Gamla - Umhverfisnefnd

Fundargerð umhverfisnefndar 64

64. fundur

Fundur haldinn          Í umhverfisnefnd Hornafjarðar mánudaginn 8. janúar 2007

kl. 13:50 í Ráðhúsi Hornafjarðar.

 Mætt voru:     Sigurlaug Gissurardóttir, formaður, Valdemar Einarsson, Erna Gísladóttir, Miralem Haseta og Björn Arnarson.

Einnig: Hjalti Þór Vignisson.

 Sigurlaug bauð fundarmenn velkomna.  Gengið var til dagskrár:

 1.      Staðardagskrá 21.

Stefán Gíslason, verkefnisstjóri sd21, mætti á fundinn undir þessum lið ásamt Rannveigu Einarsdóttur og Elínu S. Harðardóttur. 

Stefán fór yfir hvernig verkefninu væri best fyrir komið hjá sveitarfélaginu.  Sagði hann að þrátt fyrir að Staðardagskrá 21 væri oft vistuð hjá umhverfisnefndum að þá væri áætlunin mun víðtækari.  Staðardagskrá 21 tekur til dæmis á fjölskyldumálum, þróun byggðar, menningarmálum og ferðaþjónustu.  

Umræða skapaðist um hvort ætti að fara í endurskoðun á staðardagskrá og í hvaða farvegi endurskoðunin ætti að vera.  Rætt um að ef farið verði í endurskoðun á staðardagskrá sé mikilvægt að fólk með mismunandi bakgrunn og þekkingu komi að vinnunni, t.d. tæknifólk og fólk sem vinnur að málefnum fjölskyldunnar.  Í framhaldinu var rætt um tímaramma endurskoðunarinnar.  Rætt um að gagnasöfnun yrði lokið í apríl 2007 og eiginleg vinna að endurskoðun og samráð við almenning hefjist að því loknu.  Á fundinum var rætt um að verklok yrðu eigi síðar en í apríl 2008.

Tillaga gerð um að umhverfisnefnd haldi utan um þessa vinnu og leiti eftir athugasemdum og tillögum frá öðrum nefndum og aðilum eftir atvikum. 

Umhverfisnefnd felur starfsmönnum að fara yfir Staðardagskrá 21 með tilliti til þess hvað búið er að gera, hvað hafi fengið minni áherslu í starfi sveitarfélagsins og hvernig Staðardagskrá 21 falli að annarri stefnumótun í sveitarfélaginu, t.d. skólastefnu og aðalskipulagi. 

 Stefán Gíslason kynnti einnig Green Globe vottunarkerfi fyrir samfélög.  Stefán taldi mikilvægt að samfélagið í heild tæki á umhverfismálum en ekki einstök fyrirtæki og það væri mikilvægur hluti af ímyndarsköpun.  Í framhaldi var rætt um vöxt ferðaþjónustu og mikilvægi þess að skipuleggja vöxtinn sem best.  Nefndarmenn telja mikilvægt að þegar tekin verði ákvörðun um þátttöku í Green Globe verði samspil þjóðgarðs, umhverfismála og ferðaþjónustu metin vandlega.

 2.      Samþykkt um fráveitur.

Lögð fram drög að samþykktum um fráveitur og losun og hreinsun rotþróa.  Umhverfisnefnd leggur til að framlögð drög leggi grunn að nýrri samþykkt fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð.  Umhverfisnefnd beinir því til bæjarráðs að skoða sérstaklega lið um gjaldskrá og hvort uppbygging fráveitna skuli greidd með skattfé eða þjónustugjöldum.  Þá leggur umhverfisnefnd áherslu á að unnið verði að úrlausn fráveitumála fyrir dreifbýlið og frístundabyggðir.  Í því samhengi þarf bæði að gæta að tæmingu rotþróa og magninnkaupa á rotþróm.  Þá leggur umhverfisnefnd til að samþykkt Fljótsdalshéraðs um hreinsun, losun og frágang rotþróa verði höfð til hliðsjónar við þessa vinnu.

 3.      Refa- og minkaveiðar.

Hjalti gerði grein fyrir fyrirkomulagi varðandi refa- og minkaveiðar í sveitarfélaginu.  Kom fram í máli hans að veiðimenn telji að fjöldi refa og minka hafi aukist.  Einnig sagði hann að leit og veiðar á dýrum á ákveðnum svæðum væri ábótavant.  Gerði hann grein fyrir samtölum við bændur, veiðimenn og landeigendur. 

Umræðar sköpuðust um fyrirkomulag.  Nefndin felur starfsmönnum að gera tillögur að úrbótum.  Hugmyndir sköpuðust um árangurstengdar greiðslur.

4.      Umhverfisverðlaun Hornafjarðar.

Umhverfisnefnd telur afar brýnt að setja reglur um verðlaunin fyrir næsta ár.  Samþykkt að fela starfsmönnum að óska eftir tilnefningum fyrir 20. janúar.

 5.      Önnur mál.

·        Valdemar gerði grein fyrir heimsókn sinni í Sorpu í Reykjavík þar sem hann kynnti sér flokkun sorps og hvernig hægt er að standa að framkvæmd flokkunar.

·        Rætt um mikilvægi þess að haldin verði skrá um staði þar sem hætta er talin á að sjúkdómar leynist í jörðu, t.d. miltisbrandur.

 

Fundi slitið kl. 16.15

 

 




Fundargerðir

Dag.grein
08.04.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 167
28.04.2010 Fundargerð umhverfisnefndar 97
12.04.2010 Fundargerð umhverfisnefndar 96
11.03.2010 Fundargerð umhverfisnefndar 95
09.02.2010 Fundargerð umhverfisnefndar 94
13.01.2010 Umhverfisnefnd Hornafjarðar 93
10.12.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 92
08.10.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 91
09.09.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 90
14.05.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 89
20.04.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 88
12.03.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 87
10.03.2009 Fundargerð húsnæðisnefndar 85
26.02.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 86
19.02.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 85
08.01.2009 Fundargerð umhverfisnefndar 84
08.12.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 83
12.11.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 82
25.09.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 81
11.09.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 80
10.06.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 79
15.05.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 78
18.03.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 76
14.02.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 75
10.01.2008 Fundargerð umhverfisnefndar 74
13.12.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 73
08.11.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 72
11.10.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 71
10.10.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 70
16.07.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 69
09.07.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 68
07.05.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 67
26.02.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 66
05.02.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 65
08.01.2007 Fundargerð umhverfisnefndar 64
11.12.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 63
26.10.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 62
29.09.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 61
09.09.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 60
10.07.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 59
15.05.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 58
03.04.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 57
06.03.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 56
06.02.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 55
16.01.2006 Fundargerð umhverfisnefndar 54
15.11.2005 Fundargerð umhverfisnefndar 53
06.06.2005 Fundargerð umhverfisnefndar 52
18.04.2005 Fundargerð umhverfisnefndar 51
14.03.2005 Fundargerð umhverfisnefndar 50
14.02.2005 Fundargerð umhverfisnefndar 49
10.01.2005 Fundargerð umhverfisnefndar 48
13.12.2004 Fundargerð umhverfisnefndar 47
08.11.2004 Fundargerð umhverfisnefndar 46
13.09.2004 Fundargerð Umhverfisnefndar 45
13.07.2004 Fundargerð Umhverfisnefndar 44
12.07.2004 Fundargerð Umhverfisnefndar 43
08.03.2004 Fundargerð Umhverfisnefndar 42
09.02.2004 Fundargerð Umhverfisnefndar 41
12.12.2003 Fundargerð Umhverfisnefndar 40
10.11.2003 Fundargerð Umhverfisnefndar 39
13.10.2003 Fundargerð Umhverfisnefndar 38
11.06.2003 Fundargerð Umhverfisnefndar 37
10.03.2003 Fundargerð Umhverfisnefndar
09.12.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
11.11.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
14.10.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
09.09.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
08.07.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
16.04.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
19.03.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
11.02.2002 Fundargerð Umhverfisnefndar
18.04.0005 Fundargerð umhverfisnefndar 51
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica