umhverfis íbúðarhús sitt við Hæðargarð 11 í Nesjum, þau hafa með elju og atorku sinni breytt óhirtum garði í fallegan unaðsreit.
- Verkefni um hagsmunagæslu í úrgangsmálum á Austurlandi.
Fundargerð 4.fundar
Haukur greindi frá fundinum sem haldinn var 4. mars. Fram kom að á þeim fundi héldu aðilar frá Íslenska Gámafélaginu og Gámaþjónustunni kynningu á sorpflokkun og meðhöndlun úrgangs. Töldu þeir að ná megi um 70 % af öllum úrgangi sem fellur til innan heimilisins í endurvinnslu, ennfremur töldu þeir hagkvæmt að flytja umfram úrgang í brennslu. Greint var frá verkefni í Stykkishólmi, þar sem þrjár tunnur eru við hvert heimili og hvernig það hafi gengið fyrir sig. Einnig kynnti Friðfinnur Einarsson sorpbrennslu. Í máli Friðfinns kom fram að svo hagkvæmt sé að starfrækja brennslustöð þarf helst að brenna 14.000 tonnum á ári. Umhverfisnefnd hvetur til að haldið verði áfram þróun flokkunar og endurvinnslu og kannaðir verði kostir þess að koma upp jarðgerð og jafnhliða því þriggja tunnu fyrirkomulagi sambærilegt og gert er í Stykkishólmi. Jafnframt hvetur nefndin til að upplýsingar um flokkun verði gerðar aðengilegar á heimasíðu sveitarfélagsins og e.t.v víðar.
- Vinnuskóli
Haukur greindi frá því að skipulag við vinnuskólann væri hafið. Nefndin er sammála um að áherslur vinnuskóla 2008 verði með sama hætti og undanfarin ár.
- Frumvarp um: Skipulagslög mál nr. 372 til kynningar
Nefndin tekur undir drög að umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga.
- Greiðsla Úrvinnslusjóðs f. Brennslu á óflokkuðum. umbúðum til orkuframleiðslu
Málefni Úrvinnslusjóðs til kynningar.
Umhverfisnefnd fagnar því að fundinn hafi verið farvegur hjá Úrvinnslusjóði fyrir endurgreiðslu á óflokkuðum brennanlegum úrgangi. Starfsmanni falið að sækja greiðslur úr sjóðnum.
Fleira ekki gert, fundi slitið 20:00


