Gamla - Umhverfisnefnd
Fundargerð umhverfisnefndar 69
69. fundur
Fundur umhverfisnefndar Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, mánudaginn 16. júlí 2007 og hófst hann kl. 11:00
Fundinn sátu:
Sigurlaug Gissurardóttir, Þóra Vilborg Jónsdóttir, Valdemar Einarsson, Miralem Haseta, Haukur Ingi Einarsson,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs
Dagskrá:
1. 200707003 - Umhverfisskýrsla, Breyting á Aðalskipulagi Hornafjarðar 1998-2018 vegna nýlagningar vega yfir Hornafjarðarfljót
Umhverfisnefnd telur að umhverfisskýrla gefi ekki til kynna að umtalsverður munur sé á leiðum 1,2 og 3 hvað varðar náttúrufar og umhverfi. Í ljósi þess telur nefndin að skynsamlegt sé að velja þann kost sem styttir vegalengd sem mest innan héraðs m.t.t hagsmuna almennings og mælir því með leið 3.
2. 200707004 - Járnagámur í sveitum
Umhverfisnefnd ítrekar að farið verði í átak í söfnun á brotajárni og nýttir í því sambandi möguleikar á styrk frá Bændasamtökum Íslands. Í kjölfarið verði skoðað nánar útfærslu á reglubundinni söfnun á brotajárni í sveitum m.t.t fjárhagsáætlanagerðar 2008.
3. 200707002 - Umföllun um sorpmál á Hornafirði
Umhverfisnefnd fagnar góðum undirtektum íbúa og fyrirtækja við flokkun á úrgangi og hvetur til að áfram verði haldið á sömu braut. Til þess að umbuna þeim fyrirtækjum og íbúum sem flokka sinn úrgang leggur umhverfisnefnd til að við gerð fjárhagsáætlunar 2008 verði gjaldskrá við sorpeyðingu endurskoðuð.
4. 200707001 - Útboð vegna Sorpurðunar
Umhverfisnefnd telur eðlilegt í ljósi þess að nú fer fram allsherjarendurskoðun í tilhögun sorpmála í Sveitafélaginu Hornafirði að núverandi samningi við urðunaraðila verði sagt upp og urðun úrgangs verði boðin út í kjölfarið.
5. 200706019 - Ósk um úrbætur umhverfis Hafnarbúðina og nágr.
Umhverfisnefnd stefnir á að fara í vettvangsferð í september um Höfn og Nesjahverfi og leggur til að í framhaldi af því verði boðað til fundar með hagsmunaaðilum í ferðaþjónustu og áhugamönnum um umhverfi og afþreyingu um hvernig bæta megi aðgengi að fallegum áhugaverðum stöðum, koma upp merkingum, merkja gönguleiðir og bæta ásýnd þéttbýlisins og í framhaldi af því verði stofnaður starfshópur um málið.
Önnur mál:
Sigurlaug kynnti heimsókn Ingvars Níelssonar sem kynnti nýjar og ódýrari lausnir í sorpbrennslu. Nefndin telur rétt að skoða kostnað við gerð hagkvæmnisskýrslu og hvort einkaaðilar telji grundvöll fyrir rekstri sorpbrennslu.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl.


