Gamla - Umhverfisnefnd
Fundargerð umhverfisnefndar 74
74. fundur
Fundur umhverfisnefndar Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi,fimmtudaginn 10. janúar 2008 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Sigurlaug Gissurardóttir, Stephen Róbert Johnson, Valdemar Einarsson, Þórey Bjarnadóttir, Miralem Haseta, Haukur Ingi Einarsson,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs
Dagskrá:
1. 200801002 - Gjaldskrá fyrir hreinsun rotþróa
Drög að gjaldskrám fyrir hreinsun á rotþróm lögð fram.
Miklar umræður sköpuðust. Umhverfisnefnd samþykkir drögin fyrir sitt leiti og mælir með því að rotþrær og syturlagnir verði yfirfarnar annað hvert ár að jafnaði.
2. 200711006 - Fráveitumál
Bæjarráð vísaði á 403. fundi sínum drögum að fráveitusamþykktum fyrir sveitarfélagið Hornafjörð til umfjöllunar í umhverfisnefnd.
Umhverfisnefnd fagnar framkomnum drögum og samþykkir þau fyrir sitt leit.
3. 200801001 - Staðardagsskrá 21
Hvað hefur áunnist ? Næstu skref
Umhverfisnefnd leggur til að framkvæmdarstjóri tækni og umhverfissviðs vinni stöðumatsskýrslu er varðar staðardaggskrá 21 og fundir verði haldnir með íbúum. Í framhaldi af því verði stefnumótun unnin.
4. 200712024 - Námur, framkvæmdaleyfi og mat á umhverfisáhrifum
Til kynningar
5. Önnur mál
Dreift upplýsingum um umhverfisþing.
Minnisblað lagt fram um sorpmál í dreifbýli, umræður sköpuðust um málið og starfmanni falið að vinna áfram að málinu á þessum nótum.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:30


